blaðið - 25.05.2007, Síða 32
Förðuna:
'» 5 \ ’í ' * *'
\ \ o<á
argrét Kristín
Pétursdóttir er
nýkomin á Klak-
ann eftir að hafa
freistað gæfunn-
ar í Hollywood
og lært förðun í virtum förðunar-
skóla þar ytra. Margrét lærði þar
allar kúnstir förðunarlistarinnar
ásamt því að farða lítið eitt fyrir
Grammy-verðlaunahátíðina og
berja augum nokkrar af stórstjörn-
unum.
Hitti Ben Affleck og
Jennifer Gardner
„Ég lærði snyrtifræðina í Snyrti-
skólanum í Kópavogi en ákvað
svo að skella mér út í hinn stóra
heim og prófa eitthvað nýtt. Auð-
vitað lærði ég margt í förðun þegar
ég lærði snyrtifræðina hérna en
mig langaði að Iæra meira,“ segir
Margrét, sem sér ekki eftir þeirri
ákvörðunartöku. Hún lærði förð-
un í afar virtum skóla í Hollywood,
Elegance International, og stóð sig
með stakri prýði.
„Það gekkmjög vel og églærði auð-
vitað heilmikið. Skólinn var auðvit-
að frekar dýr enda er hreinlega allt
í þessum bransa fremur dýrt. Þú
átt auðvitað aldrei nóg í kittinu
þínu,“ segir Margrét og hlær.
Aðspurð um fræga einstaklinga
sem rekið hefur á fjörur hennar
glottir Margrét út í annað og verður
hógværðin uppmáluð. „Jú jú, mað-
ur sá alveg eitthvað af þessu fólki,
bæði mjög frægum og svona mini-
celebum. Annars er ég ekkert ro-
salega góð í öllum þessum nöfnum
og var auðvitað ekkert að leita eftir
þessu. En jú, ég sá til dæmis Ben
Affleck og Jennifer Gardner.“
Áhersla á að meika það
I skólanum tók Margrét að sér
mörg spennandi verkefni og segir
hún aðstandendur skólans sérstak-
lega duglega við að útvega nemend-
um verkefni.
„Það var oft hringt í mann og beð-
ið um förðun fyrir hátíðir eða af-
mæli. Þannig fær maður auðvitað
heilmikla reynslu og kynnist þess-
um heimi mun nánar. Ég farðaði
aðeins fyrir Grammy-verðlaunahá-
tíðina ásamt öðrum verkefnum, en
svo missti ég því miður af förðun í
vinsælum þáttum sem ég reyndar
veit ekki alveg hvað heita. Eg var
á leiðinni heim til íslands þegar
boðið kom og því missti ég af því.
En maður veit aldrei - kannski fer
ég aftur einhvern tímann og nýti
reynsluna og kunnáttuna úr skól-
anum. Þarna er óumdeilanlega
rosalega reynslu að fá og þú lærir
endalaust mikið,“ segir Margrét.
Hún bætir við að rík áhersla hafi
verið lögð á að „meika’ða" í skólan-
um og hvöttu kennarar nemendur
til að ætla sér sem mest og verða
stór númer í Hollywood-bransan-
um. „Kennararnir kenna þetta upp
á að þú verðir í Hollywood og meik-
ir það. Þeir hafa allir verið að farða
stjörnurnar í kvikmyndunum
og þeir leggja auðvitað mest upp
úr því. En þetta er nú einfaldlega
þannig að annaðhvort meikarðu
það eða ekki. Svo kostar það auðvit-
að tíma, fyrirhöfn og peninga."
Ótrúleg útlitsdýrkun og
óaðfinnanlegar konur
Margrét segist hafa tekið sérstak-
lega vel eftir útlitsdýrkun kvenna í
Hollywood. Hún segir þær með putt-
ann á púlsinum þegar kemur að út-
litinu og flestar kappkosta að sækja
sem flestar snyrtistofurnar heim.
„Þarna er alveg brjáluð útlitsdýrk-
un og allir vilja líta mjög vel út.
