blaðið

Ulloq

blaðið - 25.05.2007, Qupperneq 28

blaðið - 25.05.2007, Qupperneq 28
28 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 blaðið MÖRK hafa stúlkurnar í U19- landsliði okkarfengiö á sig I í síðustu tíu landsleikjum. Af þeim hafa stelpurnar unniö tvo, gert tvö jafntefli og tapað sex/ TITLAR eru pað eina sem kylfingur- inn Stewart Cink getur sýnt fram á eftir tíu ára feril í golfinu. Fáir vita að 1997 var hann valinn nýliði ársins á PGA-mótaröðinni. ithrottir@bladid.net Hvað eiga Freddie Ljungberg, Rob- ^ bie Fowler, Mark Viduka, Teddy Sheringham og Trevor Sinclair sam- eiginlegt? Allir eru á leið frá félögum sínum í Englandi hinsta sinni, sumir til að skrifa æsilegar endurminningar, sumir til að eyða þeim fúlgum sem safnast hafa saman gegnum tíðina í spilavítum í Mónakó og enn aðrir halda ósáttir frá og leitast við að verða stórir fiskar í minni tjörnum erlendis eða í neðri deildum. Þeir eiga það ennfremur sameiginlegt að hafa allir verið á jínum tíma skærar stjörnur sem voru fastamenn í lands- liðum sínum og lykilmenn í ýmsum félagsliðum. Og það er víðar en i Eng- landi sem stjörnur sem hangið hafa á plakötum víða um heim um árabil eru að hverfa úr sviðsljósinu. Roberto Carlos hjá Real Madrid sem þótti stórmerki- legur fyrir fimmtán árum fyrir þær sakir einar að vera varnarmaður sem eyddi jafnmiklum tíma í sókn og vörn. Tvær af skærustu stjörnum boltans fyrir fimm árum; Luis Figo og David Beck- ham eru að taka Jóakim Aðalönd til fyr- irmyndar; annar á söndum Arabíu og hinn í glimmerborginni Hollywood. Zid- ane er horfinn og enginn veit hvert. Pa- olo Maldini og Costacurta sem eru jafn tengdir nafni Mílanó og tískukóngar henda líklega báðir handklæðinu eftir leiktíðina. Mehmet Scholl var lengi einn skæðasti leikmaður Bayern og lætur gott heita í sumar. Bæta má tveimur frægum markvörðum við þessa upptalningu; Þjóðverjunum Jens Lehmann hjá Ar- senal og Oliver Kahn en ólíklegt er talið að þeir standi miklu lengur milli stanga, allavega ekki hjá stórliðum. Breytingar framundan hjá félagsliðum: ArseneWenger lofar stuðnings- mönnum Arsenal árangri á næstu leiktíð en nýliðin tíð hefur wM verið einhver sú daprasta undir hans stjórn. Nota bene; allmargir þjálfarar gæfu 'V fúslega aðra hönd sína fýrir að ná þeim árangri ^ sem fellur undir að vera dapur í orðabókum Wengers en karlinn er metnaðarfullur og stendur venjulega við orð sín. Enn er á huldu hvað ÉHBk verður um Hern- J »3| anCrespo. ] Hefur hann staðið sigvelmeðlnter sM Milan í vetur en þar » p-Æ hefur hann verið í kjk 9 láni frá Chelsea sem sannarlega hefði þurft á honum að halda með ■■ tilliti til fr ammistöðu Andrey Shevchenko. Vill hann vera áfram í Mílanó en Mourinho vill hann aftur í búning Chelsea. Allmargir þjálfarar Va- Æk lencia hafa tekið poka sinn í fússi síðustu < árin vegna ósætt- fjfl is við yírmenn k. ■ liðsins sem öllu íkwli vilja ráða. Þannig fór um Hector Cúper og Rafa Benítez og nú gæti verið komið að Quique Flores. Yfirstjórnin vill kaupa til liðs ins Hollendinginn Wesley Sneijder. ■ Gamlar stjörnur taka pok; ■ Poki á hillu hjá sumum F!v tmirab Skeytin in Svíagrýlan sterk Erik Edman og Kim