blaðið - 22.05.2007, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2007
blaöió
UTAN ÚR HEIMI
Fannst efftir eitt ár
Lögreglan í Svíþjóð rannsakar nú morðmál eftir að lík
35 ára leikskólakennara fannst í skógi skammt frá Falun.
Hennar hafði verið saknað í eitt ár. Tveir karlmenn voru
grunaðir um að hafa valdið hvarfi hennar og telur lögreglan
sig nú hafa nægar sannanirtil að handtaka mennina.
SPÁNN
Flóttamönnum vísað úr landi
Spænska ríkisstjórnin hefur ákveðið að senda 750
flóttamenn frá Afríku, þar af 30 þörn, aftur til síns
heima. Fólkið, flest frá Senegal, var handtekið í
síðustu viku við Kanaríeyjar. í fyrra er talið að 30
þúsund hafi reynt að komast þangað frá Afríku.
Pútín úthýsir blaðamönnum
Pútín Rússlandsforseti hefur skiþað Samtökum rúss-
neskra blaðamanna að yfirgefa húsnæði sitt í Moskvu
til að rýma fyrir nýrri ríkisrekinni sjónvarpsstöð. Henni
er ætlað að bæta ímynd Rússlands á erlendum vett-
vangi. Samtökin neita að verða við skipuninni.
Ársskýrsla Stígamóta:
Fjölgun ofbeldisbrota í
kjölfar klámvæðingar
■ 80 prósent þolenda yngri en 18 ára ■ Einungis 10,7 prósent kæra ■ Hópnauðgunum fjölgar
Eftir Lovísu Hilmarsdóttir
lovisa@bladid.net
Mikill munur er á fjölda ofbeldis-
manna og þeirra sem leituðu sér
hjálpar í fyrsta skiptið árið 2006.
Ofbeldismennirnir voru 365 en fórn-
arlömbin 266. Sumir ofbeldismann-
anna voru taldir oftar en einu sinni
og hópnauðganir eru fleiri. Eing-
ungis 39 mál voru kærð eða 10,7 pró-
sent af öllum málum. Þetta kemur
fram í ársskýrslu Stígamóta sem
kynntvarígær.
Flestir sem verða fyrir ofbeldi eru
á aldrinum 0-18 ára eða tæplega 80
Hlutfall
50
40
30
20
10
4,1
0 oll
0-4
41
5-10
0,4
11-15
39,1
20,7
14,1
9,8
fl
16-18
Samanburður á aldri einstaklinga
þegar leitað var aðstoðar og aldri þeirra
þegar ofbeldið var framið árið 2006
t: I Leitað
t j Framið
18,8
14,8 \
II
19-29
18,8
1,9
ílll
30-39
0,4
40-49
8,6
0,4
50-59
2,6 1,9 2,6
' 0 i :\i
60 og Óvfst
eldri
prósent. Hins vegar eru þeir sem
leita sér hjálpar flestir á aldrinum 20-
40 ára eða um 60 prósent. Guðrún
Jónsdóttir, talskona Stígamóta, segir
tölurnar sýna að það sé mjög einkenn-
andi fyrir þann hóp sem nýtir sér
þjónustu Stígamóta að hann leitar
sér hjálpar áratugum eftir að brotið
átti sér stað.
„Það er gífurlega mikilvægt að
brýna fyrir ungu fólki að leita sér
hjálpar. Það kom í ljós þegar farið var
yfir fræðslu á síðasta ári að í flestum
tilvikum þegar við komum inn í fram-
haldsskólana var það vegna beiðni frá
nemendunum sjálfum. Þetta er eitt-
hvað sem er brýnt að skoða og skóla-
yfirvöld verða að tryggja fræðslu um
kynferðisofbeldi,” segir Guðrún.
Starfsmenn Stígamóta lýstu
áhyggjum sínum vegna aukinna of-
beldisbrota sem eru afleiðingar klám-
væðingar. Konur leita í síauknum
mæli til Stígamóta t.d. vegna birt-
ingar myndefnis af kynlífsathöfnum.
