blaðið - 25.05.2007, Page 16

blaðið - 25.05.2007, Page 16
HEYRST HEFUR SAMKVÆMT nýrri Capacent fjölmiðlakönnun standa öll blöðin í stað miðað við meðallestur á tölu- blað frá því i síðustu könnun nema DV. Fréttablaðið er með 65,2%, Mogginn er með 43% Blaðið með 38,2% og DV rekur lestina með 5.1% lestur... capacent BLOGGARINN... Fullyrðingar Heimis Más ÞAÐ er misjafnt hvernig fólk tekur tapi og sigri í íþróttum. Þegar LA Lakers unnu NBA-deildina fyrir nokkrum árum brutust út óeirðir í borginni, sem er vel þekkt fyrirbæri í kjölfar slíkra úrslita þar vestra. Við tap Liverpool í Meistara- deildinni á miðvikudag brugðust nokkrir aðdáendur hér heima svo illa við að kalla þurfti lögreglu til. Einn þeirra gat ekki haldið áfram akstri og stoppaði á miðri götu, svo miður sín var hann. Því hlýtur að vakna spurn- ingin: Hvað ætli hefði gerst ef Liverpool hefði unnið...? BJÖRN Ingi Hrafnsson gagnrýnir fyrirkomulag stjórnarflokkanna um helmingaskipti á stól forseta Alþingis. Hann segir réttilega þann stól ekki heyra undir framkvæmd- arvaldið, í það embætti sé kosið af alþingismönnum. Einnig segir hann að Samfyikingin í stjórnar- andstöðu hefði nú sagt eitthvað við þessu. Björn virðist þó gleyma þvi að þetta er hefðin og vissulega verður kosið um stólinn. En stjórn- arflokkarnir eru jú með ríflegan meirihluta al- þingismanna á sínum snærum í þeim kosn- ingum... Tónleikar til heiðurs fallinni hetju: MyinJ/GudtmmihuRúnar . Franz Gunnarsson Mun sjálfur leika á gítar á tónleikunum Jeff Buckleys minnst Eftir Trausta Saivar Kristjánsson traustis@bladid.net Franz Gunnarsson stendur fyrir minningartónleikum um Jeff Buckley þann 29. maí næstkomandi í Austurbæ. Buckley lést með vo- veiflegum hætti árið 1997 er hann drukknaði í Mississippi-ánni í Bandaríkjunum. Franz stóð einnig fyrir slíkum tónleikum fyrir fimm árum, enda mikill aðdáandi tón- listar Buckleys. „Ég var að vinna í Skífunni árið 1994 og var að taka upp nýja send- ingu af geisladiskum. Þeirra á meðal var geislaplatan Grace, sem ég setti umsvifalaust á fóninn. Og það var eins og við manninn mælt, ég lá alveg kylliflatur fyrir þessum tónlistarmanni, varð andsetinn! Ég dreifði diskum með honum um allan bæ, gaf í partíum og öllum áhugasömum til að breiða út boð- skapinn,“ segir Franz sem er einnig gítarleikari í hljómsveitinni Ensími. Franz segir Buckley vera einn þeirra tónlistarmanna er fyrst urðu að stjörnum eftir andlát sitt. „Það má segja að hann hafi fallið í þá gryfju. Þegar hann gaf út Grace- plötuna, sem er hans eina hljóðvers- plata, hlaut hún mjög góða dóma hjá gagnrýnendum. Hins vegar fékk hún litla spilun á útvarpsstöðvum og dræma sölu í búðum. 1 kjölfarið fór hann í stóra hljómleikaferð um allan heim og þá fóru risar í rokkinu á borð við Robert Plant úr Led Zep- pelin, Bono í U2 og Bob Dylan að ausa hann lofi. Síðan féll hann frá og þá má segja að fólk hafi tekið við sér, en nú eru um þrjár milljónir eintaka seldar af Grace-plötunni.“ Franz hitti móður Buckleys ytra og fékk leyfi til tónleikahaldsins. „Við vorum að spila á tónlistarhá- tíð í Texas og móðir Buckleys var að „Við vorum að spila á tón- listartiátíð í Texas og móðir Buckleys var að vinna þar með samtökunum fíoad fíecovery, sem eru eins- konar AA-samtök fyrir tón- listarmenn sem lenthafa utan beinu brautarinnar. Ég rabbaði við hana um þá hugmynd mína að halda minningartónleika um son hennar og hún lagði blessun sína yfir það.“ vinna þar með samtökunum Road Recovery, sem eru einskonar AA- samtök fyrir tónlistarmenn sem lent hafa utan beinu brautarinnar. Ég rabbaði við hana um þá hugmynd mína að halda minningartónleika um son hennar og hún lagði blessun sína yfir það. Það er mikill hippa-fí- lingur í henni og hún vill öllum vel. Hún hafði áhuga á að koma sjálf til Islands en var því miður önnum kafin þar vestra enda stendur mikið til þar í tilefni af því að tíu ár eru liðin frá dauða Buckleys. Til stendur að gefa út plötu og kvikmynd og því nóg að gera hjá henni. Hún var bara aðallega hissa á hversu langt norður tónlist hans hefur náð! En fyrir vikið eru þessir tónleikar alveg ekta, við fáum að nota myndefni og slíkt sem aldrei hefur áður sést og mikill heiður að hafa fengið leyfi hennar.