blaðið - 15.06.2007, Blaðsíða 16
16 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007
bla6ið
menninr
menning@bladid.net
Metleikár senn á enda
Nú er leikárinu að Ijúka í Borgarleikhúsinu, en yfir 160 þús-
und manns hafa lagt leið sína í leikhúsið og þegar mest var
komu 8.437 gestir á einni viku. Þetta er því metár í fjölda
gesta og aukning upp á 10 þúsund gesti frá því í fyrra.
Allir þiggja 0+
Erla Þórarinsdóttir opnar sýningu í Gallerí Anima, Ingólfs-
stræti 8, í dag, og þer sýningin yfirskriftina „0+“. 0+ er
þlóðflokkur, sérstakur og sameiginlegur, enda geta allir
við blóðgjöf þegið hann. Sýningin stendur til l.júlí.
Ögrandi list
Þetía ögrandi listaverk hefur vakið
mikla athygli í afríska skálanum á
Feneyjartvíæringnum. Verkið heitir
á „How To Blow Up Two Heads
At Once“ og er eftir nígeríska lista-
manninn Yinka Shonibare.
Þetta er í fyrsta skipti sem sér-
stakur skáli er tileinkaður Afríku á
Feneyjartvíæringnum, en 30 mis-
munandi listamenn eiga verk þar.
Gagnrýnisraddir hafa þó heyrst
sökum þess að öll listaverkin í skál-
anum koma frá sama listasafninu
sem er staðsett í höfuðborg An-
gólu, Lúanda. Verkin þykja vissu-
lega hvert öðru tilkomumeira, en
ekki er endilega talið víst að þau
gefi nógu góða mynd af þeirri fjöl-
breytni sem einkennir list álfunnar.
Engu að síður fagna því margir að
afrísk list fái nú loks þann sess
sem hún á skilið á hátíðinni
Blásið til
aukasýningar
Næstkomandi laugarðagskvöld
verður síðasta sýning sumarsins á
sýningu þeirra KK og Einars Kára-
sonar, „Svona eru menn“. Segja
má að með sýningunni sé komið
til sögunnar alveg nýtt leikhús- og/
eða sagnaform, en vegna fjölda
áskoranna er efnt til aukasýningar
á laugardagskvöldið þó svo að
síðasta sýningin hafi verið auglýst
29.maí. Enn eru nokkur sæti laus
á laugardaginn og hægt er að
nálgast miða í síma 437-1600 eða
á slóðinni landnámssetur.is
iðrg hom að líta þessa dagana:
Frá Feneyjartvíæringi
til Gljúfrasteins
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
Tónlistarkonan Ólöf Arnalds verð-
ur á stofutónleikum á Gljúfrasteini
á þjóðhátíðardaginn og hyggst
flytja lög af hljómplötu sinni Við
og við sem kom út fyrr á árinu. Tón-
listinni á plötunni hefur verið lýst
sem þjóðlagaskotinni melódiskri
popptónlist og að sögn Ólafar er
mögulegt að hún skjóti jafnframt
að nokkrum íslenskum þjóðlögum
og/eða lögum með textum Halldórs
Laxness, í tilefni af stund og stað.
„Það er mér mikill heiður að fá
að spila á Gljúfrasteini á sjálfan 17.
júní. Þetta er því ekki sist spenn-
andi tækifæri fyrir mig, og ég þótt
ég hafi aldrei komið á Gljúfrastein
hef ég heyrt afskaplega vel látið af
reynslu tónlistarmanna af því að
spila þar. Hljómburðurinn er vist
mjög fallegur og andrúmsloftið
gott,“ segir Ólöf.
Aðspurð segist hún hafa lesið
nokkrar bækur nóbelsskáldsins
eins og svo margir fslendingar og
nefnir sem dæmi Atómstöðina,
Sjálfstætt fólk, fslandsklukkuna og
fleiri. „En ætli Sjálfstætt fólksé ekki
svona í einna mestu uppáhaldi hjá
mér af þeim sem ég hef lesið enda
deili ég upplifuninni af henni með
svo mörgum. Það eru svo margir
sem hafa lesið bókina og hún er því
orðin rík bæði í minninu og þjóðar-
sálinni," segir hún.
