blaðið - 15.06.2007, Side 21
blaðiö
FðSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2007 29
Skólahljómsveit Kópavogs aka
um bæinn og óska bæjarbúum
gleðilegrar hátíðar. Þá verður
skrúðganga farin frá Mennta-
skólanum í Kópavogikl. 13:30 og
lýkur henni á Rútstúni þar sem
við tekur hátíðar- og skemmti-
dagskrá.
Hafnfirðingar halda í skrúð-
göngu að lokinni helgistund í
Hellisgerði kl. 13:45, fjölskyldu-
skemmtun verður á Víðistaða-
túni og um kvöldið skemmtun
á Thorsplani.
Lúðrasveit Akureyrar ekur
um bæinn og vekur bæjarbúa
á 17. júní. Hátíðardagskrá hefst
í Lystigarðinum kl. 13 og hálf-
tíma síðar fer skrúðganga það-
an niður í bæ þar sem fjölskyldu-
skemmtun hefst kl. 14. Um
kvöldið verður síðan skemmt-
un á Ráðhústorginu.
Nánari dagskrá má sjá á
Víkingahátíð
Víkingahátíð í Hafnarfirði heldur
áfram um helgina eftir stutt hlé
og verður fjölbreytt dagskrá (
boði báða dagana. Víkingamark-
aður verður opnaður kl. 13 á
morgun og rekur síðan hver dag-
skrárliðurinn ahnan. Meðal ann-
ars verða bardagasýningar, bog-
fimikeppni, leikir og víkingaskóli
fyrir börn. i kvöld verður síðan
slegið upp veislu í Fjörukránni
og síðan verður dansleikur þar
sem Michael Black, Hilmar
Sverrisson og Helga Möller leika
oq syngia. „ E DO IJ8ey
Konur á hlaupum
Kvennahlaup íþróttasamband
íslands verður haldið á um 90 stöð-
um um land allt og á nokkrum stöð-
um erlendis á morgun, laugardag.
Stærstu hlaupin fara fram í Garða-
bæ þar sem ræst verður kl. 14 og í
Mosfellsbæ og Akureyri þar sem
ræst verður kl. 11.
1 Mosfellsbæ verður hlaupið frá
íþróttavellinum að Varmá en á Akur-
eyri verður hlaupið frá Ráðhústorgi.
Nánari upplýsingar um hlaupastaði
og leiðir má nálgast á heimasíðu Sjó-
vár sjova.is.
Þetta er í 18. sinn sem Kvenna-
hlaupið er haldið en það er útbreidd-
asti og fjölmennasti íþróttaviðburð-
ur sem haldinn er hér á landi á ári
hverju en um 18.000 konur taka þátt
í því árlega.
Að þessu sinni er Kvennahlaupið
í samstarfi við Hjartavernd og er yf-
irskrift hlaupsins „Hreyfing er hjart-
ans mál“. Markmið samstarfsins er
að vekja athygli á starfi Hjartavernd-
ar og beina kastljósinu að konum og
kransæðasjúkdómum, einkennum
og áhættu.
Konur á öllum aldri geta tekið
þátt í hlaupinu og er markmiðið
ekki að vinna heldur að fá konur til
að hreyfa sig meira og taka virkan
þátt í íþróttum.
Samhliða Kvennahlaupinu er efnt
til sérstaks leiks sem allir þátttak-
endur í hlaupinu geta tekið þátt í.
Þeir eru hvattir til að taka upp mynd-
ir eða myndskeið af sér eða hlaupa-
hópnum sínum í aðdraganda hlaups-
ins og senda það á kvennahlaup@
sjova.is. Síðan verður dregið úr inn-
sendum myndum og myndskeiðum
og hlýtur sú heppna dekurdag fyrir
allt að átta manns í Baðhúsinu.
Markmið leiksins er að hita upp
fyrir Kvennahlaupið með því að
gefa innsýn í undirbúning og að-
stæður hvers og eins.
Fjölmennt hlaup Um 18.000
konur taka þátt í Kvenna-
hlaupinu á ári hverju en það
er útbreiddasti og fjölmenn-
asti íþróttaviðburður sem
haldinn er hér á landi árlega.
• Skynsöm leið til að hætta því þú hættir á eigin hraða.
• NicoBloc hindrar allt að 99% af nikótíni og tjöru í filternum.
• Þú venur þig af nikótíni áður en þú drepur í.
"elpsred
*n® nicollnt
<# ftUered
HÆTTU IALVÖRU MED NICOBLOC
Þú setur NicoBloc í filter sígarettanna sem þú
reykir. Það hindrar nikótíniö og tjöruna i filternum
og þú byrjar að venjast af nikótininu. Um leið minnkar
þú reykingar þínar smám saman, eftir sex vlkur drepur þú f
sígarettunni og sleppur við venjulegu fráhvarfseinkennin. Flestir
sem nota.Nicobloc til að hætta, byrja ekki aftur að reykja.*
Nicobloc er gert úr 100% náttúrulegum efnum, það er ekki lyf
og Inniheldur ekki nikótln, þannig skiptir þú ekki sígarettufíkn
út fyrir aðra fíkn.
*Skv. rannsóknum sem skoða má á
Iff
Fæst í næsta apóteki