blaðið - 25.05.2007, Side 10

blaðið - 25.05.2007, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 blaðið UTAN ÚR HEIMI KANADA Unglingur myrtur á skólalóð Lögreglan í Toronto leitar nú manns sem skaut 15 ára ungling til bana á skólalóð í Toronto I gær. Árásarmaðurinn og drengurinn höfðu rifist heiftarlega áður en skotið reið af. Byssuglæpum hefur fjölgað ört í Kanada undanfarið. Framin hafa verið 26 morð á árinu, þar af 13 með byssum. SRÍLANKA Tamíl-tígrar felldu 35 hermenn Uppreisnarmenn úr röðum Tamíl-tígra segjast hafa fellt 35 hermenn úr stjórnarher Srí Lanka í árás á flotahöfn hersins á Jaffna-skaga í norðurhluta lands- ins. Talsmaður hersins staðfesti að árásin hefði átt sér stað, en segir að innan við 10 hermenn hafi látist. LÍBANON C; Átök blossa upp á ný Enn er barist í Nahr al-Bared-flóttamannabúðunum í norðurhluta Libanons. Nokkuð margir uppreisnarmenn úr Fatah al-lslam-samtökunum reyndu að flýja búðirnar sjóleiðis, en líbanski stjórnarherinn leitaði þá uppi og felldi alla meö tölu. Skóverslun Kringlunni 8 -12 - S: 553 2888 ... Þegar þú vilt þægindi Vinsamlegast ath. Lokað vegna flutnings Opnum að Dvergshöfða 27 Lykillinn er að fjölga fagfólki Leikskólabörn í Reykjavík Mynd/Úmar Úskarsson 30. maí. Sími 5682878 Gsm: 895 8144 ________www.praxis.is lotto.ls Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net Foreldrar reykvlskra barna fæddra 2005 hafa fengið bréf þess efnis að ekki sé víst að þau fái öll leikskóla- pláss takist ekki að manna leik- skóla borgarinnar fyrir haustið. Skammtímalausnin felst í að að- stoða leikskólastjóra við ráðning- arferlið en ekki að hækka laun ófaglærðra, að sögn Þorbjargar Helgu Vigfúsdóttur, formanns leikskólaráðs. „Það stendur ekki til að hækka launin. Það er rúmt ár síðan það var gert og það skilaði sér ekki. Við þurfum að horfa á önnur mið áður en því verður breytt. Skamm- tímalausnin felst aðallega í aðstoð við leikskólastjórana við ráðning- arferlið. Það þarf að setja meiri tíma og hugsun í ráðningar til að starfsmannaveltan sé ekki svona mikil. Leikskólastjórarnir hafa nóg annað að gera,“ segir Þorbjörg sem er á ferð um Danmörku og Svíþjóð ásamt tveimur öðrum stjórnmálamönnum og fjórum embættismönnum til að kynna sér leikskólastarfsemi þar. Starfshópur, sem settur var á laggirnar nú í vetur í þvi skyni að leita leiða til að fjölga fagfólki í leikskólum, lauk störfum í síð- ustu viku. „Það voru tekin viðtöl Námskeið metin til iaunahækkunar ■m mi 1 " EI|V Erlingsdóttir, Y formaðurfræðsluráðs |' , " Hafnarfjarðar við mjög marga leikskólastjóra og þeir bentu á margt sem þarf að gera. Við erum að vinna úr því núna fyrir haustið. Lykillinn er að fjölga fagfólki en það er miklu minni starfsmannavelta meðal þess. Það þarf að bjóða þeim sem ekki eru með menntun upp á alls konar námsleiðir til að hljóta fag- menntun. Við erum búin að kalla alla til með stúdentspróf í leik- skólum Reykjavíkur og hvetja þá til að fara í nám og við mætum þeim sem ætla að fara að læra með styrkjum. Við munum jafnframt kynna námið í framhaldsskólum," greinir Þorbjörg frá. Samúel Órn Erlingsson, for- maður leikskólanefndar Kópavogs- bæjar, kveðst vongóður um að búið verði að manna það sem þarf á leikskólum bæjarins fyrir haustið. „Við stefnum að því að öll börn fædd 2005 fái pláss. Staðan núna er mjög góð og ég sé ekki fram á að við verðum i neinum vandræðum en það geta alltaf skollið á óveður.“ Aðspurður hvort þá kæmi til Launahækkun skilaðisér ekki Þorbjörg Helga Vigfús- dóttir, formaður leik- skólaráðs Reykjavíkur Alltkemur til greína Samúel Örn Erlingsson, formaður leikskóla- nefndar Kópavogs greina að hækka laun ófaglærðra segir hann: „Allt kemur til greina ef takast þarf á við slík vandamál." Ellý Erlingsdóttir, formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðarbæjar, segir að allt verði gert til að hægt verði að halda þeim áfanga sem náðist síðasta haust, það er að geta boðið öllum börnum 19 mánaða og eldri leikskólapláss. „Það hefur gengið misjafnlega vel að manna leikskólana og þá helst þessa nýj- ustu en við höfum gripið til ým- issa aðgerða. Við höfum boðið upp á námskeið og um daginn var sam- þykkt í fræðsluráði að bjóða ófag- lærðum upp á námskeið sem verða metin til sex launaflokka hækk- unar. Það eru ýmis ráð í gangi.“ Ný skýrsla um hvalveiðar: Gróðinn minni en tapið Reikna má með að ef 200 erlendir ferðamenn afbóka ferðir til Islands vegi það á móti tekjum sem fást af atvinnuveiðum á hval. Þetta kom fram í máli Þorsteins Siglaugssonar rekstrarhagfræðings er hann kynnti skýrslu sem hann vann fyrir Náttúru- verndarsamtök íslands og Interna- tional Fund for Animal Welfare. Þor- steinn ræddi við ýmsa forystumenn í íslensku viðskipalífi og er niður- staðan sem hann kynnir í skýrslunni sú að mögulegur tekjumissir vegna veiðanna sé of mikill til þess að fara ætti út í þær. Eins og reglum er háttað eru Nor- egur og Japan einu markaðirnir sem Islendingar gætu selt hval til. Reynsla af markaðssetningu á hvalkjöti í þessum löndum og á ís- lenskum markaði sýnir að „markað- urinn fyrir hvalkjöt [...] er lítill og fer líklega minnkandi“. Samkvæmt útreikningum hagfræðingsins leiðir 1 prósents fækkun ferðamanna frá löndum þar sem mikil andstaða er gegn hvalveiðum til meira þjóðhags- legs taps en sem nemur gróða af sölu á kjötinu. Vísindaveiðar Islendinga virðast ekki hafa haft mikil neikvæð efnahags- leg áhrif samkvæmt skýrsluhöfundi, en þó má finna vísbendingar um ein- hver áhrif, sér í lagi í ferðaiðnaði.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.