blaðið - 22.05.2007, Page 12
blaði
Útgáfufélag:
Rrtstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
Trausti Hafliðason
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Þröstur Emilsson
Elín Albertsdóttir
Fyrsta verkefnið
Grundvöllur byggðar á Vestfjörðum hefur hingað til verið öflugur
sjávarútvegur. Byggðir í þessum hluta landsins hafa nánast alfarið
verið háðar fiskveiðum. Það eru fyrst og fremst veiðarnar sem hafa
skapað atvinnu í bæjunum. Brotalamir kvótakerfisins koma skýrast
fram í þessum litlu bæjarfélögum. Síðustu ár hafa heilu byggðarlögin
átt undir högg að sækja vegna kvótasölu og hás verðs á leigukvóta.
Eitt skýrasta dæmið um galla kvótakerfisins kom fram fyrir helgi.
Þá bárust þau tíðindi að langstærsta fyrirtæki Flateyrar, fiskvinnslan
Kambur, hygðist hætta útgerð og fiskvinnslu og selja allar eignir sínar.
Það má í raun líkja þessum atburði á Flateyri við náttúruhamfarir
því fyrir liggur að 120 manns muni missa vinnuna, sem er bróður-
partur atvinnufærra manna á staðnum. Hátt verð fyrir leigukvóta
og varanlegar aflaheimildir hefur staðið fiskvinnslunni Kambi fyrir
þrifum. Það væri samt einföldun að ætla að kenna kvótakerfinu ein-
göngu um ástandið því aðrir þættir koma þarna líka inn í. Ber þar
helst að nefna hagstjórn fráfarandi ríkisstjórnar, sem hefur leitt af sér
ógnarsterka krónu og himinháa vexti. Þetta auðveldar útflutningsfyr-
irtækjum ekki reksturinn. Þá er hár flutningskostnaður ekki til að
bæta ástandið.
Þegar fréttir eins og þessar berast er fullkomlega eðlilegt að menn
spyrji sig hvort þetta sé aðeins toppurinn á ísjakanum. Hvort viðlíka
vandi fyrirfinnist í öðrum sjávarbyggðum.
Hinrik Kristjánsson, framkvæmdastjóri Kambs, segir ástæður sölu
Kambs fjárhagslegar. Síðustu mánuði og vikur hafi reksturinn verið
mjög þungur. Það er mikilvægt að hafa það í huga að fyrirtæki hafa í
raun engar félagslegar skyldur þegar það liggur fyrir að þau bera sig
ekki lengur. Það er ekki hægt að neyða fyrirtæki til að halda úti at-
vinnurekstri. Stjórnvöld bera hins vegar félagslegar skyldur.
Það liggur því nokkuð ljóst fyrir hvert verður fyrsta verkefni nýrrar
ríkisstjórnar, sem verður væntanlega ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Samfylkingar. Þetta verkefni er langt frá því að vera einfalt og snertir
ekki bara íbúa Flateyrar heldur landsmenn alla. Kallað hefur verið
eftir því að stjórnvöld móti sér byggðastefnu. Kallað hefur verið eftir
breytingum á kvótakerfinu. Kallað hefur verið eftir ábyrgri hagstjórn.
Fróðlegt verður að sjá hvernig ný stjórn tekst á við þetta flókna verk-
efni - hvaða lausnir eru Geir H. Haarde og Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir með?
Trausti Hafliðason
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Glæsilegt úrval
af gólfefnum
i á góðu verði
Grasteppi
THvalin fyrir svalirnai
eða goljvöllinn í—
kjallaranum
Filtteppi
Frábært úrval
Skipa og gangadreglar 1
Ntðsterkir ogfást í 5 litum
Plastparket
Tilboðsverð frá kr. 990 á m1
Heimilisgólfdúkar
/ miklu úrvalifrá kr. 890 á m2
SlÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVlK ■ SÍMI: 510 5510 • mm k|aian.is
OPI0VIRKADAGAKL.8-1B
KJARAN
GÓLF3ÚNAQUR
KAURA/SEUA
I SMÁAUGLÝSINGAR 5103737 bladið
12 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2007 blaöiö
4liT STErtílR. \ flV >lHGVALLÁSTJ6fifi/rb/
vekvi WHPUf) í Htsm viKO
Nýsköpun á Þingvöllum
Merkilegir dagar að baki og allt
bendir til þess að viðræður um
nýju Þingvallastjórnina gangi
vel. Styrkur nýrrar stjórnar stóru
flokkanna tveggja verður mik-
ill. Söguleg samvinna pólanna í
íslenskri pólitík. Kannski sú sem
Mogginn kallaði eftir fyrir þremur
áratugum eða svo.
Gangi saman er tækifæri til að
ráðast í mörg brýn og stór verkefni
sem þarf að ná fram þverpólitískri
sátt um til að ná í gegn. Svo sem
efnahagslegur stöðugleiki og auk-
inn jöfnuður í þjóðfélaginu. Um
slík þjóðþrifaverk mun það sögu-
lega samstarf snúast sem kemur út
úr samvinnu stóru flokkanna til
hægri og vinstri. Rétt eins og þekkt
er bæði frá Finnlandi og Þýska-
landi. Þar unnu jafnaðarmenn
með hinum stóru flokkunum í
nokkurskonar þjóðstjórnum til að
ná hjólum efnahagslífs af stað og
til að bæta stórum velferðarkerfi
landanna.
Vinstri grænir útilokuðu vinstri
stjórn eftir kosningar og aðeins
tveir kostir í kortum eftir það; VG
og Sjálfstæðisflokkur eða Samfylk-
ing og Sjálfstæðisflokkur.
