blaðið - 10.07.2007, Síða 11
blaðiö
ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI 2007
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
757 vélarnar okkar fljúga í níu tíma.
Þessi vél getur flogið í allt að nítján tíma.
Þannig að það er varla sá staður í heim-
inum sem ekki er hægt að fljúga til
Bylting í flug-
vélasmíði
■ Ný þota Boeing færir flugfélögum ný tækifæri ■ Líklegt að
rekstrarkostnaður lækki töluvert
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@bladid.net
Flugvélaframleiðandinn Boeing
kynnti í gær nýja þotu sem talið er
að muni umbylta flugheiminum.
Léttari, sparneytnari og
langfleygari
Þotan sem ber nafnið 787 Dream-
liner er fyrsta stóra farþegaþotan
sem er að meirihluta gerð úr kol-
trefjaefnum. Koltrefjaefni eru bæði
léttari og endingarbetri en ál sem
hingað til hefur mest verið notað í
þotur af þessu tagi og því er þotan
mun léttari en aðrar sambærilegar
þotur. Af því leiðir að hún eyðir um
20 prósentum minna eldsneyti og
hefur töluvert meira flugþol.
Með sjö í takinu
Icelandair hefur nú þegar tryggt
sér fjórar 787 þotur. „Fyrstu tvær
koma á árinu 2010 og svo aðrar tvær
2012. Svo höfum við möguleika á
þremur til viðbótar sem við erum
ekki búin að negla dagsetningar á,“
segir Jón Karl Ólafsson, forstjóri
Icelandair.
Hann segist mjög spenntur fyrir
BOEING 787 DREAMLINER
► Nú þegar hafa 677 þotur
verið pantaðar af 47 fyrir-
tækjum. Þær eru meira en
100 milljarða virði.
►
50% þotunnar er úr kol-
trefjaefnum en aðeins 12%
af síðustu nýju þotunni frá
Boeing, 777.
W. Vegna þess að koltrefjaefn-
™ in tærast ekki verður hægt
að hafa rakastig í farþega-
rýmum mun meira en nú
þekkist.
þessum nýju þotum því þær muni
líklega koma til með að lækka rekstr-
arkostnað töluvert. „Þær munu eyða
mun minna eldneyti, eða um 20 pró-
sentum minna á hvert sæti miðað
við vélarnar nú,“ segir Jón Karl og
bætir við: „Eldsneytisverð hefur þre-
faldast á síðustu árum þannig að
þetta verður gríðarlegur munur ef
sú þróun heldur áfram.“
Þá segir Jón Karl koltrefjaefnin
vera gríðarlega sterk efni sem þurfa
minna viðhald en álið sem hefur
verið ráðandi í eldri vélum. „Tær-
ingar verða til dæmis miklu minna
vandamál," segir Jón Karl.
Nýju vélarnar opna einnig ný tæki-
færi fyrir Icelandair. „757 vélarnar
okkar fljúga í níu tíma. Þessi vél getur
flogið í allt að nítján tíma. Þannig að
það er varla sá staður í heiminum
sem ekki er hægt að fljúga til,“ segir
Jón Karl og nefnir staði eins og
Moskvu og Asíu sem dæmi.
Umhverfisvænni
Útblástur farþegaþotunnar er um
20 prósentum minni en hjá eldri
þotum. Umhverfisverndarsinnar
víða um heim hafa fagnað tilkomu
þotunnar en hafa þó slegið ýmsa
varnagla. Þeir eru einkum þeir að
minni rekstrarkostnaður mun hafa í
för með mér auknar flugsamgöngur
og því verður heildarútblásturinn
áfram jafn mikill eða jafnvel meiri.
Þrátt fyrir að mikið sé talað um að
í framtíðinni muni koltrefjaefni líkt
og notuð eru í 787 ryðja áli úr vegi þá
hækkaði gengið í Alcoa, næststærsta
álframleiðanda í heimi, í gær.
VILTU VITA MEIRA?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
MARKAÐURINN í GÆR
• Mest viðskipti í Kauphöll OMX
voru með bréf Kaupþings, fyrir
3,3 milljarða króna. Næstmest víð-
skipti voru með bréf Landsbankans,
fyrir 2,6 milljarða.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Exista, 4,78%. Bréf Icelandair
hækkuðu um 3,67% og bréf Kaup-
þings um 2,69%
• Mesta lækkunin í gær var á
bréfum Össurar, eða 2,27%. Bréf
Atlantic Petroleum lækkuðu um
0,46%.
• Úrvalsvísitalan hækkaði um
1,82% og stóð í 8.701 stigi í lok
dags.
• fslenska krónan styrktist um
0,69% í gær.
• Samnorræna OMX40-vísitalan
hækkaði um 0,62% í gær og
Nikkei-vísitalan í Japan um 1, 3%.
Þýska DAX-vísitalan hækkaði um
0,4%.
