blaðið - 25.05.2007, Page 26

blaðið - 25.05.2007, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 blaðið bílar Staðan í Formúlu 1 Sæti Nafn Lið Stig (síðast) 1 Lewis Hamilton McLaren 30 (8) 2 Fernando Alonso McLaren 28 (6) 3 Felipe Massa Ferrari 27 (10) 4 kimi Raikkönen Ferrari 22 (0) 5 Nick Heidfeld BMW 15 (0) Tvinnbílar missa stig Umhverfisráöuneyti Bandaríkjanna mun á næstunni breyta reglum um hvernig meðaleyðsla bifreiða er reiknuð út. Ótt- ast er að tvinnbílar komi mjög illa út úr þeirri breytingu. • Samkvæmt gömlu reikniaðferöinni voru bílarnir látnir ganga mikinn hægagang, sem gerði tvinn- bílum kleitt að drepa á bensínvélum sínum • Mest seldu tvinnbílarnir í dag eru Toyota Prius og Honda Civic Hybrid • Við eyðslutölur þeirra mun bætast um 1,5 lítri á hundrað kílómetra Enginn knastás? (bílskúmum er nú mikið talað um nýja hugmynd til að minnka eldsneytisnotkun bifreiða. Vísindamenn trúa því að með því að stýra ventlum með rafstýrðu kerfi, í stað venjulegs tímareimar eða -keðjukerfis, sé hægt að minnka eldsneyti- snotkun og mengun véla til muna. • I dag er knastásinn beintengdur sveifarásinum með tímakeðju eða -reim • Knastásinn stýrir ventlalokunum og -opnunum • Ventlarnir hleypa lofti og bensingufu inn i sprengihólfin og sóti og lofti út í pústið eftir sprengingu • Sveifarásinn er tengdur bullunum sem þjappa bensfnblönduðu lofti í sprengihólfunum fyrir sprengingu Wýr Freelander Um síðustu helgi var frumsýndur hér á landi splunkunýr Freelander 2 frá Land Rover. Orðið í bílskúrnum hermir að bíll- inn sé sennilega sá flottasti sem Land Rover býður upp á dag. 999 gerði BMW nokkuð sem fáir áttu von á að endaði vel; þeir settu á markað sinn fyrsta sportjeppa, X5. Fyrir þá sem efuðust og töldu að BMW ætti bara að halda sig við fólksbíla, kom bíllinn þægilega á óvart og varð fljótt mjög vinsæll. Þegar leið á fram- leiðsluna heyrðust þó raddir um að bíllinn mætti vera aðeins stærri, jafn- vel sjö manna í staðinn fyrir fimm, og að fjöðrunin væri helst til of stíf fyrir jeppa. Og af því að hjá BMW er þýsk fullkomnunarárátta í hávegum höfð var nýr X5 kynntur á þessu ári með stærri yfirbyggingu og grunnplötu, stærri vélum, nýrri fjöðrun og þriðju sætaröðinni sem aukabúnaði. Kíkj- um á ann. Að utan Nýr X5 er ekkert brjálæðislega ólík- ur þeim gamla. Fyrir utan að vera að- eins lengri og breiðari en forveri sinn hefur verið skerpt aðeins á línum, til dæmis í vélarhlífinni, til að gera hann ákveðnari, sportlegri og hreinlega flottari. Allt í stíl við aðrar breytingar hjáBMW. 18” álfelgurnar, sem eru staðalbún- aður, gera ekki bara mikið fyrir útlitið, heldur eru nauðsynlegar til að rúma bremsudiskana. Hlerinn í farangursrými er tvískipt- ur; stór efri hleri og svo lítil neðri vör sem auðveldar fermingu og afferm- ingu, auk þess að koma í veg fyrir að hlutir rúlli út þegar hlerinn er opnað- ur og að maður nuddi buxunum í stuð- arann þegar maður er að henda inn- kaupapokum eða golfsetti i skottið. Að innan Hér kveður enn við kunnuglegan tón en þó er eitt og annað sem gleð- ur nýjungagjarnt auga. Til dæmis er gírskiptistöngin nú orðin rafstýrð. f fyrstu ímyndar maður sér að hún venj - ist illa og sé kjánaleg í notkun, en auð- vitað hefur maður rangt fyrir sér. Innréttingin hefur líka tekið nokkr- um breytingum og mesti munurinn er sennilega sá að hún er rúmbetri en áður. Rafmagnssæti og tölvustýrð