blaðið - 23.05.2007, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007
blaöið
Þingmaöur veldur reiði
ítalski þingmaðurinn Mario Landolfi olli miklum
úlfaþyt í heimalandinu er hann fór fram á að rík-
isrekna sjónvarpsstöðin Rai stöðvaði sýningar
á umdeildri heimildarmynd. Myndin fjallar um
kynferðisbrot kaþólskra presta gegn börnum.
Hálf ríkisstjórnin til Ameríku
Fjöldi háttsettra kínverskra ráðamanna hélt í gær til
Bandaríkjanna til viðræðna við bandarísk stjórnvöld um
samvinnu á sviði viðskipta og efnahagsmála. Kínverjar
binda miklar vonir við viðræðurnar og voru 16 ráðherrar
með í för, sem er nærri helmingur ríkisstjórnarinnar.
JAPAN
Háskóli lokaður vegna mislinga
Forráðamenn Waseda-háskóla í Tókýó hafa ákveðið að fresta
allri kennslu til 29. maí vegna mislingafaraldurs. Um 30
manns hafa veikst á undanförnum dögum. Waseda er einn
stærsti einkarekni háskóli í Japan og mega 57 þúsund nem-
endur skólans ekki stíga fæti inn á skólasvæðið á meðan.
Guðni Agústsson að verða formaður Framsóknarflokksins:
Jón Sigurðsson
mun hætta í júní
■ Miðstjórnarfundur haldinn á næstunni ■ Jón segir þetta ýkjur.en ekki lygi
Vestfirðir:
Fundað um
Olíuhreinsistöð
Fulltrúar frá sveitarfélög-
unum á Vestfjarðakjálkanum
sátu kynningarfund um
mögulega olíuhreinsistöð á
Vestfjörðum.
Þeim var kynnt sú áhætta sem
kann að fylgja slíkri starfsemi
og hvaða flutningsmöguleikar
séu fyrir hendi.
Einnig var rætt um umhverfis-
mat, staðarval og hagræn áhrif
framkvæmdanna.
Frá ritstjórn
Vegna fréttar í Blaðinu í gær
um að rífa eigi Hótel Akureyri
og byggja stærra hús á lóðinni
skal áréttað að bæði frétt og
mynd vísuðu til húss við Hafn-
arstræti 98 sem eitt sinn gekk
undir nafninu Hótel Akureyri.
Það hús er í göngugötunni á
Akureyri.
Samnefnt hótel, sem er í
fullum rekstri í dag, stendur
raunar við sömu götu, eða Hafn-
arstræti 67, og gæti það hafa
valdið misskilningi.
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
Jón Sigurðsson lætur af embætti
formanns Framsóknarflokksins á
næstu vikum.
Samkvæmt heimildum Blaðs-
ins er öruggt að hann hættir sem
formaður á miðstjórnarfundi sem
verður haldinn fyrstu eða aðra helg-
ina í júní. Guðni Ágústsson mun þá
taka við formannsembættinu. Lík-
legast þykir að Guðni gegni þeirri
stöðu fram að næsta flokksþingi,
sem haldið verður 2009.
Miðstjórn flokksins getur kosið
nýjan varaformann við þessar að-
stæður en þó getur farið svo að slíkt
verði ekki gert. Þá mun enginn vara-
formaður vera starfandi fyrir flokk-
inn fram að næsta flokksþingi. Mið-
stjórnarfulltrúar geta þó farið fram
á að aukaflokksþing verði haldið
á þessu ári en heimildir Blaðsins
herma að ólíklegt sé að slík krafa
komi fram.
