blaðið - 25.05.2007, Side 38

blaðið - 25.05.2007, Side 38
38 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 blaöiö ^——jjr _ Frá hvaða landi er hann? í hvaða sjónvarpsþáttaröð sló hann i gegn í Bandarikjunum? ;Bk. t M Hvernig kynntist hann framleiðanda James Bond-myndanna? Hversu oft lék hann hinn breska ofurnjósnara James Bond? í hvaða mynd lék hann á móti klæðskiptingnum Robin Williams? ajyjqnoa sjiaj S uinuujs umjofd f EUUjA QB JL’A SUeij UllO>j U13S jecj A|uo saAg jiioa joj Qejsn>jpj \j £ oiaajs uojöujuiajj z jpueiJj *|. ÚTVARPSSTÖÐ VAR: RÁS 1 92,4 / 93,5 RÁS 2 90,1 / 99,9 • REYKJAVÍK FM 101,5 • BYLGJAN 98,9 • FM 95,7 X-IÐ 97,7 ÚTVARP SAGA 99,4 • LÉTTBYLGJAN 96,7 HVAÐ SEGJA STJÖRNURNAR? OHrútur (21. mar$-19. apríl) Lífið snýst ekki bara um vinnu heldur líka um skemmtun, en það er einmitt það sem þú þarft á aö halda. Faröu í falleg föt og farðu að skemmta þér. ©Naut (20. apríl-20. maf) Ef þú elskar einhvern eöa eitthvað þá máttu ekki vera of yfirþyrmandi, annars fær hann/hún nóg. Þaö er ekki mögulegt eða hollt að vera alltaf saman. ©Tvíburar (21. maí-21. júni) Hugsaðu um líf þitt eins og góða bók. Stundum gerast hlutir sem þú sást ekki fyrir en þegar þú hugsar um það þá var það óhjákvæmilegt. Þú ert tilbúin/n. ©Krabbi (22. júnf-22. júlO Þú hefur það sem til þarf og þú veist hvernig best er að koma því til skila til þeirra sem ráða. Málamlðlun er lykillinn. ®Ljón (23. júlf- 22. ágúst) Besta leiðin til að afvopna andstæðing þinn er að minnka varnirnar. Þú hræðist tllhugsunina en hví ekki að reyna það? Kannski endar þú sem sigurvegari! Mayja (23. ágúst-22. september) Stundum áttarðu þig ekki á hvernig þú nennir að standa í þessu. Sannast sagna er það vegna þess að þú ert góður starfs- kraftur og þú veist að þú getur gert þetta betur en aðrir.. Vog (23. september-23. október) Sannleikurinn er sagna bestur en vandamálið er að þú ert ekki viss hvort þú þolir það. Þú ert sterkari en þú held- ur. Hafðu trú á þér. Sporðdreki (24. október-21. nóvember) Ef þú spyrð alla aðra hvernig þér gangi grefurðu undan sjálfstrausti þínu. Andaðu djúpt, einblíndu á það sem þú kannt og þú veist hvað á að gera. Bogmaður (22. nóvember-21. desember) Notaðu galla þína til jákvæðra verka. Hver veit nema það bæti líf þitt. En fyrst þarftu að skoða fortíðina, þar liggur svarið. ©Steingeit (22. desember-19. janúar) Hver er tilgangurinn með því að verða reið/ur út af því að áætlanir þínar standast ekki? Hugsaðu um þessa töf sem jákvæða því allt þarf sinn tima. Vatnsberi (20. janúar-18. febrúar) Deildu vanda þínum með nánum vini eða einhverjum sem þú treystir. Jafnvel þó þið finnið ekki varanlega lausn þá finnurðu fyrirstuðningi. ©Fiskar (19. febrúar-20. mars) Markmið þin eru ailt önnur en þú hélst Þér finnst það skrýtið en þú munt uppgötva sanna hamingju þegar þú svarar þörfum sálar þinnar. n Stefnt verði að betra samfélagi" Nú þegar ný ríkisstjórn hefur verið mynduð er hún búin að fá á sig alls konar misniðrandi upp- nefni eins og gengur og gerist og for- ystumenn stjórnarandstöðuflokk- anna spara ekki stóru orðin, enda er það ekki þeirra hlutverk. Bæði fram- sóknarmenn og vinstri grænir spá því að