blaðið - 22.05.2007, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2007
blaöið
INNLENT
UPPLÝSINGATÆKNI
Nær 500 fyrirtæki
Alls störfuðu 456 fyrirtæki í upplýsingatækniiðnaði
hér á landi í fyrra og fjölgaði þeim um 34 frá árinu
áður. Mest var fjölgunin meðal fyrirtækja í hugbúnað-
argerð og ráðgjöf. Heildarvelta upplýsingafyrirtækja
jókst um 13 prósent og nam tæpum 113 milljörðum.
SAMGÖNGUR
Grunnafjarðarveg í umhverfismat
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að taka
upp viðræður við vegamálastjóra og Skipulagsstofnun um
óformlegt umhverfismat á þverun Grunnafjarðar. Lagt er
til að sú veglína sem aðalskipulagstillögur gera ráð fyrir
liggi til grundvallar matinu.
BIFHJÓLASLYS
Okumaður á batavegi
Ökumaður bifhjóls sem legið hefur á gjörgæslu-
deild í rúmar tvær vikur eftir að hafa fallið af hjóli
sínu í Njarðvík er laus úr öndunarvél og á batavegi.
Slysið varð þegar maðurinn missti stjórn á hjóli
sínu við það að afstýra árekstri við bifreið.
Formannsskipti framundan hjá Framsókn:
Jón sagður á útleið
Jón Sigurðsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, hefur tilkynnt
nánustu samstarfsmönnum
sínum að hann ætli að segja af
sér. Þetta var fullyrt í þættinum
ísland í dag í gærkvöld. Þátturinn
sagðist hafa öruggar heimildir
fyrir þessu en sjálfur vildi Jón
ekkert segja um málið. Ekki náð-
ist í Guðna Ágústsson, varafor-
mann flokksins, í gærkvöld. Segi
Jón af sér mun Guðni taka við for-
mennsku fram að næsta flokks-
þingi. Búist er við því að formlega
verði tilkynnt um afsögn Jóns á
næstu dögum.
Háskólafélag
Suðurlands
Þekking skapar sóknarfæri
Sunnlensk þekking, rannsóknir og þróun.
Háskólafélag Suðurlands er vinnuheiti félags sem fyrirhugað
er að stofna síðar á þessu ári.Tilgangur þess er að nýta
sóknarfæri á sviði mennta- og rannsókna á Suðurlandi.
Boðað ertil samráðs- og kynningarfundar
um aukið samstarf fyrirtækja og rannsókna-
stofnana á Suðurlandi föstudaginn 25. maí,
kl. 10 -16 í höfuðstöðvum Landgræðslu
ríkisins í Gunnarsholti á Rangárvöllum.
Á fundinum verða stefnuskrá og markmið
hins nýja Háskólafélags kynnt. Rannsókna- og
þróunarfyrirtæki, stofnanir sem og sveitarfélög
eru hvötttil að senda fulltrúa til fundarins. Þar
gefst þátttakendum færi á að skrifa undir vilja-
yfirlýsingu um samstarf um tilgang félagsins.
Þá er aðilum velkomið að kynna starfsemi sína
á fundarstað, t.d. með veggspjöldum.
Fundarstjóri verður Sr. Guðbjörg Arnardóttir.
Ráðstefnan er öllum opin og er aðgangur ókeypis.
Skráning fer fram með tölvupósti á póstfangið
valdis@primordia.is /' síðasta lagi þriðjudaginn
22. maí. Allarnánari upplýsingarog dagskrá er
að finna á www.primordia.is undir flipanum
Háskólafélag Suðurlands.
Háskólafélag
Suðurlands
Verkefnisstjórn
LAND.GRÆÐSLA
RIKISINS
. ■:
S'-íÁ'Sr i?;'
Starfsmenn Kambs Sjá margir hverjir
fram á að þurfa að borga af verðlaus-
m um eignum sem enginn vill búa i.