Konurnar eru að eyða 50 til 60 þús-
und krónum í förðun fyrir hátíðir
eins og Óskarinn og svo fara þær
í ótrúlegustu meðferðir nokkrum
sinnum í mánuði. Auðvitað finnst
manni gaman að sjá þetta og ég dá-
ist að þeim fyrir að nenna þessu, en
stundum finnst mér of langt gengið.
Mér fannst ég stundum sjá konur ná-
kvæmlega eins útlítandi og einhver
önnur vegna þess að þær voru alveg
eins eftir botox-aðgerðir! Þetta var
mjög fyndið,“ segir Margrét, sem
segist þó ekki hafa náð að henda
reiður á það töframeðal sem notað
er.
„Það liggur við að maður haldi að
þær séu allar að nota eitthvert furðu-
legt undraefni," segir hún og hlær.
„Svo er svolítið spes að skoða muninn
á okkur og þeim. Hérna förum við í
þetta hefðbundna; vax, plokkun og
litun en þarna úti fara þær í miklu
fleiri meðferðir og virðast einhvern
veginn miklu þróaðari í þessu. Þær
fara kannski í rándýr andlitsböð og
aðrar meðferðir nokkrum sinnum
í mánuði og svo eru sumar dugleg-
ar í lýtaaðgerðunum. En þær mega
eiga það flestar að þær líta alveg
ótrúlega vel út og hugsa greinilega
mikið um sig.“
Náttúrulegt útlit og falleg húð
Margrét hyggst nú starfa á snyrti-
stofunni Amira í Kópavogi þar sem
hún mun nota kunnáttuna frá Holly-
wood á íslenskar konur.
„Ég var reyndar mjög heppin og
mér stóðu til boða nokkur störf þeg-
ar ég kom hingað í vor frá Holly wood.
Nú fer maður bara að einbeita sér að
tískunni í snyrtibransanum sem er
aðallega náttúrulegt útlit, góð húð
og léttur farði. Ég held einmitt að
húðmeðferðirnar verði vinsælastar
núna í sumar enda mikilvægt að
taka húðina í gegn fyrir létta sum-
arförðunina.“
5 SPURNINGAR:
INGA RÚNARSDÓTTIR16 ÁRA
Hvað heltlr höfuðborg Eistlands?
Það veit ég ekki.
Hvar er Cardiff?
Veit ekki.
I hvaða banka var skipt um bankastjóra
ekki alls fyrir löngu?
Það veit ég ekki.
Hvert er suðumark vatns?
Er það ekki 100“?
Hvað heitir formaður Islands-
hreyfingarinnar?
Það veit ég ekki.
ELlN GUÐMUNDSDÚTTIR16 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Eistlands?
Veit það ekki.
Hvar er Cardiff?
Veit ekki.
I hvaða banka var skipt um bankastjóra
ekki alls fyrir löngu?
Landsbankanum.
Hvert er suðumark vatns?
100°.
Hvað heitir formaður Islands
hreyfingarinnar?
Veit það ekki.
ANNA BALDURSDÓTTIR19 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Eistlands?
Ekki hugmynd.
Hvar er Cardiff?
Veit það ekki.
I hvaða banka var skipt um bankastjóra
ekki ails fyrir löngu?
Glitni.
Hvert er suðumark vatns?
100“
Hvað heitir formaður fslands-
hreyfingarinnar?
Veit það ekki.
EYDlS SVAVARSDÓTTIR15 ÁRA
Hvað heitir höfuðborg Eistlands?
Það veit ég ekki.
Hvar er Cardiff?
Veit ekki.
I hvaða banka var skipt um bankastjóra
ekki alls fyrir löngu?
Búnaðarbankanum.
Hvert er suðumark vatns?
100“.
Hvað heitir formaður fslands-
hreyfingarinnar?
Veit ekki.
uossjeuBbh jeuip g jngejB
001 ’tr IUJII9 'E S8|BM'2 UU!||Bl'|:jpAS