blaðið


blaðið - 23.05.2007, Qupperneq 20

blaðið - 23.05.2007, Qupperneq 20
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 23. MAI 2007 41 ÁRS gamlir knattspyrnumenn leika enn meö félagsliðum i heiminum en líkur eru á að fækki um helming í hópnum eftir sumarið par sem Teddy Sheringham og Costacurta munu líklegast báðir hætta. SIGRAR eru undir belti Finnans Marcus Grönholm í heimsmeistarakeppninni í rallakstri eftir helgina. Sigraði hann örugglega í Sardiníurallinu og er orðinn efstur í keppni ökumanna. ithrottir@bladid.nel Míðmmm - 7 r* ■ Tilfinningarnar fóru alveg með Arjen Robben umhelginaogvar hann gráti næst þegar Mourinho faðmaði hann eftir sigurleik Chelsea í bikarnum. Robben segir slíkan stuðning þess valdandi að hann hyggist vera áfram í herbúðum félagsins næsta vetur hið minnsta. 'raðbrautarslys! Þannigkomst .Javier Aguirre, þjálfari Atletico Madr- id, að orði eftir 6-o stór tap gegn Barcelona um helgina. Barca hefur átt rysjóttu gengi að fagna upp á síðkastið og Atletico er með sterkan hóp og fyrirfram var búist við jöfnum leik. En ekki reyndist það raunin. Aguirre segir einsdæmi að Hð hafi tapað jöfhum leik með slíkum mun. WKBU&mít Urslitaleikurinn í Meistaradeild Evrópu 2007 fer fram í Aþenu í kvöld: Deja vu á nýjan leik? ■ ítalimir í hefndarhug ■ Sækja skal frá fyrstu mínútu ■ Hreyfist ekki blóðið í Benítez t t t Pepe Reina Álvaro Arbeloa Daniel Agger John Arne Riise Steven Gerrard Xavi Alonso Craig Bellamy Dirk Kuyt LÍKLEG BYRJUNARLIÐ t t t Javier Mascherano __ tjamie Carragher TfT Boudewijn Zenden * t t t Dida Paolo Maldini Gennaro Gattuso Clarence Seedorf Alberto Giiardino Alessandro Nesta Marek Jankulovski Andrea Pirlo Kaká Massimo Ambrosini Massimo Oddo t t t t STÆRSTI LEIKUR ÁRSINS LIVERPÖOL - AC MILAN MIÐVIKUDAGINN 23. MAÍ WWW.OeTRAUNm.IS ÚRSLITALEIKURINN í MEISTARADEILD EVRÓPU er alltaf stórviðburður, en þessi verður örugglega sérstakur. Síðasti úrslitaleikur þessara liða var einhver sá drama- tískasti í manna minnum. Enginn vill missa at þessum. teikurinn er að sjálfsögðu á Lengjunni. Þú getur líka aukið spennuna enn meira og tekið Sénsinn og tippað í beinni. Spólum til baka. Hálfleikur f úr- slitunum fyrir tveimur árum og urr- andi gleðistemning í herbúðum AC Milan og meðal stuðningsmanna á pöllunum og heima á Ítalíu. Berl- usconi veitti rándýrt kampavín hverjum sem vildi. Lið hans yfir með þremur mörkum eftir 45 mín- útur og í huga hvers einasta stuðn- ingsmanns liðsins búið að jarðsetja Englendingana. Knattspyrnuáhugamenn vita mætavel hvað gerðist næst þegar leikmenn Liverpool sýndu einhvern mesta karakter seinni tíma í knatt- spyrnuleik og jöfnuðu metin og höfðu svo betur í vítakeppni. Þetta svíður ítölum enn og fjölmiðlar þarlendir kalla eftir hefndaraðgerðum og ensku blóði. AC Milan skal vinna þennan leik helst sem stærst og hefna þannig fyrir niðurlæginguna 2005. Og nákvæmlega eins og fyrir hinn leikinn þá er lið Milan talið sig- urstranglegra af veðbönkum þó minna muni nú en þá. Báðir þjálfarar liðanna eru var- kárir í yfirlýsingum sínum fyrir leikinn. Þó er ljóst að leikmenn Milan meta það svo að Liverpool sé hættulegra lið en Manchester United. Paolo Maldini varar við bjartsýni. Lið Milan nú sé engu betra en liðið sem tapaði fyrir tveimur árum meðan hópur Li- ANDSTÆÐINGARNIR: AC Milan #3” 4. sæti á (talíu Liverpool : 3. sæti í Englandi STIKLAÐ Á STÓRU: ■ Bæöi lið hafa tapað þremur leikjum i Meistaradeildinni í vetur. ■ Paolo Maldinl leikur sinn áttunda úrslita leik í Meistaradeildinni. ■ Clarence Seedorf getur orðið fyrsti leik maöurinn til að vinna fjórum sinnum. ■ Jermaine Pennant er leikjahæstur Liverpool í vetur með 49 leiki. ■ Clarence Seedorf toppar leikjafölda vetrarins hjá Milan með 49 leiki. ■ Liverpool hefur aldrei unnið leik þegar dómarinn Fandel hefur dæmt. verpool hefur styrkst talsvert frá þeim tíma. Hjá Milan eru enn átta leikmenn sem komu við sögu í Ist- anbul 2005 og níu hjá Liverpool. Engin teljandi meiðsl hrjá leik- menn en nokkuð óvíst er hvernig liðin verða skipuð. Báðir þjálfarar eru þekktir fyrir að breyta liðum sínum nokkuð ört þessa leiktíð- ina og munu fikta áfram fyrir leik- inn í kvöld. Þessi lið hafa aðeins einu sinni mæst áður og það var í úrslita- leiknum fyrir tveimur árum. SAMANLOGÐ TOLFRÆÐII KEPPNINNI: Liverpool AC Milan Með boltann 48% 51% skot á mörk 73 78 mörk á sig 8 9 mork . Steven Gerrard Hættulegastí leikmaður líðsms en aöe.ns þegar og ef hann finnur sig. Á köflum I vet- ur hefur hann verið fastur í meðalmennsku og um.leið hikstar liðið allt. Var stórkost- legur i seinni hálfleiknum 2005 og þarf að endurtaka þann leik i 90 mínútur nú. Stendur sig best 1 stærstu leikjunum og líklegt að hann endurtaki þann leik nú. Markahæstur i Meistaradeildinm og eng- um þjálfara eða leik'manni hefur enn tekist að stððva hann svo vel sé i vetur. Eilit ógn og dreymir um bikarinn sem í boöi er.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.