„Mál tengd klámi eru mikið
Guðrún Jónsdóttir Talskona Stíga-
móta kynnti ársskýrslu Stígamóta í
gær. Hún lýsti meðal annars áhyggj-
um sínum afauknu ofbeldi tengdu
klámvæðingu.
áhyggjuefni. Myndefni sem er tekið
af konum og sett í dreifingu hefur
færst í vöxt. Þetta er myndefni sem
tekið er bæði með og án samþykkis
fórnarlambanna. Þarna er bæði um
að ræða myndefni sem tengist mögu-
legum lyfjanauðgunum og myndefni
sem karlar hafa undir höndunum og
hóta að setja á Netið. Við hjá Stíga-
mótum höfum miklar áhyggjur af
þessari þróun og þessum miðlum
sem taka við slíku efni,” segir Guð-
rún Jónsdóttir.
ÁSTÆÐA ÞESS AÐ LEITAÐ VAR
TIL STÍGAMOTA 2006
■ Sifjaspell 42%
Nauðganir 35%
■ Kynferðisleg áreitni 15%
■ Vændi 3%
Klám 2%
■ Grunur um sifjaspell 2%
Grunur um naugun 1%
Þegar skýrslan er skoðuð sést að
20 konur leituðu sér hjálpar vegna
vændis, þar af voru 9 ný mál og 11
gömul. Thelma Ásdísardóttir, ráð-
gjafi hjá Stígamótum, segir að fórnar-
lömb vændis upplifi meiri skömm en
önnur fórnarlömb kynferðisofbeldis,
en það stafi af viðhorfinu sem er í
þjóðfélaginu um að vændi sé frjálst
val og ýti það undir skömmina sem
fórnarlömbin upplifa.
Þórunn Þórarinsdóttir ráðgjafi
segir að meginþemað í ráðgjafarvið-
tölunum sé órökrétt skömm og sekt-
arkennd, því sé mikilvægt að halda
til haga hverra skömmin er.
„Það er gríðarleg þörf á viðtölum
alls staðar á landinu og hér vantar
starfsfólk og fjármagn. Okkar hlut-
verk er fýrst og fremst að rjúfa
þögnina.”
Við erum hluti
aP náttúrunni.
Náttúraner
hluti aP okkur
Skilningur okkar á mikilvœgi náttúrunnar Fyrir mann-
eskjuna eykst stöðugt. Grundvallaratriði í samFélagi okkar
í Urriðaholti er virðing Fyrir náttúrunni. Við njótum þeirra
Forréttinda að byggja heimili okkar í nánd við náttúru-
perlur eins og Urriðavatn, Heiðmörk og BúrFellshraun.
í nágrenni Urriðaholts eru Fjölmargar og ólikar göngu-
leiðir um hraun og hlíðar Einn besti golFvöllur landsins
er einnig í gönguFœri þannig að öll Fjölskyldan getur
notið útivistar og náttúru án þess að þurFa nokkru
sinni að stíga upp í bíl.
Frestur til að skila inn tilboðum í lóðir í Urriðaholti
rennur út 24. maí. Hœgt er að nálgast tilboðsgögn
á www.urridaholt.is og hjá Fasteignasölunum
Eignamiðlun og Miðborg.
Þúátt
heimahér
EIGNAMIÐLUN
Sverrir Krisinsson,
löggiltur Fasteignasali
MIÐBORG
/'asteig nasala
Björn Þorri Viktorsson,
löggiltur Fasteignasali
URRIÐAHOLT
Sími 588 9090
Sími 533 4800
www.urridaholt.is
Náin tengsl við náttúru svœðisins - Stutt ( útivistarperlur - SamFélagsvœnt skipulag - Góðir skólar - Fjölbreytt íbúðagerð Fyrir alla aldurshópa
Einbýlishús - Raðhús - Fjölbýlishús - Nálœgt helstu umFerðarœðum - UmhverFisvœnar skipulagslausnir - Barnvœnt hverFi - LÍFandi byggðakjarni
við torg - Grœnir geirar og göngustlgar - Sólrik og skjólsœl byggð (suðvesturhlið