blaðið - 25.05.2007, Side 1
Ætlar í forvörn
Guðlaugur Þór Þórðarson settist
í stól heilbrigðisráðherra í gær
og kvíðir því ekki. Hann
segir að fjölmörg verkefni
séu framundan svo og
forvarnarstarf.
Mannrán í Reykjavík
^ Margrét Jónasdóttir gerði heim-
» ildarmynd um sjómennsku í
K; kringum 1960 en þá tíðkaðist
R að hirða menn upp af götum
1 borgarinnar og flytja um borð
m ítogara.
Utlitsdýrkun
Margrét Kristín Pétursdóttir
lærði förðun í Hollywood og
það kom henni á óvart
hversu gríðarleg útlits- |
dýrkun er þar í borg og j
miklu eytt í snyrtingu.
VIÐTAL
ORÐLAUS»
96. tölublað 3. árgangur
föstudagur
25. maí 2007
Starfsmenn Istaks á Grundartanga sendir burt vegna mengunar:
Verkjar bæði í
maga og háls
■ Hafa kvartað síðan í janúar ■ Brennisteinsmengun innan marka
Ný stjórn tók við
stjórnartaumunum
Ráðherrar í fráfarandi ríkisstjórn Fram-
sóknarflokksins og Sjáflstæðisflokksins
gengu til síðasta ríkisráðsfundar að
Bessastöðum fyrir hádegi í gær. Á
honum leysti forseti (slands þá frá
völdum.
(framhaldinu hélt forsetinn annan
ríkisráðsfund þar sem hann eftirlét Sam-
fylkingu og Sjálfstæðisflokki völdin.
FRÉTTIR » 6
Aftur unnið í
Grímseyjarferju
Vinna hófst að nýju um síðustu helgi við
endurbætur á notuðu írsku ferjunni sem
sigla á milli Grímseyjar og lands. Verkið
hafði verið stöðvað vegna ágreinings um
kostnað. Samningaviðræður standa nú
yfir milli Vegagerðarinnar og Ríkiskaupa
annars vegar og Vélsmiðju Orms og
Víglundar hins vegar. Stefnt er að því að
Ijúka samningaviðræðum eigi síðar en
um miðja næstu viku.
FRÉTTIR » 2
Hvar gáfu stjórnar-
flokkarnir afslátt?
Ný ríkisstjórn kynnti nýlega stefnuyfir-
lýsingu sína með viðhöfn á Þingvöllum.
Blaðið ber saman kosningastefnur
þeirra og stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkis-
stjórnar. (hvaða málum gáfu þeir afslátt
og hvar gáfu þeir raunverulega eftir?
FRÉTTIR » 8-9
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Starfsmenn ístaks sem vinna við
stækkun járnblendiverksmiðjunnar
á Grundartanga voru sendir afvinnu-
svæðinu vegna mengunar í gær. Voru
þeir sendir til að vinna að stækkun
álversins á Grundartanga í staðinh
og sögðu að loftið í kringum álverið
væri svo miklu betra að engu væri lík-
ara en að til himnaríkis væri komið.
Um 15 starfsmenn hafa orðið fyrir
óþægindum vegna mengunarinnar
frá verksmiðjunni og hafa kvartað
vegna þessa síðan í janúar án þess að
hafa orðið varir við viðbrögð. Undr-
ast þeir að aðilar frá hinu opinbera
skuli ekki kanna málið.
„í ákveðnum vindáttum höfum
við fundið fyrir óþægindum eins
og sviða í hálsi og magaverk. Við
höfum kvartað margoft yfir meng-
uninni og erum búnir að fá nóg af
því að ekki skuli vera tekið mark
á þvísegir Sigurbergur Pálsson,
starfsmaður Istaks. Sigurbergur
segir einhverjar mælingar hafa
verið gerðar, en vill sjá að óháðir
aðilar kanni málið. „Hjá Járnblendi-
félaginu svara menn því bara til að
verksmiðjan hafi verið opin í ára-
tugi án þess að nokkur vandræði
hafi komið upp vegna mengunar.
En ég vann hér fyrir tæpum áratug
og þetta hefur versnað mikið síðan.“
Ingimundur Birnir, forstjóri Is-
lenska járnblendifélagsins, segir að
félagið hafi brugðist við með því að
mæla brennisteinsmengun þegar
kvartanir berast. „Enn hefur ekki
mælst það magn brennisteins í and-
rúmslofti sem talið er að hafi áhrif
á líðan og heilsu fólks. Hins vegar
verður tekið tillit til óþæginda starfs-
manna og ef menn þurfa að gera hlé
á vinnu sinni gera þeir það.“ Ingi-
mundur segir að önnur mengun
sem berist frá verksmiðjunni sé það
lítil að hún ætti ekki að hafa áhrif á
heilsu starfsmanna.
NordicPhoto/Getty
Þrír með þverslaufu
Leikaramir Matt Damon, George Clooney og Brad Pitt mættu á frumsýningu þriðju Ocean’s-myndarinnar í Cannes í gær. Myndin,
sem leikstýrt er af Steven Soderbergh, heitir Ocean’s Thirteen. Fyrri myndirnar tvær skiluðu rúmlega 50 milljörðum króna í tekjur.
ORÐLAUS » 36
Fá geitur
í stað bóta
(búar í þorpinu Independentiu í
Rúmeníu fá nú geitur í stað velferðar-
bóta. Uppátækið er tilraunaverkefni
í þorpinu og segir bæjarstjórinn að
það hafi mælst afar vel fyrir hjá
þorpsbúum. Verkefnið nær til 20
fjölskyldna en nú stendur til að veita
öllum þorpsbúum þessa þjónustu.
Hver fjölskylda fær tíu geitur og
nýtir þær sem tekjulind og til matar.
Hvorki má borða né selja geiturnar
og verður að greiða af þeim skatt,
þrjá kiðlinga á ári.
Ekki eru þó allir jafn sáttir því Rúm-
enar sem búsettir eru erlendis eru
æfir vegna þessa. Segja þeir að uppá-
tækið skaði ímynd landsins á alþjóða-
vettvangi. Rúmenar sem búsettir eru
í Bandaríkjunum segja að fjallað sé
um landið á niðurlægjandi hátt og
það oft uppnefnt Rúmenistan.
Verslun Krónur
Bónus 60
Krónan 61
Nettó 70
Melabúðin 99
Samkaup-Strax 95
11-11 129
Verð á Ritz saltkexi 200 g
Upplýsingar trá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
■H USD SALA 62,48 % 0,87 ▲
GBP 123,99 0,75 A
mmm DKK 11,26 0,46 A
m JPY 0,52 0,99 A
— EUR 83,90 0,44 A
GENGISVÍSITALA 113,92 0,62 A
ÚRVALSVÍSITALA 8.123,05 - 0,1 ▼
UEDRIÐ Í DAG
VEÐUR » 2