blaðið - 11.08.2007, Side 12

blaðið - 11.08.2007, Side 12
12 FRETTIR LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST 2007 blaöiö pnnanHMHaH Flugslys Tuttugu - létust er flugvél hrapaði skömmu eftir flugtak. Tuttugu létust í flugslysi Tuttugu manns létust þegar flugvél hrapaði skömmu eftir flugtak í Frönsku Pólýnesíu í Kyrrahafi i gær. Vélin var á leið frá eyjunni Mo- oreu til Tahítí, sem er einungis í sautján kílómetra fjarlægð. Meðal farþega vélarinnar voru tveir starfsmenn Evrópusambandsins, tveir Bandaríkjamenn og fímm starfsmenn umhverfisráðuneytis Frönsku Pólýnesíu. Ekkert liggur fyrir um orsök slyssins. Þúsundir veikjast Þúsundir manna hafa veikst á flóðasvæðunum í Indlandi, Bangladess og Nepal undanfarna daga. Hjálparstarfsmenn hafa átt í vandræðum með að hlúa að bágstöddum vegna ófullnægjandi hjálpargagna. Mikill fjöldi hefur þegar sýkst og þurft á aðhlynn- ingu að halda vegna niðurgangs, en sérfræðingar segja staðið vatn vera gróðrarstíu fyrir hitabeltis- sjúkdóma á borð við malaríu og beinbrunasótt. aí Námumenn ófundnir Björgunarmönnum hefur enn ekki tekist að ná til sex námu- verkamanna sem festust á um 450 metra dýpi í kolanámu í Utah-ríki í Bandaríkjunum eftir grjóthrun á mánudaginn. Borað var þröngt gat niður í rýmið í gær, þar sem talið er að þeir séu fastir. Óljóst er hvort mennirnir eru enn á lífi. Forsvarsmenn námunnar segja að séu mennirnir á lífi ættu þeir að hafa drykkjarvatn og súrefni sem ætti að nægja í margar vikur. aí Fljúga aftur yfir Guam Rússneskar orrustuflugvélar flugu fyrr í vikunni yfir eyjuna Guam í Kyrrahafi í fyrsta sinn frá lokum kalda stríðsins. A eyjunni er banda- rísk herstöð og er talið að Rússar hafi með fluginu viljað sýna hernað- arlegan styrk sinn. Að sögn rússnesks hershöfðingja brostu rússnesku flugmennirnir til flugmanna bandarískra flugvéla sem mættu þeim. Flug rússnesku vélanna var þáttur í umfangsmikilli þriggja daga heræf- ingu flughersins. Að hringja kollekt í pabba til að spara Kollekt Það er Síminn'' Vamarmálaráðherra ísraels Enginn friður næstu árin Ehud Barak, varnarmálaráðherra ísraels, segir engan möguleika á að ísraelsmenn og Palestínumenn nái friðar- samkomulagi sín á milli á næstu þremur til fimm árum. f frétt ísraelska blaðsins Yedioth Ahronoth kemur fram að Barak segir að hugmyndir um frið á næstunni milli fsraels og Palestínumanna séu ekkert nema draumórar. Barak á að hafa látið ummælin falla í einkasamtölum. „ísraelsmenn munu ekki draga herlið sitt til baka frá Vesturbakkanum áður en lausn fæst á eldflaugaárásum Palestínumanna. Það mun taka að minnsta kosti þrjú til fimm ár.“ Barak á einnig að hafa sagt að hann muni ekki leyfa að vegatálmar ísraela á Vesturbakkanum verði fjarlægðir. Orðin stangast á við orð Ehuds Olmerts, forsætisráð- herra fsraels, sem lofaði Mahmod Abbas Palestínufor- seta fyrir stuttu að um hundrað slíkir yrðu brátt fluttir á brott. aí Ófriður áfram Barak segir hug- myndir um frið á næstunni ekkert nema draumóra. Hlutabréf halda áfram að lækka ■ Lækkunin rakin til húsnæðislána í Bandaríkjunum ■ Úrvalsvísitalan lækkaði um þrjú og hálft prósent Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Hlutabréf