blaðið


blaðið - 22.05.2007, Qupperneq 16

blaðið - 22.05.2007, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 2007 menning menning@bladid.net Margret Clunies Ross, prófessor við Syndney-háskóla, heldur opinberan fyrirlestur um íslenskan trúarlegan kveðskap frá miðöldum í dag klukkan 12.15. Fyrirlesturinn er haldinn á veg- um Hugvísindastofnunar HÍ og ferfram í stofu 101 í Odda. blaöið Hafdís Huld söngkona er nú í tónleikaferð um Evrópu og hefur hún ásamt hljómsveit sinni komið fram á Spáni, í Frakklandi, Bretlandi og Belgíu. Framundan eru ýmsar tónlistarhátíðir, en söngkonan hefur meðal annars verið bókuð á Glastonbury. Heimildarmyndir á Skjaldborg Hátíð íslenskra heimildarmynda verður haldin næstkomandi helgi, hvítasunnuhelgina 25.-28. maí, í einu fallegasta og minnst þekkta kvikmynda- húsi íslands, Skjaldborgarbíói ' f 'g á Patreksfirði. f frumsýndar ' nýjar heimildar- myndir auk þess sem kvikmyndagerðarfólk og áhugamenn um heimildarmyndir fá tækifæri til að hittast og skipt- ast á skoðunum. í lok hátíðarinnar verður besta heimildarmyndin á Skjaldborg 2007 valin af áhorf- endum. Grafíkverk Elíasar [ kaffistofu Hafnarborgar stendur nú yfir sýning á tréristum eftir Elías B. Halldórsson, en tréristurnar eru úr myndaröðinni Hrátónar frá 1990 og eru úr safni Hafnar- borgar. Elías fæddist árið 1930 í Borgarfirði eystri. Hann nam við Myndlista- og handíðaskólann og hélt síðan til Stuttgart og Kaup- mannahafnartil frekara náms. Hann vann jöfnum höndum í olíu og grafík auk þess sem hann myndskreytti bækur, en eftir 1974 helgaði hann sig alfarið myndlistinni. Elías lést fyrr á þessu ári. Skáld framtíðarinnar Iðnskólinn í Hafnarfirði stóð á dögunum fyrir fyrstu Ijóða- og smásagnasamkeppni skólans og voru verðlaun veitt fyrir bestu smásögurnar og bestu Ijóðin. Fyrstu verðlaun fyrir smásögu hlaut Elfsa Gyrðisdóttir fyrir söguna „Ballerínan", en þess má geta að Elísa er dóttir Gyrðis Elías- sonar rithöfundar. Önnur verðlaun í sama flokki hlaut Dagný Björk Guðmundsdóttir fyrir söguna „Skýjaborgin". Fyrstu verðlaun fyrir Ijóð hlaut síðan Tanja Bjarna- dóttir fyrir Ijóðið „Eden“ Hljóðrituðu og gáfu út geisladisk í Kína í febrúar Kvartett Sigurðar i Flosasonar og Jóels Pálssonar. Gríðarstór markaður er að opnast í Kína Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Kvartett Sigurðar Flosasonar og Jóels Pálssonar heldur útgáfutón- leika á Domo annað kvöld klukk- an 2i, en tónleikarnir eru haldnir til að fagna útkomu geisladisksins „Shanghai, China“ sem kom út í Kína í febrúar. Forsaga málsins er sú að hljómsveitin kom fram á 8. listahátíðinni í Shanghæ í októb- er síðastliðnum og í sömu ferð var geisladiskurinn tekinn upp og gef- inn út í minnst 10.000 eintökum í Kína. Þetta er í fyrsta skiptið sem íslenskur geisladiskur er hljóðrit- aður og gefinn út þar í landi. „Þetta var mjög mögnuð ferð og ótrúlega skemmtileg," segir Sigurð- ur. „Við spiluðum á nokkrum stöð- um, bæði innandyra og utan, en að- altónleikarnir voru í tónleikahöll sem tekur tæplega 2000 manns og hún var nánast full af fólki. Það er alveg ljóst að áhugi Kínverja á öðru- vísi, vestrænum hlutum og menn- ingu er alltaf að aukastog það var skemmtilegt að sjá hvað fólk hafði jafnan mikinn áhuga á saxófón- unum, sem ef til vill er nokkurs konar tákn vestrænnar menning- ar í þeirra augum. Reyndar var ég líka staddur í Kína ári áður ásamt KK, sem var kynntur sem djasstón- listarmaður. Það er auðvitað ekki mjög nákvæm skilgreining þótt Kristján sé auðvitað frábær, enda virðist