þessi stjórn verði mjög hægri- sinnuð sem er reyndar ekki skrítið þar sem hægrimönnum er nú bæði treyst fyrir heilbrigðis- og mennta- málaráðuneytinu. Ingibjörg og Geir svara þó öllum slíkum ásökunum með því að benda fólki á að skoða stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinn- ar i stað þess að vera með einhverjar dómsdagsspár. Það vill svo til að ég er búin að skoða þessa stefnu- yfirlýsingu og ég verð að viður- kenna að ég er litlu nær. Plaggið er uppfullt af hálfkveðnum vís- um og almennu orðalagi, eða að minnsta kosti þar sem fjallað er um þær leiðir sem á að fara til að ná fram markmiðunum um betra samfélag. Hér á að vera öfl- ugra velferðarkerfi, lægri skattar, framsækið atvinnulíf og ég veit ekki hvað og hvað, en það á síðan bara að koma í ljós hvað verður gert nákvæmlega. Hildur Edda Einarsdóttir gefur litið fyrír stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjómar. Fjölmiðlar hilduredda(g)blaclid.net Ingibjörg og Geir eiga sennilega eftir að halda áfram að mæla með því að fólk lesi stefnuyfirlýs- ingu „frjálslyndu umbótastjórnarinnar“, nú eða „frjálshyggju-hægrikratísku stjórnarinnar“ (uppn- efnist að vild), en ég mæli ekkert sérstaklega með því. Hún fjallar nefnilega ekki um neitt. Sjónvarpið Sirkus Sýn 16.35 14-2 (e) 17.05 Leiðarljós (Guiding Light) 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Músahús Mikka (8:28) (Disney's Mickey Mouse Clubhouse) 18.30 Ungar ofurhetjur (2:26) (Teen Titans, Ser. II) 19.00 Fréttir 19.30 Veður 19.35 Kastljós 20.10 Augu Tru opnast (Tru Confessions) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 2002 um stelpu sem er hundóánægð með for- eldra sína og bróður en eftir að hún fær tækifæri til að koma fram í sjón- varpsþætti áttar hún sig á því hvers virði það er að eigafjölskyldu. Leikstjóri er Paul Hoen og meðal leikenda eru Clara Bryant, Shia LaBeouf og Mare Winningham. 21.35 ScottJoplin (Scott Joplin) Bandarísk bíómynd frá 1977 um ævi Scotts Joplin, eins fremsta ragtime-tón- skálds sögunnar. Leikstjóri er Jeremy Kagan og meðal leikenda eru Billy Dee Williams, Clifton Davis, Margaret Avery og Seymo- ur Cassel. 23.15 Sigurinn (e) (The Triumph) Bandarísk sjónvarpsmynd frá 2006 byggð á sannri sögu um kennara í smábæ sem flytur sig um set og fer að kenna í erfiðum skóla í Harlem. Leikstjóri er Randa Haines og meðal leikenda eru Matthew Perry og Judith Buchan. 00.45 Útvarpsfréttir í dagskrárlok 08.05 Oprah 08.50 f finu formi 2005 09.05 Bold and the Beautiful 09.30 Forboðin fegurð (56:114) 10.15 Numbers (18:24) 11.00 Fresh Prince of Bel Air 11.25 Sjálfstætt fólk 12.00 Hádegisfréttir 12.45 Nágrannar 13.10 Forboðin fegurð (5:114) 13.55 Forboðin fegurð (6:114) 14.40 Joey (16:22) 15.05 The Apprentice (14:16) 15.50 Barnatími Stöðvar 2 17.28 Bold and the Beautiful 17.53 Nágrannar 18.18 ísland í dag og veður 18.30 Fréttir 18.55 fsiand í dag, íþróttir og veður 19.40 The Simpsons (16:22) (e) Marge setur upp fugla- hræðu í matjurtagarðinum sínum til að fæia í burtu krákurnar. Gallinn er sá að Hómer er skíthræddur við fuglahræðuna og laumast til að eyðileggja hana. Eftir það líta krákurnar á Hómer sem leiðtoga og fylgja hon- um hvert sem hann fer. 20.05 The Simpsons (17:22) Marge verður að athlægi á foreldrafundi þegar í Ijós kemur að hún er ekki með tölvupóstfang. Hún tekur því ekki þegjandi og ákveð- ur að læra að nota Netið. 