miðstöð eru staðalbúnaður, sem og einfolduð útgáfa af iDrive-aksturstölv- unni sem birtir upplýsingar á litaskjá í Búnaður og öryggi Fyrir utan það sem hefur verið talið upp hér að framan er bíllinn að sjálfsögðu búinn sex árekstrarpúð- um, stöðugleikastýringu og hægt er að fá radarstýrðan skriðstilli sem aukabúnað. Hann sér þá um að halda fjarlægð við næsta bíl hæfilegri, svo lengi sem þú ert á milli 30 og 180 km hraða. í raun saknaði ég skriðstillis við reynsluaksturinn, því aftur og aftur var ég kominn aðeins yfir leyfi- legan hámarkshraða án þess að taka eftir því. Loks eru svo tvær ISOFIX-barnabíl- stólsfestingar í aftursætunum, Xenon- perur i framljósunum og ótal fleiri atriði sem of langt mál væri að telja upp hér. Aukabúnaður í reynsluakstursbíln- um var hiti í framsætum, leðuráklæði og toppbogar. Með því stendur bíllinn í 7,3 milljónum. Hægt er að bæta enda- laust við af aukabúnaði, en þá hækkar verðið auðvitað enn meira. Niðurstaða Þegar nýr X5 var frumsýndur fyrr í vor var því líkt við að Shakespeare hefði samið nýtt leikrit. Ég mundi nú kannski ekki taka alveg svo stórt upp í mig, en bíllinn er byggður á góðum grunni og þær breytingar sem hafa verið gerðar eru til góðs. Helst að þurfi örlítið að finisera fjöðrunina. Ef horft er framhjá verðinu er hér á ferðinni bíll sem mætir flestum þeim þörfum sem bíleigendur geta haft. Hann er rúmgóður, fjórhjóla- drifinn, þægilegur og kraftmikill en tiltölulega sparneytinn, góður í akstri, fæst sjö manna og mjög ör- uggur og tæknilega fullkominn. Og svo má ekki gleyma því að þetta er BMW... • Billinn kemur til landsins með 6 þrepa Comm- andShift sjálfskipting, leðuráklæði, loftkæling, skriðstillir, aðgerðastýri og fleira • Vélin er 2,2 túrbódísil og skilar 160 hestöflum og 400 Nm • Bíllinn hefur þegar hlotið 1. sæti í flokki sport- jeppa í vali WhatCar og titilinn besti sportjeppinn hjá Top Gear Qashqai öruggastur Samkvæmt niðurstöðum Euro NCAP er Nissan Oashqai öruggasti bíllinn I sínum flokki. [ nýlegum prófunum fékk hann alls 37 stig, meira en nokkur annar bíll hefur áður fengið. Vetrarslútt 4x4 Hvítasunnugleði 1 Básum Ferðafélagið Útivist stendur fyrir árlegri hvítasunnugleði I Básum um helgina. Nauðsynlegt getur verið að panta gistingu á skrifstofu Útivistar en gestir sjá svo sjálfir um að koma sér á staðinn. Nánar á www.utivist.is. Um helgina stendur yfir vetrarslutt Ferðaklubbsins 4x4 að Hamragörðum undir Eyjafjöllum. Þátttaka I ferðinni er frí, að undanskildu tjaldstæði og um að gera fyrir alla meðlimi að skella sér með. Nánar á www.f4x4.is. miðju mælaborðinu. Mjög flott, en svo- lítið flókið. Ég hefði til dæmis viljað að útvarpið stæði fýrir utan þennan bún- að. Að reyna að finna nýja stöð í fyrsta skipti á meðan maður er að keyra er ávísun á ergelsi og útafakstur og senni- lega breytir maður uppsetningunni á hurðalæsingunum í leiðinni. Þriðja sætaröðin, sem er aukabún- aður, rúmast nú í X5 vegna stærra farangursrýmis. Þegar hún er ekki í notkun fellur hún niður í gólfið en sé bíllinn fimm manna er þar auka- farangurshólf undir spjaldi. Vara- dekk er ekkert þar sem bíllinn er á dekkjum sem þola akstur þótt þau séu sprungin. Akstur I reynsluakstursbílnum var 3 lítra dísilvél. Það kann að hljóma dauf- lega í fyrstu en það er sko ekkert dauft við 235 hestöfl og 520 Nm. Með þessari vél er bíllinn 8,3 sekúndur í hundrað en eyðir aðeins 