blaðið - 25.05.2007, Side 4

blaðið - 25.05.2007, Side 4
4 FðSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 blaöiö INNLENT ÞRÓUNARSAMVINNUSTOFNUN Ráðist á íslending í Malaví Starfsmenn Þróunarsamvinnustofnunar Islands hafa verið fluttir frá Monkey Bay í Malaví vegna árásar á íslenskan starfsmann þar. Yfirvöld hafa ekki hafa haft hendur í hári fjögurra sem réðust vopnaðir inn á heimili mannsins og rændu þaðan öllu verðmætu. KONUKOT Rekstur tryggður til áramóta Reykjavíkurdeild Rauða kross Islands og Reykjavíkurborg hafa endurnýjað samning um rekstur Konukots. Samn- ingurinn byggir á eldri samningi og gildir til ársloka 2007. Konukot er athvarf fyrir heimilislausar konur og hefur verið rekið frá árinu 2004. NORÐURLANDARÁÐ Nýr yfirmaður upplýsingadeildar Karin Arvidsson frá Svíþjóð hefur verið ráðin yfirmaður uþþlýsingadeildar Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherra- nefndarinnar í Kauþmannahöfn. Karin Arvidsson hefur reynslu sem fréttamaður, framleiðandi og þáttastjórnandi hjá sænska útvarþinu og sjónvarpinu. ísrael: Háttsettir Hamas liðar handteknir ísraelski herinn réðist í gær inn á heimili og skrifstofur rúmlega 30 háttsettra embættismanna í Hamas-samtökunum. Handtök- urnar eru liður í aðgerðum ísraela gegn samtökunum og segir herinn að embættismennirnir hafi stutt eldflaugaárás á ísrael. Meðal þeirra sem voru hand- teknir voru Nasser al-Shaer, menntamálaráðherra Palestínu, borgarstjórarnir í Nablus og Qalq- ilya og tveir þingmenn. Ráðherra upplýsingamála í Palestínu brást hart við handtökunum og kallaði þær fjöldamorð gegn palestínsku lýðræði. I gær gerði svo ísraelski her- inn árás á eina af bækistöðvum Hamas í Gaza-borg. Talmenn Hamas segja að enginn hafi látist í árásinni. Rúmlega 500 nemendur í bygginga- og mannvirkjagreinum: i i Iðnaðarmenn áfram fluttir inn á þenslutímum Bygginga- framkvæmdir í Norðlingaholti Kenía: Klósettferðir aldrei vinsælli Almenningsklósett í Nakuru, fjórðu stærstu borg Keníu, eru vinsæl sem aldrei fyrr. Ekki er um að kenna magakveisufaraldri eða öðru slíku, heldur reykingabanni sem komið var á fyrir skemmstu. Eftir að banninu var komið á hafa myndast langar biðraðir fyrir utan almenningssalerni í borg- inni, því þeir sem reykja á götu úti geta átt von á að verða sektaðir um tæpar 9 þúsund krónur. Verslunar- maður í Nakuru segir að sígarettu- sala hafi dregist stórlega saman, einkum vegna þess að fólk telur að sígarettur séu nú ólöglegar. Viðarkappar með kósum Tilvalið í eldhúsið • Margir litir Viðarfelli og rúllugardínur eftir máli S K R M I R Höfðabakka 9 • S 5 87 7470. skermir@simnet.is • w ww.skermir.is Vantar enn nema þrátt fyrir vöxt ■ Skólar halda vart í við eftirspurn ■ Skortur á framhaldsnámi Eftir Ingibjörgu B. Sveinsðóttur ingiþjorg@bladid.net Rúmlega 500 nemendur voru í bygginga- og mannvirkjagreinum á skólaárinu sem er að líða í Iðnskól- anum í Reykjavík, Iðnskólanum í Hafnarfirði, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti og Verkmenntaskól- anum á Akureyri eða jafnmargir og útskrifast á ári í viðskiptafræði frá háskólunum fjórum. Þótt nem- endur í byggingagreinum séu færri en í viðskiptafræði hefur aðsóknin farið vaxandi á síðustu árum í nán- ast allar byggingagreinar. Enn er eftirspurnin eftir iðnaðarmönnum meiri en framboðið. „Þótt við útskrifum marga