blaðið - 25.05.2007, Síða 34
Miðasala hefst á tónleika The Rapture:
Skemmtilegasta
dans-rokksveit heims
„Þeir komu á Airwaves fyrir
fimm árum og þá voru þeir að
setja í gang House of Jealous Lo-
vers og fleiri smelli,“ segir Eldar
Ástþórsson, einn af aðstand-
endum tónleika diskórokksveiflu-
sveitarinnar The Rapture. Sveitin
kemur fram á Nasa þriðjudaginn
26. júní, en miðasala hefst í dag
á Miði.is og í verslunum Skíf-
unnar.
„Orðstír þeirra hefur aukist
til muna síðan þeir komu til
landsins og í dag er sveitin tví-
mælalaust ein skemmtilegasta
dans-rokksveit heims,“ segir
Eldar. Nýjasta plata sveitarinnar
hefur farið vel í gagnrýnendur
og plötukaupendur. „Þegar eru
komnir nokkrir hittarar sem hafa
lekið inn á barina og rokkstöðv-
arnar.“
Dómgreindarleysi
eða græðgi?
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að fólk á oft erfitt með að
hætta því sem vel hefur reynst.
Sér í lagi ef það hefur gefið, eða
er líklegt til að gefa, einhvern aur
í budduna. Aðstandendur Silvíu
Nætur-gjörningsins eru engin
undantekning þar á, enda kom
nýverið út fyrsta platan eignuð
dívunni hrokafullu og ber hún
heitið Goldmine.
Ég get ekki neitað því að ég
varð fyrir töluverðum vonbrigðum
er ég frétti af útkomu umræddrar
plötu. Silvia Nótt er gjörningur
eða leikþáttur en ekki tónlistar-
kona. Enda kemur í Ijós að kon-
septið á bak við Silvíu Nótt nær
engan veginn að skila sér (formi
geislaplötu og platan styrkir enn
frekar þá skoðun mína að það
hefði átt að hætta á toppnum:
Með frábærum gjörningi í
tengslum við Eurovision-hátiðina
í fyrra og enn betri þáttaröð sem
fjallaði um gjörninginn.
Lögin eru mörg hver ekkert
verri en lög tónlistarmanna sem
háðsádeilan beinist að - í raun
eru þau bara alveg eins og mörg
slík lög. En auðvitað var mark-
miðið ekki að leika eftir slíkum
„listamönnum“; ádeilan fólst í að
ýkja en ekki líkjast. Ef rýnt er í
textana kemur þó í Ijós að þeir
eru ívið hallærislegri og hneyksl-
anlegri en hefbundnir popptextar
l>. • - Tfc*. i . •
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hfynUr@faladid.net
(enda er slík dulin ádeila vænt-
anlega markmiðið). En textarnir
eru hvorki sérstaklega fyndnir né
góðir og í raun ekkert ósvipaðir
textum dæmigerðrar MTV-plötu.
Og fyrst textarnir eru ekki sem
skyldi inniheldur platan ekkert
annað en frekar leiðinlega tónlist.
Einstaka lög eru þó sæmileg.
Nefna má „Calling" og „Thank
You Baby“. Einnig hefði verið
hægt að gera ágætis lag úr upp-
hafsstefi plötunnar. En því verður
ekki neitað að áhyggjur mínar er
ég frétti af plötunni reyndust ekki
ástæðulausar: Platan virðist ekki
vera gefin út í öðrum tilgangi en
þeim að græða örfáa þúsund-
kalla á þeim krakkagreyjum sem
taka Silvíu Nótt sem tónlistar-
manni en átta sig ekki á háðinu.
CALLING
SMÁAUGLÝSINGAR
blaðiðs
SMAAUGLYSINGAR@BLADID.NET
Þetta gengur
augljóslega ekki
Eftir Atla Fannar Bjarkason
atli@bladid.net
006 ..................VtnHÍil*-ÁtmatMtnaAHmúit....... ....................................' Ö"''
^ 'ISÍ'tBIO ), .........»' 0 -
r.«n«<i UMUMIInr. Crraíi ! ; M.. Vr'nAtW. Mofl«... bn»«> llu*
*y lllUMI -> lx». Apph WC Jl M«M> - A Q »ln lltpliMW*.. tl TMiu.tliiiliiU. >; Viw - li*« • TAnki! p J65 ■ Ai<uyfilu>
»
0 Tónlist.is -A tA í 8
uyiy’ raTOBBHMEHM
Verslunin liefur veriö í
umræðunni undanfarna daga vegna
óánægju túnlistarmanna og útgefenda.
Fullyrðir að
Tónlist.is liafi ávallt staöiö í skiluin
við útgáfufyfirtæki.
