blaðið - 22.05.2007, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2007
blaðið
UPPLÝSINGATÆKNI
Nær 500 fyrirtæki
Alls störfuðu 456 fyrirtæki í upplýsingatækniiðnaði hér á
landi í fyrra og fjölgaði þeim um 34 frá árinu áður. Mest
varfjölgunin meðal fyrirtækja í hugbúnaðargerð og
ráðgjöf. Heildarvelta upplýsingafyrirtækja jókst um 13
prósent milli ára og nam rétttæpum 113 milljörðum króna.
SAMGÖNGUR
Grunnafjarðarveg í umhverfismat
Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur samþykkt að taka upp við-
ræður við vegamálastjóra og Skipulagsstofnun um að farið verði í
óformlegt umhverfismat á þverun Grunnafjarðar. Lagt er til að sú
veglína sem aðalskipulagstillögur Skilmannahrepps og Leirár- og
Melahrepps gera ráð fyrir liggi til grundvallar matinu.
BIFHJÓLASLYS
Ökumaður á batavegi
Okumaður bifhjóls sem legið hefur á gjörgæslu-
deild í rúmar tvær vikur eftir að hafa fallið af hjóli
sínu í Njarðvík er laus úr öndunarvél og á batavegi.
Slysið varð þegar maðurinn missti stjórn á hjóli
sínu við það að afstýra árekstri við bifreið.
Kína:
Barneignalög-
um mótmælt
Þúsundir íbúa í Guangxi-
héraði í suðvesturhluta Kína
söfnuðust saman á föstudag og
laugardag til að mótmæla lögum
um takmarkanir á barneignum.
Reiður múgurinn réðst inn í
opinberar byggingar, kveikti í
og vann önnur skemmdarverk.
Mótmælin brutust út eftir að
embættismenn ffamfylgdu
háum fjársektum á þær fjöl-
skyldur sem brotið höfðu lögin.
Einn særðist í mótmælunum.
íbúar í borgum Kína mega
aðeins eignast eitt barn, en
íbúar á strjálbýlli svæðum mega
eignast tvö börn, ef það fyrra er
stúlka. Lögin voru sett á áttunda
áratugnum til að stemma stigu
við örri fólksfjölgun í landinu.
1,3 milljarðar manna búa í Kína.
Líbanon:
Átta óbreyttir
borgarar fallnir
Að minnsta kosti átta óbreyttir
borgarar hafa látið lífið í átökum
milli líbanska stjórnarhersins
og fiðsmanna hinna herskáu
samtaka Fatah al-Islam. Átök-
in eru þau mannskæðustu í
landinu frá því borgarastyrj-
öldinni lauk fyrir 17 árum.
Átökin hafa átt sér stað í og
við Nahr al-Bared-flóttamanna-
búðirnar í norðurhluta Líbanons.
Um 30 þúsund palestínskir
flóttamenn eru innlyksa í búðun-
um. Ástand þeirra er sagt vera
mjög slæmt og fer hnignandi.
Bardagar hófust er hermenn
reyndu að handtaka mann
sem grunaður er um aðild að
bankaráni í flóttamannabúðun-
um. Stjórnarherinn er sagður
hafa náð tökum á ástandinu þótt
enn sé eitthvað um bardaga.
Mfnd/Ámi Sæberg
Landeigendur sigruðu
Við Sólheimajökul
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Að sjálfsögðu má búast við að ís-
lenska ríkið taki mið af þessum
dómum í kröfugerð sinni og
óbyggðanefnd í úrskurði sínum. I
þessum dómum eru röksemdir
sem íslenska ríkið hefur lagt mikla
áherslu á alveg slegnar út af borðinu,
eins og þær að sjálfgefið sé að land
sem kallað er afréttur sé þjóðlenda.“
Þetta segir Ragnar Aðalsteinsson
hæstarréttarlögmaður um dóma
Hæstaréttar í síðustu viku í fjórum
þjóðlendumálum.
Hæstiréttur sneri við þremur
dómum um svæði sunnan Mýrdals-
jökuls og féllst á kröfur landeigenda
um að svæðin væru háð séreignar-
rétti þeirra. Er þetta í fyrsta sinn
sem Hæstiréttur snýr dómi um þjóð-
lendu í eignarland. I fjórða málinu
úrskurðaði Hæstiréttur að óbyggða-
nefnd hefði ekki heimild til að fara
út fyrir kröfur aðila en hún hafði
úrskurðað að þjóðlenda á Rangár-
vallaafrétti væri stærri en íslenska
ríkið gerði kröfu til.
