blaðið - 22.05.2007, Side 17

blaðið - 22.05.2007, Side 17
blaðið mennt menntun@bladid.net Nemendasýning Lokasýning nemenda Ljósmyndaskóla Sissu verður opnuð að Hólmaslóð 6 næstkomandi laugardag kl. 16. Sýningin stendurtil 3. júní og er opin alla daga kl. 14-19. ÞRIÐJUDAGUR 22. MAI 2007 33 Hvítir kollar Brautskráning stúdenta fer fram í flestum framhalds- skólum landsins um þessar mundir og hvítir kollar setja svip sinn á bæinn. Ráð í tíma tekið ó að háskólum hafi fjölg- að mjög hér á landi á undanförnum árum og námsframboð að sama skapi aukist halda enn margir íslenskir námsmenn til út- landa í nám á ári hverju. Það er að mörgu leyti auðveldara nú en áður fyrir fólk að stunda nám að hluta eða í heild erlendis meðal annars vegna alþjóðlegra samninga og stúd- entaskiptaáætlana. Enn sem fyrr þarf fólk þó að undirbúa utanför- ina vel og ganga frá ýmsum lausum endum áður en stigið er um borð í flugvélina. Mikilvægt er að fólk gefi sér góð- an tíma til undirbúnings og er ekki óvarlegt að hefja hann að allt að einu og hálfu ári áður en nám hefst þó að það geti verið misjafnt eftir löndum. Þá er ekki síður mikilvægt að námsmenn hafi strax góða yfirsýn yfir það sem þeir þurfa að gera og skipuleggi tíma sinn vel. Auk um- sóknar um skólavist þurfa þeir gjarnan að ganga frá ýmsum öðr- um umsóknum svo sem um styrki, námslán, dvalarleyfi, tungumála- próf og húsnæði. Þess vegna þarf fólk að hafa góða yfirsýn yfir hvað það þarf að sækja um, hvenær um- sóknarfrestur rennur út og hve lang- an tíma afgreiðsla umsóknarinnar tekur. Lán og styrkir Áður en sótt er um námsdvöl ætti maður að ganga úr skugga um hvort það nám sem maður hefur áhuga á að stunda er viðurkennt og láns- hæft. Slíkar upplýsingar má til dæm- is nálgast hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Þá geta námsmenn oft sótt um ýmsa styrki sem geta létt þeim lífið meðan á námi stendur. Á heimasíðu Upplýsingastofu um nám erlendis (ask.hi.is) er að finna gott yfirlit yfir íslenska og erlenda styrktarsjóði þar sem er meðal ann- ars hægt að leita að styrkjum eftir löndum og fræðasviðum. Námsmenn þurfa að uppfylla ým- is skilyrði þegar þeir sækja um nám eða skólavist í útlöndum. Yfirleitt eru gerðar kröfur um tungumála- kunnáttu og þurfa umsækjendur því að standast tungumálapróf. Stundum þarf einnig að þreyta önn- ur próf, til dæmis ef sótt er um fram- haldsnám í bandarískum háskólum. Leita strax að húsnæði Þegar námsmaður hefur fengið skólavist þarf hann að huga að hús- næðismálum sem allra fyrst enda getur sums staðar reynst erfitt að finna húsnæði við hæfi. Stundum veitir skólinn nemendum aðstoð við að hafa uppi á húsnæði, hvort held- ur er á stúdentagörðum eða annars staðar og einnig má leita til leigu- miðlana á staðnum. Þá getur verið gott að setja sig í samband við námsmenn á staðn- um sem kunna að vita um laust hús- næði. Ef fólk á þess kost er mælt með því að það leiti aðstoðar og ráðgjafar hjá öðrum íslendingum sem eru eða hafa verið við nám í sama skóla eða á sama svæði. Þeir luma oftar en ekki á hagnýtum upplýsingum og ráðum. Álmennar upplýsingar um nám og dvöl í því landi sem maður hef- ur hug á að dvelja í má finna hjá sendiráði eða ræðismannsskrif- stofu viðkomandi lands. Ganga þarf úr skugga um hvaða reglur gilda varðandi dvalarleyfi, trygg- ingar, vottorð og annað slíkt áður en haldið er af stað. Þá geta náms- menn einnig leitað til ýmissa stofnana og samtaka eftir upplýs- ingum. Á heimasíðu Upplýsingastofu um nám erlendis (ask.hi.is/page/ nam) má nálgast ýmsan gagn- legan fróðleik og það sama má segja um heimasíðu Sambands ís- lenskra námsmanna erlendis (sine. is). Þeir sem stefna á nám í Banda- ríkjunum geta enn fremur leitað til Fulbright-stofnunarinnar en á vefsíðu