blaðið - 15.06.2007, Side 15
blaðið
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007
15
Rúna Gísladóttir heldur sýninguna Brúöubörn:
Brúður fylla bílskúrinn
Rúna Gísladóttir hefur í nokkur
ár safnað að sér brúðum í öllum
stærðum og gerðum. Hún segist
eiga um 400 stykki en fyrir sýning-
una hefur hún valið um 150 brúður
sem hún heldur mest upp á.
„Ég byrjaði á þessu í kringum 1996
en þetta hefur ekki verið stöðugt
síðan. Ég tók tveggja ára pásu og
er nýbyrjuð aftur. Eg fann bara að
þegar ég var búin með tvær til þrjár
dúkkur í fyrstu, að ég gat ekki hætt!
Ætlunin var aldrei að fylla húsið af
þessu aukadóti en mér fannst ég
þurfa að bæta við vissum tegundum
og frá vissum tímabilum."
Rúna segir hverja dúkku taka
fjölmarga klukkutíma í vinnslu.
Hún fær postulinsmót af dúkkum
frá Bandaríkjunum sem hún síðan
málar í nokkrum umferðum og
hitar á milli.
„Það þarf að brenna hverja umferð
til að skemma ekki fyrstu drættina.
Þetta er mjög vandmeðfarið því það
er notuð vatnsuppleysanleg málning
við þetta. Ég reyni að vanda til verka
og hafa þær sem raunverulegastar,
en það má annars sjá mismunandi
stílbrot eftir hverju tímabili," segir
Rúna, sem segir slíkar dúkkur mjög
verðmætar.
„Miðað við þá vinnu og kostnað á
efni sem notað er við þessa dúkku-
gerð eru þær sumar metnar á yfir
100.000 krónur. Það eru svo til
dúkkur erlendis sem geta kostað vel
á þriðju milljón. En ég hef nú ekki
verið að selja þær, enda ekki á færi
nema efnuðustu safnara að standa
í svoleiðis. En ég bið fólk vinsam-
legast um að gefa mér dúkkurnar
í stað þess að henda þeim, því það
eru því miður margar sem enda á
öskuhaugunum!"
Sýning Rúnu mun halda áfram dag-
ana '18. og 19. júní að heimili hennar,
Látraströnd 7, Seltjarnarnesi.
BLOGGARINN...
Einkaviðtöl
„Erlendis eralgengt aö fiölmiöill
kaupi einkarétt á frásögn fólks af
tilteknum atburðum. Þá skuldbind-
ur fólkið sig til að ræða ekki við
aðra fjölmiðla um atburðinn. Aðrir
fjölmiðlar geta einungis sagt frá
atburðinum með því að vitna í þann
sem keypti einkaréttinn. Ávinningur
fjölmiðilsins sem kaupir einkarétt-
inn er tvíþættur. Annars vegar situr
hann fyrstur að frásögn. Hins vegar
er nafni fjöimiðiisins haldið á lofti
þegar aðrir fjölmiðlar fara að vitna
í hann. Þetta erþað sem kallast
einkaviðtöl. Hérlendis er ekki hefð
fyrir einkaviðtöium afþessu tagi.
íslenskir fjölmiðlar hafa ekki fetað
út á þá braut að borga fyrir viðtöt.
Það vantar þó ekki að fjölmiðlar,
einkum tímarit, auglýsi einkaviðtöi
við hinn og þennan. Án þess að um
einkaviðtal sé að ræða.“
Jens Kr. Guðmundsson
jensgud.blog.is
Sinfónían
„Sem áhugatónlistarmaður hefur mér
alltaf gramist að Islendingar haldi
úti og greiði hundruð milljóna til
að halda úti sinfóníuhljómsveitinni.
Þarna eru 45 manns á launum við
að saga fiðlur, 10 cellóleikarar og 7
bassaleikarar. Þá er þarna að finna
25 manns sem blása í lúðra og rör, 7
trommarar og 1 einmana píanóleik-
ari. Hljóðfæraleikararnir eru 97, þar
af eru 23 útlendingar eða 25% af
mannskapnum. Auk 97 hljóðfæraleik-
ara eru 11 starfsmenn til að þjóna
þeim, þar á meðal eru
tveir til að halda á nótun-
um og svo kona til að
færa þeim kaffið. Að
stærstum hluta er þessi
hljómsveit að spila í sífellu
sömu gömlu tónverkin eft-
ir Bach, Beethoven og
Brahms og margbúið
að setja þetta dót á
ptötur. Ég skil ekki
hvers vegna ekki er
búið að einkavæða
þessa hljómsveit."
Haukur Nikulásson
haukurn.blog.is
Vonbrigði
„Góðu fréttirnar: I gær varsagt frá þvi
að til standi að rifa Morgunblaðshöll-
ina.Vondu fréttirnar: Þetta reyndist
vera Morgunblaðshöllin í Kringlunni
- ekki þeirri við Aðalstrætið, sem er
hiklaust eitt af fimm verstu bygging-
arslysum Reykjavíkur. Megi Mogga-
bloggið lenda undirýtunum ... “
Stefán Pálsson
kaninka.net
Nefhjól 200 kg
461 S494063
TILBOÐ
3*690,-
5.614,-
Ferðakanna
093 RPK16TM
TILBOÐ
490,-
677,-
9
Þráðlaus bakk-
myndavél og skjár
875 CCD 570FP
Framlengingar-
snúra 12v
093 RP203EC
TILBOÐ
1.090,-
-1-652;-•
TILBOÐ
39.900,-
44.900;-
Framlengingar-
spegill
908 3000
TILBOÐ
10.900,-
-42.900;-
Sjúkrakassi/fyrsta hjálp
708 M30104
TILBOÐ
8*900,-
-10:068,-
ERTU KLAR
í FERÐALAGIÐ?
Tilboð á aukahlutum fyrir húsbíla og ferðavagna í verslun N1 Bíldshöfða
m/sogskálum
909 35196
TILBOÐ
fjoftehgi jfv 'y ,;:
í kveíkjara .
095422754
TILBOÐ
1 /j’ '• >/.’
.—____
Neyslurafgeymir
110 Ah
580 813010000
TILBOÐ
-II7.990,
20:859,-
;,:írí?t3m3slir
909 35312
TILBOÐ
rí- flUþfc /
/
*....
- GILOAIJUNÍ
N1 VERSLUN BILDSHÖFÐA 9 • SIMI 440 1200
WWW.N1.IS
OPIÐ VIRKA DAGA 8-18
OPIÐ LAUGARDAGA10-14
Wtfl lilB —i; 48»! 11T—111M) —li.i ———T