Ragnar segir að það myndi spara
bæði vinnu og peninga að hafa
kröfugerð í samræmi við raunveru-
leikann. „Það er utan við minn
skilning hvers vegna ríkið hefur
gert þær kröfur sem það hefur gert
en þær hafa að meginstofni verið
tilgangslausar frá upphafi. En mér
virðist sem Hæstiréttur geri ekki
sömu ströngu sönnunarkröfurnar
á hendur landeigendum eins og gert
hefur verið í eldri málum.“
Að mati Ragnars er of snemmt að
segja til um hvort einhverjir land-
eigenda geta farið aftur í gang með
sín mál. „Það er of snemmt að segja
nokkuð til um það. Það verða flutt 5
mál um afréttarlönd á miðvikudag.
Þetta skýrist þegar dómar ganga í
þeim fyrir Hæstarétti."
Þrjú mál vegna jarða í Austur-
Skaftafellssýslu sem búið er að gera
að þjóðlendum eru komin til Mann-
réttindadómstóls Evrópu en enn er
óljóst hvort þau verða tekin fyrir þar.
Guðný Sverrisdóttir, formaður
Landssamtaka landeigenda, segir
dóma Hæstaréttar í síðustu viku
áfangasigur. „Við höfum alltaf
haldið því fram að sönnunarbyrðin
væri alltof ströng. Sönnunarbyrðin
er alltof hörð þegar menn þurfa að
grúska alveg aftur í landnám til að
sanna eignarrétt sinn.“
Að sögn Guðnýjar ætla landeig-
endur að fara að huga að sínum
málum á ný eftir smáhlé. „Við
Afstaðþegar
ný rikisstjórn
kemur
Guðný Sverrisdóttir, for-
maður Landssamtaka
landeigenda
Kröfugerðí
samræmi við
raunveruleíkann
Ragnar Aðalsteinsson,
hæstaréttarlögmaður
höfum tekið okkur smáfrí. Sumir
hafa verið í sauðburði og aðrir að
laga til á borðinu sínu og reyna að
minnka staflann. Þegar það kemur
ný ríkisstjórn förum við af stað
aftur.“
GLERAUGU
SJONARHOLL
Gleraugnaverslun
565-5970
Rcykavíkurvegur 22
220 Hafnarfírði
GALLERI
Pétur Pétursson listamaður sýnir
Nánar á www.sjonarholl.is
Sjóræningjar ógna matvælaaöstoð í Sómalíu:
Hungursneyð vofir yfir
einni milljón manna
Matarsendingar til Sómalíu hafa
verið stöðvaðar eftir að sjóræn-
ingjar gerðu tilraun til að yfirtaka
skip sem flutti matvæli til landsins
fyrir Matvælastofnun Sameinuðu
þjóðanna. Yfirmaður stofnunar-
innar segir að sendingar handa hátt
í milljón manns séu í hættu. Þetta er
í annað sinn á stuttum tíma sem við-
líka aðstæður koma upp, en í fyrra
voru matarsendingar stöðvaðar í
tvær vikur þegar tveimur skipum
var rænt undan ströndum Sómalíu.
Sjóránstilraunin átti sér stað síð-
astliðinn laugardag, en þá hafði
flutningaskipið nýlokið við að flytja
fjögur þúsund tonn afmatvælum til
hafnarborgarinnar Merka á suður-
strönd Sómalíu. Einn öryggisvörður
var myrtur í árásinni. Annað skip
átti að sigla til Sómalíu í vikunni frá
Keníu með matarbirgðir, en útgerð
skipsins hefur neitað að sigla af stað
fyrr en búið er að útvega vopnað
fylgdarlið.
Sjórán eru mjög tíð á þessum
slóðum, eða síðan borgarastyrjöld
braust út í Sómalíu fyrir um 15 árum.
Einungis í síðustu viku var þremur
skipum rænt. Tveimur fiskiskipum
frá Suður-Kóreu og einu frá Taívan
er enn haldið í gíslingu undan
ströndum landsins. 1 mörgum til-
fellum þykjast sjóræningjarnir vera
strandverðir sem fylgjast með ólög-
legum fiskveiðum og losun úrgangs.
iiffi