20.30 Leitin að Strákunum Nú er skipt í þrjú tveggja manna lið. Liðin fá gest í „settið" og þurfa að búa til skemmtilegt atriði með honum. Gestadómarar: Bubbi, Gísli Marteinn og Inga Lind. 21.15 Beauty and the Geek 22.00 DATE MOVIE 23.25 Virginia s Run 01.10 Innocents 02.35 The Giraffe 04.20 Leitin að Strákunum 05.00 The Simpsons (17:22) 05.20 Fréttir og island i dag (e) 06.30 Tónlistarmyndbönd frá PoppTíVí 07.15 Beverly Hills 90210 (e) 08.00 Rachael Ray (e) 08.45 Vörutorg 09.45 Melrose Place (e) 10.30 Leiðin að titlinum (e) 13.15 European Open Poker (e) 14.45 Vörutorg 15.45 Queer Eye for the Straight Guy (e) 16.45 Beverly Hills 90210 17.30 Melrose Place 18.15 Rachael Ray 19.00 Everybody Loves Raymond (e) 19.30 Still Standing (e) Þriðja þáttaröðin í þessari bráðskemmtilegu gamans- eríu um hjónakornin Bill og Judy Miller og börnin þeirra þrjú. Skrautlegir fjölskyldu- meðlimir og furðulegir nágrannar setja skemmti- legan svip á þáttinn. Það eru Mark Addy (The Full Monty) og Jami Gertz sem leika hjónakornin. 20.00 One Tree Hill Fylgst er með unglingunum í One Tree Hill í gegnum súrt og sætt. 21.00 Survivor: Fiji - Lokaþáttur Vinsælasta raunveruleik- asería allra tíma. Það er komið að lokauppgjörinu. Nú eru keppendurnir 19 sem hófu leikinn mættir í myndver og gera upp málin í eitt skipti fyrir öll. 22.00 UNGFRU ÍSLAND 2007 Bein útsending frá Broad- way þar sem fegursta stúlka fslands 2007 verður krýnd. Það eru 24 gullfal- legar stúlkur sem keppa um titilinn en haldnar voru sjö undankeppnir víðs veg- ar um land. 00.00 Everybody Loves Raymond 00.25 The Dead Zone (e) 01.15 Beverly Hills 90210 (e) 02.00 Melrose Place (e) 02.45 Tvöfaldur Jay Leno (e) 04.25 Vörutorg 05.25 Óstöðvandi tónlist 18.00 Insider 18.30 Fréttir 19.00 island i dag 19.40 The War at Home (4:22) 20.10 Entertainment Tonight 20.40 Daisy Does America (4:8) í þáttunum um Daisy ferð- ast breska gamanleikkonan Daisy Donovan um Banda- ríkin í þeim tilgangi að uppfylla ameríska drauminn og tileinka sér hina undar- legustu siði Ameríkana. 21.10 Night Stalker (3:10) Carl Kolchak er virtur rann- sóknarblaðamaður. Hann ræður sig til vinnu á dag- blaði í Los Angeles og fær það verkefni að skrifa um röð undarlegra morðmála. 22.00 Standoff (11:18) Matt og Emily lenda í slæmum málum þegar þau slysast til Mexíkós án þess að vita hvernig þau eiga að komast aftur heim. 22.45 Bones (4:22) Undarleg atburðarás fer í gang þegar lík finnst sem virðist vera af fórnarlambi þekkts raðmorðingja. 23.30 American Inventor (9:15) 00.20 TheWarat Home (4:22) 00.50 Entertainment Tonight 01.15 Tónlistarmyndbönd Skjár sport 18.00 Timabilið 2004 - 2005 (e) 19.00 Timabilið 2005 - 2006 (e) 20.00 Þrumuskot(e) Sýndar svipmyndir frá leikj- um sem fram fóru 17-18 mars 2007. 21.00 Þrumuskot(e) Sýndar svipmyndir frá leikj- um sem fram fóru 31. mars tiM.apríl 2007. 