Segist ekki
greiða listamönnum lyrr en
tilteknar upphæðir náist.
Það voru ákveðin rök sem lágu á
bak við það á sínum tíma að Skífan
og Sena voru aðskilin. Það var talið
samkeppnishamlandi að fyrirtæk-
in væru í sömu eigu, en Tónlist.is er
bara búð á Netinu og að leyfa að það
sé á sömu hendi og Sena gengur aug-
ljóslega ekki,“ segir Lárus Jóhannes-
son, annar eigenda 12 tóna.
Vefverslunin Tónlist.is hefur ver-
ið mikið í umræðunni undanfarna
daga frá því fréttir bárust af tónlist-
armönnum sem telja að verslunin
hafi svikið þá um greiðslu fyrir sölu
á tónlist sinni.
„Frá mínum bæjardyrum séð er
alveg klárt að þetta [Utgáfufélagið
Sena og Tónlist.is] á ekki að vera
á sömu hendi. Þess vegna er þetta
vantraust og ég held að það sé kjarni
málsins.“
Svarað í stjórnsýslumáli
Útgefendur tónlistar hafa velt
fyrir sér hvort það sé samkeppnis-
hamlandi að Tónlist.is sé í eigu 365
hf. sem á einnig Senu á sama hátt og
Samkeppniseftirlitið úrskurðaði að
það væri samkeppnishamlandi að
Skífuverslanirnar væru í eigu sama
fyrirtækis.
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, segir að
þessi tiltekna spurning hafi ekki
komið til kasta samkeppnisyfir-
valda. „Hvort þetta er eðlilegt með
tilliti til samkeppni er spurning sem
yrði að svara í sérstöku stjórnsýslu-
máli og slíkt mál hefur ekki verið
rekið hingað til.“ Páll baðst undan
að tjá sig efnislega um málið.
Segjast standa í skilum
Fram kom í Fréttablaðinu á þriðju-
dag að Stefán Hjörleifsson,
framkvæmdastjóri
Tónlist.is, telur
verslunina hafa
staðið í skilum á
öllum greiðslum
til útgáfufyrir-
tækja sem sjá
um að koma fénu
til listamanna
sinna. Lárus hjá 12
tónum og
Lárus Jðhannesson Er
ósáttur við að 365 megi
reka tónlist.is.
► 3 VííUCI U» ■!*«>*
> 4imif0»»
Eiður Arnarsson, forstöðumaður
tónlistardeildar Senu, staðfesta báð-
ir að uppgjör hafi borist frá Tónlist.
is. Lárus segist ekki hafa sótt greiðsl-
urnar sökum þess hve lágar þær eru
en Eiður sagði í yfirlýsingu að Sena
greiði listamönnum sínum út þegar
tilteknar upphæðir hafi náðst.
Heimildir Blaðsins herma að
heildarsala Tónlist.is frá upphafi
nemi um 10 milljónum króna frá
árinu 2005. Samkvæmt því myndu
um tvær milljónir skiptast á milli
listamanna.
Hafa selt tónlist án leyfis
Þrátt fyrir yfirlýsingar fram-
kvæmdastjóra Tónlist.is hefur versl-
unin selt tónlist á vef sínum sem
ekki hefur fengist leyfi fyrir. Tónlist-
armennirnir Benni Hemm Hemm
og Orri Harðarson hafa báðir látið
fjarlægja efni frá sér af vefnum þar
sem ekki var samið við þá áður en
tónlistin fór í sölu. Þá hefur Blaðið
heimildir fyrir því Tónlist.is hafi
frá upphafi selt efni sem hvorki
hefur fengist leyfi frá útgáfu né
listamanni til að selja, en verslunin
hefur aðgang að gagnagrunni sem
geymir nánast alla íslenska tónlist
sem komið hefur út. Ekki náðist í
Stefán Hjörleifsson vegna málsins.
„Upphaflega hugmyndin að þess-
um gagnagrunni var að þetta væri
gagnabanki sem hagsmunaaðilar
gætu nýtt fyrir sig sjálfa,“ segir Lár-
us hjá 12 tónum, og bætir við að það
hafi alltaf verið óljóst hvernig gagna-
grunnurinn þróaðist út í verslun.
„Hugmyndin var sem sagt að skrá-
setja íslenska tónlist og setja hana á
stafrænt form þannig að hún yrði til
á einum stað og þá gæti hver útgef-
andi haft fullan aðgang að sínu efni.
Ef það væri til sölu á tonlist.is gæti
hann haft aðgang að þeim hreyfing-
um sem þar eiga sér stað og nýtt sér
það í eigin þágu.“