Kallström verða ekki með Svíum í lands- leiknum gegn íslandi þann 6. júni en Lars Lagerback þjálfari velurZlatan Ibrahimovich og Christian Wilhelmsson þrátt fyrir meiðsl og Fredrik Ljungberg er 100 prósent klár í slaginn. Mótbára stúlknanna Riðill stúlknanna okkar í undir 19 ára landsliðinu á Evrópumótinu sem fram fer hér á landi í sumar er erfiður. Danir. Norðmenn og Evrópumeistarar Pjóöverja herja á stúlkurnar en langt er síðan keppt var við Norðmenn og Þjóðverja. Siðasti leikur liðsins var þó gegn Dönum og varð 1-1 jafntefli niðurstaðan. Sendibilar til leigu Peningaplokk Þau opnu golfmót sem fram hafa farið hingað til þykja tiltölulega illa sótt og kunna menn tvær skýringar þar helstar. Annars vegar hefur veðurfar ekki verið sérlega yndislegt það sem af er en hins vegar þykir mörgum nóg um há keppnis- gjöld víða. 3 til 4 þúsund krónur kostar að taka þátt í mörgum mótanna sem er reyndar svipað og fyrir ári. Freddie Ljungberg Þó hann falli ekki lengur undir nö vern sprækur fyrir augum Arsene Wenger á hann enn nnkkuð inni. Ekki loku fyrir það skutið að hann luki upp skona fynr nunm spamenn a Italíu eða Spani likl oci félagi hans Roberl Pires. Teddy Sheringhani Á 42. aldursári er Teddy enn með hugsjónirí boltanum. Nú vill hann enda ferilinn við hlið sonar sms hjá Crystal Palace en dapurlegt er til bess að hugsa að glæstur lerii! skuli unda u bekkj- ai seiu hjá sináliöum. Luis Figo Fekk sparkið fra Madrid aðeins til að blómstra á ny í Milanó Leikið eill silt besia limabil en hafnaði tengrr samningi og ætlar að tuðr- usl með Ai-'llihad i Sadi-Atabiu næslu ann. Laun hans par verða t joloid n við það sern hann lær nu Oliver Kahn A eitt ár eftir at samningi sínum við Bayern en hefur staðið sig illa i vetur ng margir kenna homim um að stórveldið Bavern var ekki meðal þriggja efstu liða i Bund- esligunm þetta ar.ð i fyisla sinn i langan tima. blaði þriðjudaga Auglýsingasíminner 510 3744 Merkileg kaupin á spænsku eyrinni: Real Madrid reynir að kaupa titilinn Lið Zaragoza Sigurbónus leikmanna verður mun hærri Ei: —1 venjulega nái þeir stigum gn Sevilla um helgina. * Fjármálastjóri Real Zaragoza brosir á leið i bankann þessa dag- ana enda hafa fjárhirslur liðsins bólgnað nokkuð síðustu dagana. Ástæða þess er þó eins spænsk og eggjakaka því peningarnir koma frá erkifjendunum Real Madrid vestar í landinu. Upphæðin fæst ekki uppgefin en greiðslurnar eru hugsaðar sem frekari hvati til leikmanna liðsins til að vinna leik sinn gegn Sevilla á sunnudagskvöldið en tapi Sevilla stigum greiðir það til muna leið Real Madrid að spænska meistara- titlinum. Áður var búið að verð- launa forseta og leikmenn Getafe fyrir að reyna slíkt hið sama gegn Barcelona. Upphæðirnar í báðum til- vikum verða tvöfaldaðar vinni Real Madrid spænsku deildina. Þó undarlegt virðist þykir þetta ekkert stórmál á Spáni og í raun verja sumir slíkt með því að tala um að hefð hafi skapast fyrir slíku hátta- lagi. Ekkert sé til fyrirstöðu að auka ávinning leikmanna annarra félaga af því að vinna leiki sína. Ekki sé verið að múta mönnum til að tapa leikjum. En siðlaust er það.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.