22.00 Turninn i Charlton (e) 22.30 Strákarnir í Reading (e) 23.10 Eggert á Upton Park (e) 00.00 Dagskrárlok 07.00 Landsbankamörkin 2007 07.30 Landsbankamörkin 2007 08.00 Landsbankamörkin 2007 08.30 Landsbankamörkin 2007 16.15 Landsbankadeildin 2007 (Valur - KR) 18.05 Það helsta í PGA- mótaröðinni 18.35 Gillette World Sport 2007 19.05 Spænski boltinn - upphitun (La Liga Report) 19.30 Meistaradeild Evrópu - fréttaþáttur Allt það helsta úr Meist- aradeildinni. Fréttir af leikmönnum og liðum auk þess sem farið er yfir mörk- in, helstu tilþrifin i síðustu umferð og spáð í spilin fyrir næstu leiki. 20.00 Pro bull riding (Chicago, IL - Jack Daniels Invitational) 21.00 World Supercross GP 2006-2007 (Rogers Centre) 22.00 Heimsmótaröðin i póker 2006 Þáttur um heimsmótaröð- ■ ina í póker. 23.00 Heimsmótaröðin í póker 2006 00.00 NBA - Úrslitakeppnin (Detroit - Cleveland) 06.00 Með allt á hreinu 08.00 How to Kill Your Neighbor s Dog 10.00 DantesPeak 12.00 The Perfect Man 14.00 Með allt á hreinu 16.00 How to Kill Your Neighbors Dog 18.00 Dante'sPeak 20.00 The Perfect Man 22.00 Serpico 00.05 LayerCake 02.00 I Know What You Did Last Summer 04.00 Serpico He-Man kemur: Lengi lifi lenda Fyrir skömmu láku þær fréttir á Netið að Brad Pitt væri (við- ræðum við kvikmyndaframleiðendur um að taka að sér hlutverk kraftakallsins He-Man sem skokkar um á lendaskýlu einni fata og lúskrar á beinagrindinni Skeletor. Brad Pitt hefur alfarið neitað þessu en hvort sem Pitt tekur þátt í framleiðslu myndar- innar eður ei, þá hefur það verið tilkynnt að mynd um ævintýri He-Man sé í bígerð. Ofurframleiðandinn Joel Silver og Warner Bros. kvikmyndaverið standa um þessar mundir í samningaviðræðum við Mattel- leikfangaframleiðandann um að fá réttinn að He-Man- þersónunni til að geta kvikmyndað hana. Nýliðinn Justin Marks hefur verið fenginn til að semja handritið að myndinni sem mun vera nokkuð breytt frá hinum klass- ísku teiknimyndum. Sagan mun snúast um hermanninn Prince Adam sem rambar inn í aðra vídd, Eterniu, þar sem hinn illi og beinaberi Skeletor notar tæknivæddan her til að þurrka út alla töfra í heiminum. Víst er að margir aðdáendur He-Man bíða nú í ofvæni eftir afrakstri þessarar vinnu sem verður vonandi skárri en hörmungarmyndin um sömu þersónu sem framleidd var 1987 og skartaði meðal annars Dolph Lundgren og Courtney Cox í aðalhlutverkunum. Stöð 2 kl. 22.00 Skelfilegt stefnumót [ kjölfar hinna vinsælu Scary Movie-mynda, þar sem gert er grín að fjölmörgum vinsælum hryllingsmyndum, kemur hin allsérstaka Date Movie. Hérna eru róman- tísku myndirnar efniviðurinn í yfirgengilegu gríni þar sem ekkert er heilagt. Þessi mynd er ómissandi fyrir þá sem hafa gaman af því að láta berja sig, ítrekað, í höfuðið með úldnum þorski. Skjar einn kl. 22.00 Fegursta fljóðið Það er óhætt að lofa miklum glaumi og gleði í kvöld en þá verður sýnt beint frá keppninni Ungfrú ísland sem fram fer á Broadway. Þar munu 24 gullfallegar stúlkur berjast um titilinn fegurðardrottning íslands á baðfötum og háum hælum. Allar stúlkurnar hafa tekið þátt í undankeppni í sinni heimasveit en nú tekur alvaran við. Það er ofursmiðurinn Gunn- laugur Helgason sem kynnir keppnina.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.