blaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 19

blaðið - 23.05.2007, Blaðsíða 19
blaðiö heimili & heimili@bladid.net X 5 j r MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 2007 27 Sumarið er timinn Flestir eyða meiri tíma úti en inni á sumrin. Þrátt fyrir það er nauðsyniegt að hafa sumar- legt heima við sem má gera með því að fylla húsið af fallegum og litríkum blómum. Sumarlegt Það er tilvalið að hressa aðeins upp á svalirnar eða garðinn í byrjun sumars, svo skemmtilegra sé að eyða tíma þar. Oft þarf ekki meira til en nokkur falleg sumarblóm og falleg garðhúsgögn. Uppáhaldshlutur minn? Kaffivélin vinsæl enda mikil kaffikona Þórunn Högnadóttir, ritstjóri Innlits/útlits, segir að það sé um margt að velja þegar hún er innt eftir því hver sé uppáhalds- hluturinn hennar. „Það eru svo margir hlutir sem eru í uppáhaldi en ætli ég tilnefni ekki nýju kaffivélina mína frá Eirvík. Það er um mánuður síð- an ég keypti hana og hún er það nýjasta á heimilinu. Þetta er mjög sniðug kaffivél því það eru lítil kaffi- hylki sem fylgja henni og því ekkert korkvesen. Kaffihylkin eru sett í vélina en þau má fá í alls kyns styrk- leika. Kaffivélin verður því aldrei subbuleg, er hrikalega flott og kaff- ið er æðislegt.“ Heimiliðer umgjörð fjölskyldunnar Þórunn segist vera mikil kaffi- kona og því sé kaffivélin henni mik- ilvæg. „Eg get eiginlega ekki byrjað að vinna fyrr en ég fæ kaffið mitt en ég fer í Kaffitár í Kringlunni á hverjum einasta morgni. Ég fæ mér líka kaffibolla fyrir eða eftir mat og það er einmitt hæfileg stærð af kaffi- bolla sem ég fæ úr nýju vélinni, lít- ill og ljúffengur,“ segir Þórunn sem segir að heimilið sé sér mikils virði. „Heimilið er umgjörðin utan um fjöl- skylduna okkar og okkar samastað- ur þar sem við eyðum tíma saman. Það er nauðsynlegt að eiga þægilegt og gott heimili. Eldhúsið og stofan eru í miklu uppáhaldi hjá mér því þar erum við öll fjölskyldan saman og eyðum mestum tíma.“ Alltaf í vorhreingerningu Þórunn er komin í sumarskap en hún segist alltaf gera vorhreingern- ingu fyrir sumarið. „Reyndar stend ég í breytingum heima hjá mér um þessar mundir en samt sem áður er allt hreint enda tek ég alltaf vor- hreingerningu. Auk þess flikkar maður upp á svalirnar og setur þær í sumarlegan búning.“ Þórunn Högnadóttir „Það eru svo margir hlutir sem eru í uppá- haldi en ætli ég tilnefni ekki nýju kaffivélina mína frá Eirvík." Blaðið/Eyþór Dýrindisgarður Það eru ekki allir svo heppnir að eiga rúmgóðan og fallegan garð fyrir aftan hús þó marga dreymi um það. Hins vegar eiga flestir einhvers konar athvarf úti við, hvort sem það eru litlar svalir eða lítið graslendi. Með skipulagningu, ímyndunarafli og vinnu má breyta þessu litla plássi í dýrindisgarð, þó lítill sé. Pláss er ekki endilega það sem skiptir mestu máli heldur frekar það sem er í garðinum. Með því að velja lítil og nett húsgögn myndast til dæmis meira pláss til að leyfa ímyndunaraflinu að njóta sín. Pað er alltaf fallegt og sum- arlegt að vera með fallega tjörn í garði en fáir hafa pláss fyrir slíkt. Á meðfylgjandi mynd má sjá hvernig hægt er að búa til litla og myndar- lega tjörn sem tekur nær ekkert pláss. xli ' * xiii" 1 : ii"”' i iuu 'ý ÍuIÍÍU' »■>»>•■ i llíJJU , ii IU!»; IIIUII *; juiiu1': iiiiiiiu, JUIIJIU. FREELANDER 2 SPORT NYR FREELANDER 2 SPORT kr. 4.540.000 INNIFALIÐ í NYJUM FREELANDER 2 SPORT: Leðurinnrétting, hiti í sætum, rafmagn i framsætum, leðurstýri, sjálfvirk loftkæling fyr- ir ökumann og farþega, aðgerðarstýri með skriðstillir, regnskynjari, 755 Itr farangursrými, CD spilari, 6 þrepa sjálfskipting, Terrain Response™ aldrifskerfi, 5 stjörnur frá NCAP, 7 loftpúðar ,aftengjanlegur loftpúði fyrir farþegasæti og 17" álfelgur. Turbo Dísel 2,2 Itr vél 160 hö með 400 Nm tog, eldsneytisnotkun í blönduðum akstri 8.5 ltr/100 km. Þriggja ára ábyrgö. Verð kr. 4.540.000 BBL • Grjóthálsi 1 • 110 Reykjavík • Sími 575 1200 • www.landrover.is LAND* -ROVER GO BEYOND Meö bilinn handa þér

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.