“ Franz hélt einnig minningartón- leika um Buckley fyrir fimm árum. „Þeir voru aðeins minni í sniðum. Þeir voru haldnir í Þjóðleikshúskjall- aranum en tókust mjög vel. Svo vel að það er búið að þrýsta á mig að halda slíka tónleika aftur, sem ég varð auðvitað við. En þessir eru mun stærri í sniðum og veglegri. Þeir eru haldnir í Austurbæ og með 11 manna hljómsveit auk söngvara og nokk- urra gestasöngvara. Þá verða einnig óvæntar uppákomur sem ég get ekki greint frá að svo stöddu, enda yrðu þær þá ekki óvæntar lengur! Við erum með traustan bakhjarl, Manzproduction, og er ætlunin að standa fyrir nokkrum minni uppá- komum næstu misserin, halda tón- leika kennda við tímabil og tónlist- arstefnur. Það er hins vegar óvist hvort svona Buckley-tónleikar verða haldnir aftur á mínum forsendum. Þetta er heilmikil vinná sem ég veit ekki hvort ég treysti mér í nema á 5- 10 ára fresti að minnsta kosti!“ segir Franz að lokum. Hægt er að nálgast upplýsingar um viðburðinn á slóðinni: myspace. com/manzproduction. „Heimir Már Pétursson, fyrrum vara- formannsframbjóðandi Samfylking- arinnar og fréttamaður, stóð vaktina á fundi flokks síns á Hótel Sögu í gærkvöldi. Eftir að hafa fengið að vita nýjustu ráðherraskipan flokksins fullyrti Heimir Már að nú væri það venjan að flokkar sem gengju til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn minnkuðu í kjölfarið. f framhaldi af þvíspurði hann formann sinn hvort hún hefði engar áhyggjur af þessu. Mér þætti gaman að sjá hvaða tölur Heimir Már hefuryfir þetta. Er hægt að fullyrða svona án þess að bakka það upp frekar? Er hægt að halda þessu fram sem kenningu? I kjöl- farið mun Heimir Már liklega skoða hvað varð til þess að Framsókn kom líka illa út úr borgar- stjórnarkosningum í fyrra - eftir 72 ára samstarf við flokka á borð við Sam- ■g fylkinguna Gísli Freyr Valdórsson gislifreyr.blog.is Valgerður til vara „Það ereðlilegt að Valgerður Sverris- dóttir sé hvött til þess að gefa kost á sér til varaformennsku í Framsóknar- flokknum.f...] Hitt er hins vegar Ijóst, að Valgerður væri aðeins biðleikur i stöðunni á meðan verið væri að leita að framtíðarforystufólki, það er Guðni sömuleiðis. Það þaii því ekki að undra að Björn Ingi hvetji Val- gerði til að taka að sér emþættið, enda honum varla íhag «5 að „framtíðarmaöur , j setjist i embættið að W svostöddu." G. Tómas Gunnarsson 49beaverbrook.blog.is Lalli lánsami „Eftir síðustu helgi hætti Öryggismið- stöð Islands að birta auglýsingar þar sem ólánsmaðurinn Lalli Johns var látinn segja frá innbrotum. Burtséð frá þvíað Lalli hefur vafalaust verið glaður að fá þessa aura sem honum voru réttir fyrirað taka þátt íþessum auglýsingum, þá fannst mér áróður- inn gegn auglýsingunni óþarfa við- kvæmni. Þá hefur birting þessara auglýsinga vafalítið kitlað hégómagirnd hans auk þess að bjarga honum É um smávegis skotsilfur." m Anna Kristjánsdóttir velstyran.blog.is 16 FÖSTUDAGUR 25. MAI 2007 folk@bladid.net HVAÐ Muntu sækjast eftir rjúpnaklónni FUVJNST á kippuna að Arnarhvoli? [J L-I IJ f „Ég mun sveima eins og fálki yfir þeim ráðherra sem hana geymir nú þangað JL 1—1IV • til hún afhendist sínum fyrri eiganda." blaöiö Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra I gær tóku nýir ráðherrar við lyklavöldum að ráöuneytum sínum. Þeina á meðal var Þómnn Sveinbjamardóttir umhverfisráðherra, en á lyklakippu forvera hennar, Jón- inu Bjartmarz, var forláta rjúpnakló sem komist hafði á kippuna í ráðhenatíð Össurar Skarphéðinssonar. Su doku 6 5 9 2 4 7 2 1 8 3 1 5 2 7 2 4 6 9 1 8 7 4 1 3 2 3 6 1 7 6 3 8 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. Maginn minn á mjög erfitt með að venjast góða matnum hérna.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.