‘i'
Vonleysi á Flateyri:
Helmingur kvótans
hefur verið seldur
■ Aumingjaskapur ráöamanna ■ Veruleikafirrtir ráðherrar
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Búið er að skrifa undir samning um
sölu á 3 af 5 skipum Kambs á Flateyri
og óstaðfestar heimildir herma að
helmingur aflaheimilda hafi verið
seldur úr byggðarlaginu, mögulega
til Dalvíkur að því er fram kemur í
ísfirska vefritinu Bæjarins besta. Eig-
andi Kambs staðfesti í gær að kaup-
andinn væri ekki á Vestfjörðum. Þó
sagði hann að sögur þess efnis að
Brim hefði verið að hugsa um að
kaupa kvóta og skip af Kambi væru
uppspuni frá rótum.
„Þetta er mikið áfall fyrir okkur.
Við erum nýbúin að kaupa hús sem
nú er að verða verðlaust," segir Guð-
rún Guðmundsdóttir, íbúi á Flateyri.
„Ég veit um þónokkra aðra sem eru
í sömu aðstæðum. Fáir leigja hér
nú orðið og útlendingar sem komu
hingað síðasta haust eiga margir
hverjir hús og íbúðir, en mjög erfitt
verður að losna við eignirnar. Það
líður öllum illa yfir þessu og fólk
hefur miklar áhyggjur enda veit eng-
inn hvað mun gerast. Það er sérstak-
lega erfitt að hlaupa burtu þegar ný-
lega er búið að kaupa, en auðvitað er
erfitt fyrir alla að þurfa að borga af
verðlausum húsum.“
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, er
ævareiður út í forystumenn þjóð-
arinnar fyrir að hafa ekki brugðist
við því sem hann segir hafa verið
fyrirsjáanlegt. „Það þýðir ekkert
að væla eins og aumingjar annað
slagið þegar svona kemur upp þegar
menn vita nákvæmlega hvað hefði
þurft að gera. Aðalvandinn er sá að
það hefur verið svo mikill aumingja-
skapur í íslenskum ráðamönnum
í gegnum tíðina sem aldrei hafa
fengist til að taka á þessu, og aldrei
hefur verið vilji hjá þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins til þess.“
Formaðurinn segir að frjálslyndir
hafi fyrir kosningarnar lagt til að 20
þúsund tonnum yrði dreift á þær
byggðir sem verst hafa orðið úti
vegna tilfærslu á kvóta og að ákveð-
inn fjöldi tonna yrði festur á hvert
byggðarlag. „Einnig þarf að grípa til
ráðstafana til að draga úr flutnings-
kostnaði til þeirra byggða sem eru
fjærst suðvesturhorninu. Þetta eru
menn búnir að vita i marga áratugi
þýðir ekkert að
væia eins og
t;f£. aumingjar þegar
f svona kemur upp
P’s ’f Guðjón Arnar Kristjóns-
son, formaður Frjáls- lynda flokksins
og búið að skipa margar nefndir
sem hafa ávallt komist að sömu nið-
urstöðu; að koma þurfi á einhvers
konar flutningsjöfnuði.“
Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri-
hreyfingarinnar - græns fram-
boðs í Norðvesturkjördæmi, tekur
í sama streng. „Þegar ráðherrar
segja að þetta komi þeim á óvart
eru þeir annaðhvort að segja ósatt
eða með mjög litla tengingu við
atvinnulífið og samfélagið. Menn
áttu að vita það að okurvextir og
hátt gengi vegna stóriðjustefnunnar
og slæmt fiskveiðistjórnunarkerfi
er sjávarbyggðum mjög óhagstætt.
Lítilsvirðingin sem stjórnvöld hafa
sýnt byggðum landsins er með ólík-
indum og það er auðvelt að ímynda
sér hvaða áhrif það hefði haft fyrir
úrslit þingkosninganna ef þessar
fréttir hefðu borist fyrr.“
LJLFL JÓTSVATNI
- Kassaklifur - GPS ratleikir - Bdtasiglingar - Vatnaleikir - Frumbyggjastöi/^ -
Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri
Krassandi útilífsœvintýri - fjör og hópeflisandi!
II
$$
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljots
Upplýsingar og skráning á netinu:
www.ulfljotsvatn.is