hennar (fulbright.is) eru ýmsar gagnlegar upplýsingar með- al annars um próf og styrki. Tækifæri og tálmar Niðurstöður rannsóknar á menntun nemenda með þroskahömlun í leik- skólum, grunnskólum og framhalds- skólum hér á landi verða kynntar á ráðstefnunni Tækifæri og tálmar í Skriðu, Kennaraháskóla íslands, á morgun, miðvikudag, klukkan 13. Rannsóknin var gerð að tilstuðlan Landssamtakanna Þroskahjálpar í tilefni af Evrópuári fatlaðs fólks árið 2003. Gretar L. Marinósson kynnir meginniðurstöður rannsóknar- innar. Aðrir fyrirlesarar eru Dóra S. Bjarnason, Elsa Sigríður Jónsdóttir, Hrönn Pálmadóttir og Ingibjörg H. Harðardóttir. Að erindum loknum verða umræður og fyrirspurnir með þátttöku fyrirlesara og fulltrúa Landssamtakanna Þroskahjálpar. Ráðgert er að senda ráðstefnuna út á vef Kennaraháskólans og þar er einnig hægt að skrá sig á hana. Ritgerða- samkeppni Japönsk stjórnvöld hyggjast bjóða nokkrum íslenskum ungmennum í tíu daga kynnisferð til Japans í haust. Þátttakendur fá meðal ann- ars að kynnast menningu landsins og uppbyggingu stjórn- og hag- kerfis þess. Þátttakendur verða að vera með íslenskan ríkisborgararétt og á aldr- inum 18-35 ára þann 1. júní næst- komandi. Þeir þurfa að hafa góða enskukunnáttu og mega ekki hafa komið til landsins áður né vera á leiðinni til þess í nánustu framtíð. Þátttakendur eiga að skila ritgerð á ensku sem fjallar um eitt af fé- lagslegum vandamálum Japans og reyna að finnna mögulega lausn á vandamálinu. Ritgerðin skal vera upp á eina síðu af stærðinni A4 (eitt línubil). Jafnframt eiga þátt- takendur að skrifa stutt bréf með upplýsingum um sjálfa sig og feril- skrá. Skilafrestur er til föstudagsins 29. maí. Umsóknum er hægt að skila á netfangið japan@itn.is eða til sendi- ráðs Japans, Laugavegi 182,105 Reykjavik. Valið verður úr hópi umsækjenda og þeir boðaðir í viðtal hjá sendi- ráði Japans íjúní. Að ýmsu er að hyggja fyrir námsdvöl erlendis Hugað að námi erlendis Þeirsem hyg- gja á nám erlendis þurfa að ætla sér góð- an tíma til undirbúnings utanfararinnar. Etja kappi í stærðfræði Fjórir nemendur í 9. bekk í Digranes- skóla halda til Svíþjóðar um mánaða- mótin þar sem þeir munu etja kappi í stærðfræði við frændur sína frá hin- um norrænu ríkjunum. Áður hafði lið- ið borið sigur úr býtum í landskeppni hér á landi og unnið sér þar með þátt- tökurétt á Norðurlandamótinu. í landskeppninni þurfti hópurinn að gera bekkjarverkefni og leysa stærð- fræðiþrautir. „Það eru átta þrautir lagðar fyrir í undanúrslitum og við fengum 38 stig af 40 þar. Svo eru fimm þrautir í úr- slitum þar sem þrjú lið keppa og þar unnum við með fjórum stigum. Þetta var mjög spennandi fram að síðustu dæmunum,“ segir Arnar Þór Sveins- son, einn fjórmenninganna. „Þema í þessu bekkjarverkefni í ár er stærðfræði og byggingar og áttum við að gera útreikninga sem tengdust byggingum," segir Arnar Þór. Hóp- urinn mátti sjálfur ráða hvers konar byggingar yrðu fyrir valinu. „Bekk- urinn okkar tók að sér að hanna tvö íþróttahús, annað þeirra var kassa- laga en hitt hálfkúlulaga og okkur fannst fróðlegt að vita hver munurinn væri á byggingar- og rekstrarkostnaði eftir því hvort það væri kassalaga eða hálfkúlulaga," segir hann. í keppn- inni i Svíþjóð þarf hópurinn að gera líkan að húsunum, skrifa skýrslu um framvindu verkefnisins og greina munnlega frá verkefninu. Þá þurfa nemendurnir einnig að leysa stærð- fræðiþrautir líkt og í keppninni hér heima. Arnar Þór segir að keppnin leggist vel í hópinn og þau séu mjög spennt fyrir því að fara út. „Ég vona bara að það gangi sem best. Ég gæti alveg trúað því að við myndum komast alla leið í peninga- sæti sem er fyrsta, annað og þriðja sætið," segir hann.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.