djass og blús renna svolítið saman í eyrum Kínverja." Upphaflegi tilgangurinn með ferðinni var að spila á tónlistarhá- tíðinni og fleiri tónleikum, en þeg- ar hljómsveitarmeðlimir komu til Shanghæ fengu þeir tækifæri til að hljóðrita diskinn með nokkuð stuttum fyrirvara. „Óttar Felix Hauksson sem rekur Zonet-útgáf- una hefur verið í töluverðu sam- bandi við ýmsa aðila þarna í Kína með það fyrir augum að koma ís- lenskum listamönnum á framfæri. Hann fékk því framgengt hjá rík- isútgáfufyrirtæki að þeir hljóðrit- uðu fyrir okkur diskinn þannig að við skelltum okkur í þá vinnu sem tók ekki nema hálfan dag,“ segir Sigurður og bætir því við að vissu- lega sé það stuttur tími til að taka upp heilan disk. „Reyndar er það yfirleitt þannig í djassi að lögin eru spiluð í heilu lagi af hljómsveitum inni í stúdíói og svo er besta upp- takan valin. I þessu tilfelli var hins vegar ekki um það að velja að spila hvert og eitt lag mikið oftar en einu sinni þannig að við urðum bara að gera okkar besta við að láta hvert lag heppnast vel við fyrstu spilun. Þetta gefur disknum reyndar viss- an sjarma, enda var upptakan nán- ast eins og tónleikar." Að öðru leyti segir Sigurður lít- inn mun vera á því að taka upp plötu í Kína og á íslandi. „Það kom mér reyndar á óvart hvað munur- inn var lítill, enda höfðum við áð- ur upplifað misgóða tæknimenn á tónleikastöðunum og ekki mjög háan standard á tæknihlutum. En í þessu stúdíói var frábær, innfædd- ur upptökumaður sem kunni vel á öll tæki og tól og var með allt sem þurfti. Að auki hafði hann góðan skilning á tónlistinni og í hvert skipti sem við ætluðum að biðja hann um að gera hitt og þetta var hann yfirleitt búinn að því. Þannig fengum við mjög mikil hljómgæði á þessa plötu og erum mjög lukku- legir með hana.“ Tónleikarnir á DOMO eru eins og fyrr segir annað kvöld klukkan 21, en að sögn Sigurðar er ekki bú- ið að skipuleggja næstu Kínaferð. „Það er ekkert ákveðið núna en ég vona að það verði bráðum, enda er mjög spennandi að vera þarna. Ég hef reyndar bara komið til Shang- hæ, sem þó er ekkert „bara“ þar sem borgin er einstaklega spennandi. Það væri gaman að kynnast henni betur sem og auðvitað öðrum stöð- um í landinu. Svo er þetta náttúrlega gríðarlega stór markaður sem er að opnast og spennandi fyrir íslenska listamenn að koma sér á framfæri þar,“ segir hann að lokum. Útsölustaðir: Esar Húsavík, Dalakjör Búðardal, Snyrtivöruverslunin Nana Lóuhóium, Heimahorníð Stykkishólmi, Smart Vestmannaeyjuni, Efnalaugin Vopnafirði, Pex Reyðarfirði Læknar mæla með þessum haldara Verð kr. 3.990.- www.ynja.is Irirnidbofg 7 Kópavogi Sími 5444088 Amiina fær góða dóma í Bretlandi íslenska strengjasveitin Amiina gefur út sína fyrstu breiðskífu í júní, en hljómsveitin hefur spil- að á tónleikum víða um heiminn að undanförnu. Á vefsíðu Guardi- an er fjallað um nýlega tónleika sveitarinnar í Glasgow, þar sem hún fær fullt hús stiga, eða fimm stjörnur af fimm mögulegum. í dómnum segir meðal annars að hljómsveitarmeðlimir, sem eru fjórar konur á þrítugsaldri, grípi hlustandann með óvenjulegum, fallegum og blíðlegum tónum. En þó svo að tónlistin sé óvenjuleg og hljómsveitin fari sömu leið og samlandi þeirra Björk og búi til sínar eigin reglur, sé ekkert óþægi- legt eða skerandi við tónlist þeirra. Þvert á móti sé hún afar heimilis- vel verið vögguvísur ef þau væru leg á að hlusta ásamt því að vera ekki svona hástemmd," segir með- kraftmikil. „Lög þeirra gætu jafn- al annars í dómnum.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.