Jón Sigurðsson sagði sjálfur að
þetta væri ekki tímabær umræða
og að hann hefði ekki hugmynd um
hvaðan þessar fregnir kæmu. „Þetta
eru allt saman ýkjusögur og ekkert
af þessu er tímabært. Ég er vel á
lífi og alls ekki dauður enn. Hvort
það er yfirvofandi atvinnuleysi
fréttamanna eftir að kosningarnar
eru búnar og búið er að mynda rík-
isstjórn sem veldur þessu skal ég
ekki fullyrða neitt um. En það er
greinilegt að það er verið að fylla í
einhverjar eyður. Þær eru venjulega
fylltar út með einhverri vitleysu.
Það er bara ekki tímabært að ræða
um þetta. Það eru alltaf framsóknar-
menn sem ráða því hverjir það eru
sem gegna trúnaðarstörfum.“ Jón
staðfesti þó að miðstjórnarfundur
væri í undirbúningi og yrði væntan-
lega haldinn snemma í júní.
Dægurmálaþátturinn ísland í
dag hélt því fram í gær að Jón væri
að hætta. Steingrímur Sævarr Ólafs-
son, ritstjóri þáttarins, segist standa
við fréttina og treysta sínum heim-
ildum fullkomlega. Þegar Jón var
spurður hvort Steingrímur væri
beinlínis að ljúga svaraði hann því
neitandi. „Ég er bara að segja það að
þetta eru ekki fréttir og ég veit ekk-
ert hvaðan þær eru komnar. En ég er
ekkert að segja að neinn sé að ljúga.“
Jón hefur setið sem formaður Fram-
sóknarflokksins í rúma níu mánuði.
Hann kom mjög skyndilega inn á
hinn pólitíska vettvang í júní í fyrra
þegar hann var gerður að iðnaðar- og
viðskiptaráðherra eftir að Halldór Ás-
grímsson hætti sem forsætisráðherra.
Þá var einnig boðaður miðstjórnar-
fundur til að fara yfir slæma útreið
flokksins í sveitarstjórnarkosning-
unum síðastliðið vor. Á þeim fundi
var ákveðið að kalla til aukaflokks-
þings strax um haustið til að kjósa
nýja forystu. Aðdragandinn er því
keimlíkur því sem nú er að gerast.
Jón var síðan kjörinn formaður Fram-
sóknarflokksins á aukaflokksþinginu
sem haldið var 19. ágúst 2006.
Jón Sigurðsson Læturaf
embætti formanns Fram-
sóknarflokksins. Líklegast
er að það gerist í byrjun júní.
EIGNAMIÐLUN
Sverrir Krisinsson,
löggilcur Fasteignasali
Sími 588 9090
MIÐBORG
fasteignasala
Björn Þorri Viktorsson,
löggiltur Fasteignasali
Sími 533 4800
Fullkomin
umgjörð
umþaðsem
máli skiptir
URRIÐAHOLT
í hönnun og skipulagi Urriðaholts er aðeins einn
miðpunktur: manneskjan og umhverFi hennar Frá
upphaf i verður hlúð að viðkvœmu sambandi byggðar og
náttúru. Hönnun hverfisins miðast við að skapa sem best
skjól án þess að spilla útsýni. Gerðar eru miklar kröfur
í skipulagi til að tryggja hagsmuni heildarinnar.
Frestur til að skila inn tilboðum í lóðir í Urriðaholti
rennur út 24. maí. Hœgt er að nálgast tilboðsgögn
á www.urridaholt.is og hjá fasteignasölunum
Eignamiðlun og Miðborg.
Þúátt
heimahér
www.urridaholt.is
Náin tengsl við náttúru svœðisins - Stutt í utivistarperlur - SamFélagsvœnt skipulag - Góðir skólar - Fjölbreytt íbúðagerð Fyrir alla aldurshópa
Einbýlishús - Raðhús - Fjölbýlishús - Nálœgt helstu umFerðarœðum - UmhverFisvœnar skipulagslausnir - Barnvœnt hverFi - LiFandi byggðakjarni
við torg - Grœnir geirar og göngustigar - Sólrík og skjólsœl byggð i suðvesturhlíð