Eins og fyrr segir hefur tónfistin
af plötunni Við og við meðal ann-
ars verið lýst sem þjóðlagaskotinni,
melódískri popptónlist, en sjálf seg-
Ólöf Arnalds Það er mér mikill
heiður að fá að spila á Gljúfra-
steini á sjálfan Þjóðhátíðardaginn.
ist Óiöf alltaf eiga dálítið erfitt með
að lýsa sinni eigin tónlist. „Þetta er
alltaf erfiðasta spurningin sem ég
fæ," segir hún. „Þetta eru sönglög
með íslenskum texta í fíngerðum
útsetningum við gítarspil og ég
myndi segja að þetta væri fremur
afslöppuð tónlist. Öll lögin voru tek-
in upp í heilum tökum í stúdíóinu,
það er að segja, bæði gítar og söng-
ur voru tekin upp í einu og því hef-
ur platan svolítið lifandi yfirbragð.
Mér finnst þessi tónlistarstíll henta
mér og minni söngrödd vel núna en
svo er auðvitað aldrei að vita hvað
verður í framtíðinni."
Þegar Blaðið náði tali af Ólöfu
var hún stödd í Róm á ítaliu. „Ég er
í smá fríi núna en ég var að koma
frá Feneyjum þar sem ég spilaði á ís-
lensku foropnuninni á Feneyjartví-
æringnum," útskýrir hún. „Svo var
ég líka þátttakandi í einu verkinu
sem við Steingrímur Eyfjörð, full-
trúi íslands á hátíðinni í ár, unnum
saman. Þar gerði ég ljóðabálk sem
var sunginn á myndbandi og svo
vann hann myndefni upp úr ljóða-
bálknum. Og að sjálfsögðu söng ég
allt á íslensku, eins og ég er vön.
Hún segir að sér virðist sem ís-
lenski sýningarbásinn sé ágætlega
sóttur þó svo að hann sé ekki stað-
settur á aðalsýningarsvæðinu þetta
árið. „Ég varð vör við töluverða
forvitni hjá fólki, að minnsta kosti
á meðan ég var þarna. Og ég er ekk-
ert hissa á því, enda er ég mjög hrif-
in af verkum Steingríms."
Stofutónleikarnir á Þjóðhátíðar-
daginn hefjast klukkan 16 eins og
vanalega og kostar 500 krónur inn.
Mynd/Eyþór
Tvær frábærar spennusögur
Myndræn, hröð atburðarás, vel skrifaðar
persónur í hrikalegum aðstæðum sem fá
mann til að naga neglurnur upp í kviku
sýna að Koontz er á toppnum ...
Sagan rennur vel... Fléttan gengur haganlega
upp og spennan helst allt til enda...
Þéttriðinn reyfari um raðmorðingja...
Publishers Weekly
>rtmn 'Sigufðardóttir. Rá
Skjaldborg
I hjólhýsi á Lækjartorgi
Hin svokaliaða Mergstað-fjöl-
skylda ætlar að koma sér fyrir á
Lækjartorgi í hjólhýsinu sínu á há-
degi í dag, en hún verður til sýnis
fyrir gesti og gangandi í tvo klukku-
tíma á vegum Skapandi sumarstarfs
Hins hússins. Fjölskyldumeðlimir
eru Höddi skítur, lélegur sjálfmennt-
aður bifélavirki, kona hans Fífí, sem
er dansari, bróðir Hödda, Gaddi Gól,
sem reynir að gera upp tölvur og
hans kona Dídí Gun sem er fyrrum
Hér og nú-stúlka og síðast en ekki
síst Maddý, mamman sem er fræg
fyrir núðluréttinn sinn.
Að sögn Gunnar Þórhallsdóttur,
sem titlar sig sem nána frænku fjöl-
skyldunnar, er helsta dægrastytting
hennar að sóla sig í letinni og skjóta
máva. „Þau verða með riffilinn á sér
niðri á Lækjartorgi, svona til vonar
og vara ef þau skyldu rekast á máv, en
þau eru samt búin að lofa að hleypa
ekkert af í þetta skipti," segir hún.
.Annars eru þau stórskemmtileg og
skrítin og það er sannarlega þess
virði að kíkja niður á Lækjartorg
og sjá þau við hjólhýsið sitt. I tilefni
dagsins ætla þau til dæmis að grilla
hamborgara fyrir sig og aðra áhuga-
sama en ég má þó til með að vara við
því að þeir geta orðið dálítið bragð-
vondir, enda eru borgararnir þeirra
gjarnan of steiktir og löðrandi."