blaðið


blaðið - 23.05.2007, Qupperneq 4

blaðið - 23.05.2007, Qupperneq 4
 4 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 bla6ið INNLENT FÆÐINGARORLOF Fyrirmynd í Evrópu (slenska foreldra- og fæðingarorlofskerfið vakti sérstaka athygli á fundi félags- og jafnréttismála- ráðherra Evrópusambandsins og EFTA í Þýskalandi í síðustu viku. Um 90 prósent karla hafa nýtt sér fæðingarorlof á (slandi að meðaltali í 92 daga. SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ Samruni ógiltur Samkeppniseftirlitið hefur ógilt samruna Frumherja hf. og Aðalskoðunar hf. með vísan til samkeppnislaga. I janúar síðastliðnum keypti Frumherji hf. allt hlutafé Aðalskoðunar hf. Það er mat Samkeppniseftirlitsins að fyrirtækin séu í ein- okunarstöðu og að samruni þeirra hindri virka samkeppni. > Hlutfall kvenna 32 prósent I Jafnréttu, fréttablaði Jafnréttisstofu, kemur fram að hlutfall kvenna á Alþingi eftir kosningarnar er 32 prósent en karla 68 prósent. Hlutfall kvenna hækkaði úr 30 prósentum í 32 prósent frá kosning- unum 2003. Ein kona bættist við hópinn. Tólf ráðherrar í ríkisstjórninni sem fyrr: Ný ríkisstjórn íslands ■ Nýtt velferðarráðuneyti ■ Landbúnaðar- og sjávarútvegsmál sameinuð ■ Sturla Böðvarsson forseti Alþingis Geir Hilmar Haarde 56ára Forsætisráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 41 árs Menntamálaráðherra Árni Matthías Mathiesen 48 ára Fjármálaráðherra Bjöm Bjarnason 62 ára Dómsmálaráðherra Einar Kristinn Guðfinsson 51 árs Atvinnuvegaráðherra (landbunaöar- Sjávarúheosmðl) Guðlaugur Þór Þórðarson 39 ára Heilbrigðisráðherra Þórunn Sveinbjarnardóttir 41 árs Umhverfisráðherra Kristján Lúðvik Möller 53 ára Samgönguráðherra össur Skarphéðinsson 53 ára Iðnaöarráðherra ingibjörg Sólrún Gisladóttir 52 ára Utanríkisráðherra Jóhanna Sigurðardóttir 64 ára Velferðarráðherra (félags- og tryggingamál) Björgvin G. Sigurðsson 36 ára Viðskiptaráðherra Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Geir H. Haarde mun verða forsæt- isráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálft- stæðisflokks og Samfylkingar. Fjöldi ráðuneyta mun ekki brey tast og þau verða því áfram tólf. Flokk- arnir skipta ráðuneytunum bróður- lega á milli sín og því falla sex stólar í hvers hlut. Sjálfstæðisflokkurnn fær á ný heilbrigðisráðuneytið en Samfylkingin samgöngumál, og tryggingamál, sem verða auk félags- mála í nýju velferðarráðuneyti. Samfylking er nú að setjast í ríkisstjórn í fyrsta sinn frá því að flokkurinn var stofnaður. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, hafði lýst því yfir að jafnræðis myndi gæta í kynjaskiptingu ráðherra síns flokks og hún stóð við það. Auk hennar mun Þórunn Svein- bjarnardóttir verða umhverfisráð- herra og Jóhanna Sigurðardóttir verður ráðherra nýs velferðarmála- ráðuneytis. Það stendur á grunni gamla félagsmálaráðuneytisins en tekur einnig við tryggingamálum úr hendi heilbrigðisráðuneytisins. Jóhanna er ein tveggja ráðherra Samfylkingarinnar sem áður hefur gengt slíku embætti, en hún var fé- lagsmálaráðherra frá 1987 til 1994 og sat þá fyrir Alþýðuflokkinn. Iðnaðar- og viðskiptaráðuney tinu hefur verið skipt upp í tvö ráðuney ti. Össur Skarphéðinsson mun gegna embætti iðnaðarráðherra, en hann hefur áður setið sem ráð- herra umhverfismála á tíunda áratugnum. Björgvin G. Sigurðs- son mun síðan setjast í stól viðskiptaráðherra. Að lokum mun efsti maður Samfylking- arinnar í Norð- austurkjördæmi, Kristján Lúðvík Möller, verða nýr samgönguráðherra. Hjá Sjálfstæðisflokknum verður Geir H. Haarde áfram forsætisráðherra likt og fyrr sagði. Árni M. Mathiesen situr áfram í fjármálaráðuneytinu og Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, varaformaður flokksins, í menntamálaráðuneytinu. Einar K. Guðfinnsson verður sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra og Björn Bjarnason situr áfram sem dóms- og kirkjumálaráð- herra. Eini nýi ráðherra flokksins er Guðlaugur Þór Þórðarson sem mun sétjast í stól heilbrigð- isráðherra. SturlaBöðvars- son verður for- seti Alþingis og Arnbjörg Sveins- dóttir mun áfram gegna stöðu þingfíokks- formanns Sjálf- stæðisflokksins. Ákærður fyrir morðið á Alexander Litvinenko: Lugovoi verður ekki framseldur Rússnesk stjórnvöld ætla ekki að verða við beiðni breska ríkissak- sóknaraembættisins um að fram- selja kaupsýslumanninn og fyrrum KGB-njósnarann Andrei Lugovoi. Embættið tilkynnti í gær að það hyggist gefa út morðákæru á hendur Lugovoi. Hann er grunaður um að hafa eitrað fyrir fyrrum njósnar- anum Alexander Litvinenko. Margaret Beckett, utanríkisráð- herra Bretlands, kallaði 1 gær eftir skil- yrðislausri samvinnu við rússnesk yfirvöld vegna málsins, en ríkissak- sóknaraembættið í Rússlandi sagði það ekki í samræmi við lög að fram- selja rússneska þegna til erlendra ríkja. Málið hefur haft mikil áhrif á samskipti Bretlands og Rússlands. Litvinenko lést á sjúkrahúsi í London í nóvember í fyrra. Hann hafði fengið pólitískt hæli í Bret- landi árið 2000, en hann var harður gagnrýnandiVladimírsPútínsRúss- landsforseta. Vinir Litvinenkos hafa haldið því staðfastlega fram að stjórnvöld í Kreml hafi fyrirskipað morðið, en þau þvertaka fyrir það. Lugovoi hitti Litvinenko skömmu áður en sá síðarnefndi veiktist. Logo- voi var sjálfur lagður inn á sjúkra- hús í Moskvu vegna gruns um pólo- neitrun. Breska lögreglan yfirheyrði hann sem vitni í desember. Lugovoi, sem einnig er fyrrum njósnari hjá KGB, hefur neitað allri sök. Eitrið sem dró Litvinenko til dauða var pólon 210. Leifar ef efn- inu hafa fundist víða í tengslum við rannsóknina, í Moskvu, Hamborg Njósnaspil Andrei Lugovoi (t.v.) mun verða ákærður fyrir morðið á Alexander Litvinenko (t.h.). Báðir hafa þeir starfaö sem njósnarar fyrir rússnesku leyniþjónustuna. og á nokkrum stöðum í London sem vitað er að Litvinenko hafði sótt. Þá hafa nöfn þriggja annarra fyrrum KGB-njósnara dregist inn (málið, en aðeins Lugovoi verður ákærður.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.