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá 0MX á íslandi, 9. júlí 2007
Viðskipti í krónum Heildar-
ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viðskipti Tilboð í lok dags:
Félog í úrvalsvísitölu verð breyting viðsk.verös vlöskipta dagsins Kaup Sala
▼ Actavis Group hf. 88,90 -0,11% 9.7.2007 2 346.710 88,80
♦ Atorka Group hf. 9,00 0,00% 9.7.2007 9 16.989.906 8,95 9,04
▲ Bakkavör Group hf. 70,70 1,00% 9.7.2007 20 227.109.444 70,40 70,90
a Existahf. 38,35 4,78% 9.7.2007 64 1.019.042.674 38,15 38,35
a FL Group hf. 30,10 0,67% 9.7.2007 32 685.849.848 30,05 30,20
a Giitnir banki hf. 28,95 0,52% 9.7.2007 94 2.328.682.164 28,95 29,00
▼ Hf. Eimskipafólag íslands 39,55 ■0,63% 9.7.2007 6 2.526.323 39,55 39,65
a lcelandair Group hf. 31,10 3,67% 9.7.2007 26 729.136.378 31,00 31,15
a Kaupþing banki hf. 1220,00 2,69% 9.7.2007 120 3.326.119.248 1218,00 1221,00
a Landsbanki íslands hf. 39,70 2,06% 9.7.2007 88 2.565.975.299 39,65 39,75
Mosaic Fashions hf. 17,00 6.7.2007 - - 16,90 17,20
Straumur-BurSarás Fjárf.b. hf. 22,85 9.7.2007 114 1.402.939.711 22,80 22,85
A Teymlhf. 5,39 2,08% 9.7.2007 16 93.064.985 5,32 5,39
v Össurhf. 107,50 •2,27% 9.7.2007 17 78.189.159 106,00 107,00
Onnur bréf ó Aðallista
♦ 365 hf. 3,37 0,00% 9.7.2007 1 661.032 3,37 3,40
* Alfescahf. 5,82 1,39% 9.7.2007 2 6.074.144 5,80 5,88
▼ Atlantic Petroleum P/F 1085,00 ■0,46% 9.7.2007 2 906.851 1075,00 1085,00
♦ Flaga Group hf. 1,90 0,00% 29.6.2007 - - 1,90 1,92
*■ ForoyaBank 232,00 1,09% 9.7.2007 34 13.383.951 229,00 230,00
♦ lcelandic Group hf. 6,40 0,00% 6.7.2007 1 211 6,40 6,44
a. Marelhf. 91,60 1,10% 9.7.2007 4 36.540.000 91,40 91,90
♦ Nýherji hf. 19,20 0,00% 21.6.2007 - - 19,50
♦ Tryggingamiðstöðin hf. 39,30 0,00% 20.6.2007 - 39,25 39,60
♦ Vinnslustððin hf. 8,50 0,00% 25.6.2007 - -
First North á Islandi
a Century Aluminium Co. 3640,00 2,25% 9.7.2007 6 54.546.320 3629,00 3653,00
♦ HBGrandihf. 12,00 0,00% 2.7.2007 mmm mmm 12,50
♦ Hampiðjanhf. 7,00 0,00% 20.6.2007 . . 7,70
Nýr norskur
Nýr olíu- og gasrisi
varð til í Noregi í síð-
ustu viku er aukaaðal-
fundir í Norsk Hydro
og Statoil samþykktu
samruna. Norsk
Hydro mun afhenda
Statoil olíu- og gas-
framleiðsluhluta fyr-
irtækisins og einbeita
sér að álframleiðslu og
vatnsaflsvirkjunum í
framtíðinni, að því er
fram kemur í norskum fjölmiðlum.
Nýja fyrirtækið mun fyrst um sinn nefnast Statoil Hydro. Samanlögð
framleiðsla þess verður 1,9 milljónir tunna á dag og birgðirnar eru sam-
anlagt 6,3 milljarðar tunna.
oliurisi
Sænskir atvinnurekendur vilja evru
Ný könnun meðal sænskra atvinnurekenda sýnir að 60% þeirra telja
það hafa neikvæð áhrif að Svíþjóð standi utan evrusvæðisins.
„Evran er heimsgjaldmiðill. Fyrirtækin telja að það komi niður á
samkeppnishæfni þeirra að búa annars vegar við gjaldeyriskostnað
og hins vegar við þá huglægu hindrun sem felst í því að standa fyrir
utan,“ segir Anna-Stina Nordmark, nýr framkvæmdastjóri sænsku
atvinnurekendasamtakanna.
í viðtali við Dagens Industri skammar Nordmark stjórn Fredriks Rein-
feldts fyrir að taka ekki afstöðu til evrunnar og segir stöðu Svíþjóðar
hafa breyst frá því að evrunni var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu fyrir
fjórum árum. Til dæmis hafi fleiri ríki bæst við evrusvæðið.
Stressandi aö vera atvinnulaus
Öfugt við það sem margir halda
fylgir því meiri streita að vera
atvinnulaus en að vera upptek-
inn í vinnu. Þetta kemur fram
í könnun sem danska blaðið
Politiken segir frá.
Þannig segjast 52% atvinnu-
lausra upplifa talsverða eða
mikla streitu, en samsvarandi
hlutfall hjá þeim sem hafa vinnu er 34%.
Bo Netterstrom, yfirlæknir hjá Stressklinikken í Hillerod, segist ekki
hissa á þessum niðurstöðum. Það valdi streitu að hafa hvorki vinnu né
tekjur og búa við óvissu um framtíðina.
í samtali við blaðið segist Lars Preisler, talsmaður samtaka lífeyris-
sjóða, að óvenjulega lítið atvinnuleysi í Danmörku kunni að ýta undir
streitu atvinnulausra. Áður hafi fólk getað kennt samfélaginu um að
það hefði ekki vinnu. Nú fái atvinnulausir fremur á tilfinninguna að
það sé þeim sjálfum að kenna að þeir finni ekki starf.
blaði
þriöjudaga
Auglýsingasíminn er
510 3744