héldu áfram að lækka í verði á mörkuðum heims í gær. Arnar Freyr Ólafsson, sérfræð- ingur hjá Glitni, segir að helst megi rekja lækkunina til húsnæðislána í Bandaríkjunum. „Óvissa ríkir um afskriftir endakaupenda þessara skuldabréfa. Ákveðinn hópur sem hefur fengið skuldabréf gefin út í Bandaríkjunum sem eru notuð til að fjármagna húsnæðiskaup, getur ekki staðið undir þessum skuld- bindingum og þar af leiðandi ekki borgað lánin. Menn sjá því fram á einhverjar afskriftir í bókum hjá fjár- málafyrirtækjum, lífeyrissjóðum og áhættufjárfestingarsjóðum.“ Mikil niðursveifla varð á hluta- bréfamörkuðum strax við opnun markaða í gærmorgun. Arnar Freyr segir að niðursveiflan í Bandaríkj- unum hafi smitað út frá sér um allan heim. „Huglægu áhrifin á ís- lenska markaðinn hafa verið mjög sterk. Þetta gæti einnig haft áhrif á ytri þætti og haft neikvæð áhrif á tekjumyndun." Dæla inn fé Seðlabankar víðs vegar um heim hafa reynt að bregðast við ástand- inu og lýsti seðlabanki Bandaríkj- anna því yfir í gær að hann væri reiðubúinn að veita bönkum að- gang að auknu fé til að bregðast við verðfallinu. Annan daginn í röð dældi evrópski seðlabankinn miklu fjármagni inn á markaðina, að sögn til að tryggja ástandið á mörkuðum evrulandanna. Evrópski seðlabank- inn hefur því lagt bönkum á evru- sæðinu til 156 milljarða evra síðustu tvo daga, sem jafngildir um 14 þús- HLUTABRÉF LÆKKA W Breska FTSE-vísitalan, franska Cac-vísitalan og samnorræna OMX-vísitalan lækkuðu allar um þrjú til fjögur prósent í gær. Þýska Dax-vísitalan lækkaði um 1,6 prósent. W. Seðlabankar víðs vegar um ^ heiminn reyndu að bregð- ast við ástandinu með því að dæla fé inn á markaðina í gær. und milljörðum íslenskra króna. Á fréttavef BBC segir að lækkunin geti gert bönkum, fyrirtækjum og einstaklingum erfitt að fá aðgang að lánsfé og að ef ekki verði breyt- ing á geti það leitt til alþjóðlegrar kreppu. Óvissa um framhald Arnar Freyr segir talsvert mikla óvissu um hvort framhald verði á lækkun á alþjóðlegum mörkuðum. „Þar til menn hafa komið með lausn á vandamálinu er líklegt að þetta komi til með að lækka áfram vegna óvissunnar. Það hefur enginn bent á hve stórt vandamálið sé, en ég tel að áhrifin af þessu verði að baki í september eða október." Gengi bréfanna í kauphöllinni voru á mikilli hreyfingu i gær. Úr- valsvísitalan lækkaði um 3,47% og fór þar með niður fyrir átta þúsund stig. Mesta lækkunin var á bréfum Exista sem lækkuðu um 6,47%. HVAÐ VANTARUPP A? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net Aö svara tölvupósti með farsímanum þegar þú bíður eftir að komast á teig á fyrstu holu blackberry (•| Það er Síminn" STUTT • Pyntingar Sonur Muammars Gaddafis, leiðtoga Líbíu, segir að búlgörsku heilbrigðisstarfs- mennirnir sem voru fangelsaðir eftir að hafa verið sakaðir um að smita um 450 börn af HlV-veir- unni, hafi verið pyntaðir af lög- reglu til að ná fram játningum. • Fjárfestingar Reiknað er með að Suður-Kóreumenn muni bjóðast til að fjárfesta mikið i norðurkóreskum fyrirtækjum til að styrkja innviði norður- kóresks samfélags, á fyrirhug- uðum fundi leiðtoga ríkjanna í lok mánaðarins.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.