blaðið - 10.07.2007, Side 9
blaóiö
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2007
FRÉTTIR
9
Þurfti að hætta eftir 21 klukkustundar sund
Synti baksund til
að kasta ekki upp
Húsdýragarðurinn
Grútarblautum
erni bjargað
Vegfarandi um Kolgrafafjörð á
Snæfellsnesi bjargaði ófleygum
erni á föstudag með því að hafa
samband við Náttúrustofu Vestur-
lands sem kannaði málið.
Fuglinn var að sögn Skessuhorni,
handsamaður og sendur í Hús-
dýragarðinn í Reykjavíkþar sem
átti að þvo hann og fæða, þar sem
hann var grútarblautur, líklega
eftir viðureign við fýl. Ein kló var
brotin og stélið laskað. Án hjálpar
vegfarandans hefði fuglinn varla
lifað af. Fuglinn var ómerktur en
líklegast rígfullorðinn.
Bíldudalur
Kveikt var
í Litlu-Eyri
Eldur var borinn að iðnaðarhús-
næði að Litlu-Eyri á Bíldudal
þann 20. febrúar og rannsakar
lögreglan því brunann sem
íkveikju.
Brunabótamat hússins er, sam-
kvæmt fréttamiðlinum bb.is,
um 50 milljónir króna en engin
starfsemi var í húsinu þegar
það brann og hafði ekki verið í
einhvern tíma. Húsið var í eigu
Berglínar ehf. í Stykkishólmi.
Lögreglan hvetur alla þá sem
hugsanlega búa yfir vitneskju um
eldsvoðann til að hringja í síma
450-3730 eða 450-3744.
Flugumferð
Næst-annasam-
asti dagurinn
Á sjötta hundrað flugvéla fóru
um svæði íslenskrar flugum-
ferðarstjórnar frá sunnudegi til
mánudags og var sólarhringur-
inn sá annar annasamasti hingað
til. Meðaltalið er innan við tvö
hundruð vélar á sólarhring.
Öll umferð frá Evrópu til Amer-
íku fór í gegnum svæði hér vegna
hagstæðra vinda, samkvæmt
upplýsingum Flugstoða.
s /( bI p á-'H bd
Akureyri
Gaf þrjár millj-
ónir til aldraðra
Margeir Steingrímsson, íbúi á
dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Hlíð á Akureyri, færði Öldrun-
arheimilum Akureyrar peninga-
gjöf að upphæð þrjár milljónir
króna. Gjöfin rennur í gjafasjóð
Öldrunarheimila Akureyrar og
á að nýta hana til að bæta og
endurnýja húsbúnað og tæki
heimilanna.
Benedikt S. Lafleur, sem gerði til-
raun til að synda yfir Ermarsund frá
Dover í Englandi til Calais í Frakk-
landi, þurfti að hætta sundi um mið-
nætti í fyrrinótt eftir að hafa synt í
21 klukkustund.
„Það var virkilega svekkjandi að
þurfa að hætta sundi þegar ég var
farinn að sjá til lands. Mér sýndust
vera 4 eða 5 kílómetrar eftir þegar
minnst var,“ sagði Benedikt þegar
Blaðið hafði samband við hann.
Hann var að vonum þreyttur eftir
sundið, enda hafði hann synt rúm-
lega 25 kílómetra.
„Fyrsti kaflinn gekk frekar erf-
iðlega, en svo tók við langur kafli
með sól og stillu - nánast eins og
að synda í sundlaug. En þegar ég
nálgaðist Frakklandsstrendur lenti
ég í miklum straumum; stóð í stað
og rak jafnvel frá landi. Það tafði
mig of mikið til að ég gæti klárað
sundið,“ sagði Benedikt, sem segist
munu stunda sjósund áfram, þótt
hann telji ósennilegt að hann reyni
aftur við Ermarsundið á næstunni.
Bátur fylgdi Benedikt alla leið
og rétti áhöfnin honum næringu
í vökvaformi. „Það gerði mér erfið-
ara fyrir að ég átti erfitt með að nær-
ast, bæði sökum öldugangs og eins
sökum velgju. Á tímabili varð ég
að synda baksund til að kasta ekki
upp.“ hlynur@bladid.net
STUTT
• Lyfjaakstur ökumaður um
tvítugt var stöðvaður í Kópa-
vogi í fyrrinótt í reglubundnu
eftirliti lögreglunnar. Kom þá
í ljós að maðurinn var undir
áhrifum lyfja og með réttindi í
ólagi. Einnig fundust eiturlyf í
bílnum.
• Flugfélagið Engum fast-
ráðnum flugmönnum hefur
verið sagt upp hjá Flugfélagi
íslands fyrir næsta vetur. Fé-
lagið réð 14 flugmenn til sum-
arstarfa í ár en óijóst er hvort
einhver jir þeirra halda vinnu
í vetur. Það ræðst af því hvort
einhverjir fastráðnir flug-
menn fara i launalaus leyfi.
mbl.is
THIIftl
Upplifðu ísland með Thule ferðavörum
Ferðabox verð frá 24.900,-
Allar upplýsingar um THUIJE ferðaboxin
er að finna á vef Stillingar www.stilling.is
í Stilli
www.stilling.is // stilling@stilling.is
Skeifan 11,108 Reykjavik | Bildshöfði 12,110 Reykjavík | Smiöjuvegur 68, 200 Kópavogur | Dalshraun 13, 220 Hafnarfjörður
Draupnisgata 1, 600 Akureyri | Eyrarvegur 29, 800 Selfoss. | Simi: 520-8000