8,7 lítrum á hundrað. í reynsluakstrinum sýndi eyðslumælirinn að vísu rúma tfu lítra, en í hérlendri sparaksturskeppni á dögunum mældist hann með 5,38 l/ioo km. Þessar eyðslutölur, bornar saman við kraftinn, plássið og akst- urseiginleika, sýna svart á hvftu að það eru til góð rök fyrir þvf að kaupa • 3,0 lítra, 6 strokka línudísilvél • 235 hestöfl • 520 Nm • Þyngd: 2.180 kg • 6 þrepa sjálfskipting meö beinskiptivali og sportham • xDrive-fjórhjóladrif • 8,3 sek. í hundrað • Eyðsla I blönduðum akstri: 8,7 1/100 km • Farangursrými 620-17501 • 6 loftúðar • Stöðugleikakerfi með bremsuhjálp, beygjuhjálp o.fl. • Grunnverð: 6.750.000 kr. • Umboð: B&L suma sportjeppa, jafnvel fyrir græn- ingja. I venjulegum þjóðvegaakstri finn- ur maður aðeins fyrir vaggi í fjöðr- uninni en til að mýkja bílinn er nýr X5 búinn „double wishbone“ fjöðrun að framan og mun vera fyrsti BMW- inn til að skarta henni. I beygjum liggur hann samt eins og gömul tyggjóklessa og á möl er hann mýkri en áður, þrátt fyrir að hjólbarðarnir séu orðnir stífari. I það heila er bill- inn skemmtilegur en fyrst og fremst þægilegur í akstri og eins og við er að búast af BMW hefur maður mjög gott vald yfir honum. Ég stóðst ekki mátið og fór með bílinn f smá klöngur í Úlfarsfellinu. Þrátt fyrir að hafa varla veghæð eða hjólbarða í slíkan barning tókst furðu- vel að stýra honum upp fjallið, þökk sé xDrive-drifbúnaðinum sem læsir þeim hjólum sem fríhjóla og flytur afl til hinna. Þetta kerfi virkar einnig mjög vel í hálku og er í raun eitt mikil- vægasta öryggiskerfi bílsins. bilar@bladid.net BMWX5 Togar vel en eyöir litlu, ligg- ur vel og er góður í stýri, rúmgóður og þægilegur, xDrive. Fjöðrunin vaggar í vegaakstri, iDrive flókið, of dýr fyrir Elnar Ell Magnússon einareli@bladid.net Reynsluakstur ★★★★★ 09 tii kemi- smíða tUALLABÍl Stál og stansar ehf. Vagnhöföa 7 110 Reykjavík Sími: 517 5000 Bensínverð nær sögulegum hæðum í Bandaríkjunum: Yfirvöld hvetja til sparnaðaraögeröa Orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna bregst nú við síhækkandi eldsneyt- isverði þar (landi með því að veita þjóðinni einföld ráð til að draga úr eldsneytisnotkun og draga þannig úr kostnaði heimilanna. Þrátt fyrir að sum ráðin líti út fyrir að vera einungis heilbrigð skynsemi koma þau eflaust til með að auðvelda mörgum róður- inn á næstu vikum. Meðal þess sem ráðuneytið vill að ökumenn geri er að hægja á sér, gefa í og bremsa hægar og nota skriðstilli til að vera ekki stöðugt að gefa í og hægja á. önnur ráð á þessum síðustu og verstu tímum eru meðal annars að drepa á Pílvélinni frekar en að láta hana ganga lausagang lengi, minnka farangur í bílnum til að létta hann og keyra ekki hratt með opna glugga, þar sem það eykur loftmót- stöðu og þar af leiðandi eldsneyti- snotkun. Það er vonandi að þessi ráð Peri árangur og auðveldi Bandaríkja- mönnum að minnka áfallið sem hækkað eldsneytisverð hefur í för með sér, en i dag er hæsta verð fyrir bensínlítra sem hægt er að borga þar í landi 57,80 íslenskar krónur. GASOUNE SELF SERVE ' JJiJUfe Unleaded Plus . g 3 2 9 10 Performance Pfys ^mma co íl : & . ■; -V '.A.. ' ír-.á-4 Hiqh Performance Hvattir til að hægja á sér Orku- 353 ft málaráðuneytiö hvetur Bandaríkja- ' menn til að aka sparlega næstu vik- ur, meðan bensínverð er í hámarki. -ar «4l IMkPhom/ietty

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.