Þjóðstjórn um stór verkefni
Hvað VG gekk til með að útiloka
R-listastjórn strax í upphafi er
með þeim furðum og ólíkindum
að marga setur hljóða. Það er
ekki trúverðugt þegar slík boð
koma eftir á þegar áður er búið að
granda þeim kosti með miklum
látum daginn eftir kosningar.
Það er allavega undarlegt að eini
flokkurinn sem kennir sig beint
Klippt & skorið
Vefurinn sudurland.is greinir frá því að
Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður
telji þörf á átaki á Selfossi til að sporna
við því að fólk fleygi rusli
á víðavangi. Um helgina
var ungur karlmaður
kærður fyrir að kasta frá
sér bjórglasi fyrir utan
Pakkhúsið á Selfossi.
Hann má búastviðallt að
tiu þúsund króna sekt og það sama á við um alla
þá sem Selfosslögregla stendur að viðlíka sóða-
skap, að sögn sýslumanns. Sóðinn sem lögregla
hafði afskipti af við Pakkhúsið var einnig kærður
fyrir ölvun á almannafæri og fyrir að hlýða ekki
fyrirmælum lögreglu. Fyrir óhlýðnina verður
hann sektaður um 20 til 30 þúsund krónur og í
ofanálag um tiu þúsund krónur fyrir ölæðið.
við vinstrið í stjórnmálunum með
nafni sínu skuli hafa komið í veg
fyrir myndun slíkrar stjórnar
þegar fyrir lá að Framsókn var til
í slíkt samstarf. Staðan er því ný-
stárleg. Nokkurs konar þjóðstjórn
í uppsiglingu. Nýsköpunarstjórn í
fyrsta sinn í hálfa öld og rúmlega
það. Sama módel og kom út úr
þráteflinu í Þýskalandi eftir síð-
ustu kosningar þar í landi og hefur
gengið vel.
Björgvin G. Sigurðsson
Vopnaðan frið stórveldanna
kallaði einn kollega minn það.
Kannski nokkuð nærri lagi. Auð-
vitað er þetta ný staða fyrir Sam-
fylkinguna en breytir engu um
tilvistarleg rök flokksins. Við
erum áfram hinn ásinn i stjórn-
málunum en fáum nú tækifæri
til að vinna að mörgum af þeim
málum sem jafnaðarmenn og fé-
lagshyggjufólk hafa barist fyrir af
kappi áratugum saman. Eftir að
samstarf um R-listastjórn var úti-
lokað af formanni VG.
Nú er lag að endurnýja almanna-
tryggingakerfið, eyða biðlistum og
fjárfesta enn þá meira í börnunum
Mörgum finnst það ósmekklegt af
höfundi Reykjavíkurbréfs Morgun-
blaðsins að telja lesendum trú um
að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sé svika-
kvendi sem gæti sprengt stjórnarsamstarf
við Sjálfstæðisflokk á miðju kjörtímabill til
að stofna vinstristjórn.
Að minnsta kosti eru
fáir sammála þessum
skrifum og flestir telja
þetta óþarfa hræðslu
hjá Moggamönnum.
Það var að minnsta
kosti ekki að sjá á Geir Haarde að hann
væri sammála Reykjavíkurbréfinu þegar
hann kyssti Ingibjörgu Sólrúnu beint á
munninn í vitna viðurvist á Þíngvöllum um
helgina.
okkar og menntakerfinu. Ná fram
í stóru samstarfi málunum sem
við höfum barist svo lengi fyrir.
Annar besti árangurinn
Samfylkingin náði þann 12. maí
annarri bestu kosningu vinstri
flokks í sögu íslenskra stjórn-
mála. Þessi niðurstaða staðfestir
að Samfylkingin hefur fest sig í
sessi sem stór öflugur jafnaðar-
mannaflokkur í anda norræna
kerfisins. Það er sem aldrei fyrr
þörf fyrir slíkan flokk á Islandi í
dag sem byggir á hugsjóninni um
sameiginlega velferð, virðingu
gagnvart náttúrunni, jöfnum tæki-
færum og frelsi til orða og athafna.
Samfylkingunni hafði ekki verið
spáð glæsilegri útkomu en fyrir
um 7 vikum mældist flokkurinn
með 18-19 prósent í könnunum.
Flokkurinn sýndi hins vegar að
hann er öflugur með því að auka
fylgi sitt um 8 prósent á þessum
stutta tíma. Það var gert með því
að leggja fram skýra stefnu og
staðfasta forystu. Það kunni fólk
að meta því kjósendur vilja sjá
lausnir en ekki hræðsluáróður og
heimsendaspádóma.
Ég nota tækifærið hér og þakka
þeim mikla fjölda sem að barátt-
unni kom í Suðurkjördæmi. Það
var sárt að ná ekki Róberti og
Guðnýju inn en við unnum vel að
því og ósanngjarnt kosningakerfi
hafði af okkur þriðja manninn.
Gerum enn betur næst.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar
Eggert Magnússon hjá West Ham
var í stuttu en skemmtilegu viðtali
við Rás 2 í síðustu viku. Þar sagði
hann frá því að hann væri orðinn svo frægur
í London að hann gæti
ekki lengur gengið óá-
reittur á förnum vegi.
Ljósmyndararnir eru
um allt. Eggert benti á
að tilfinningasemi hans
á fótboltavellinum
hefði gert þetta að verkum. Kollegar hans
i Bretlandi væru ekki þekktir fyrir að sýna
tilfinningar. Það væri nú annað en Islending-
urinn sem sýnir auðveldlega gleði eða tár á
vellinum.
elin@bladid.net
rsm<UA<ti