iðnað- armenn á ári höldum við varla í við eftirspurnina þegar mikil þensla er eins og verið hefur núna. Þegar eitthvert eitt verk tekur til sín tugi ef ekki hundruð smiða þá verður að flytja iðnaðarmenn inn,“ segir Baldur Gíslason, skólameistari Iðn- skólans í Reykjavík. Hann segir að- sóknina mesta í húsasmíði innan byggingagreinanna. Áhuginn á múr- smíði og málaraiðn hefur einnig aukist talsvert að undanförnu. Baldur kallar eftir námsleiðum fyrir þá sem vilja bæta við sig námi. ,Það er skortur á námsleiðum á fag- háskólastigi fyrir þá sem vilja bæta við sig í sinni starfsmenntun. Við höfum lagt til að fá að setja á stofn þannig brautir, eins og til dæmis brautir tengdar hönnun og fram- leiðslu, sem eru rökrétt framhald fyrir okkar fólk. Þetta er ekki komið í gegn en er á einhverri leið.“ Veruleg fjölgun hefur orðið á síðustu árum í byggingagreinum í Verkmenntaskólanum á Akureyri, að sögn Garðars Lárussonar áfanga- stjóra. „Aðstaðan er betri hjá okkur en hún var auk þess sem nóg vinna er fyrir smiði.“ Hjá Fjölbrautaskól- anum í Breiðholti hefur nemendum i byggingagreinum fjölgað þó ekki hafi orðið sprenging, eins og Stefán Andrésson áfangastjóri orðar það. Jóhannes Einarsson, skólastjóri Iðnskólans í Hafnarfirði, segir að- sókn í byggingagreinar hafa auk- Skorturá námsleiðum ■f. ifi Baldur Gíslason, skólameistari. ist verulega frá því að ný námskrá tók gildi 2003 en samkvæmt henni ljúka nemendur sveinsprófi fyrir út- skrift og útskrifast þess vegna með réttindi. „Ég hef eiginlega meiri áhyggjur af málminum. Hingað koma nemar í vélaverkfræði til að læra á tölvustýrðar vélar eins og notaðar eru í hátæknifyrirtækjum því að við erum eini skólinn sem kennir þá tækni. En svo fara verk- fræðingarnir í það sem ég kalla peningaverkfræði, það er að segja bankana, vegna stærðfræðikunn- áttu sinnar.“ Fjármálageirinn hefur enn gríð- arlegt aðdráttarafl. Á skólaárinu sem er að líða voru nemendur í grunnnámi í viðskiptafræði í há- skólunum fjórum rúmlega 1800. Breiðavíkurheimilið: Sérfræðingar voru andvígir 1 bréfi frá sjötta áratugnum benti hópur sálfræðinga og uppeldisfræð- inga stjórnvöldum á ókosti Breiða- víkur sem uppeldisheimilis fyrir unglinga en heimilið var þá í und- irbúningi. Bentu sálfræðingarnir meðal annars á að staðurinn væri svo afskekktur að drengirnir hlytu að slitna úr tengslum við heimili sín og foreldra. I svari yfirvalda sagði að þetta væri ekki ókostur, heldur kostur. Þetta kemur fram í frétt Rík- isútvarpsins þar sem vísað er í fyrr- nefnd bréf. Sálfræðingarnir efuðust um að hæft fólk fengist til að starfa á heim- ilinu vegna fjarlægðarinnar frá þétt- býli. Þá yrði eftirlit erfiðara. Formaður framkvæmdanefndar- innar sem ætlað var að stofna og reka Breiðavíkurheimilið Yfirvöld töldu fjarlægðina kost. uppeldisheimilið, Gísli Jónsson alþing- ismaður, sagði í svari sínu til sálfræð- inganna að það væri ekki ókostur að drengirnir væru slitnir úr tengslum við heimili sín og foreldra, heldur undir mörgum kringumstæðum beinlínis nauðsynlegt til þess að ná góðum árangri með nýjum og holl- ari uppeldisaðferðum. Einnig væri ástæða til að hafa fullt eftirlit með því að samgöngur yrðu ekki misnotaðar af aðilum sem ekkert erindi ættu í Breiðavík og gætu torveldað þann ár- angur sem stefnt væri að.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.