blaðið - 11.08.2007, Page 32

blaðið - 11.08.2007, Page 32
LAUGARDAGUR 11. AGUST 2007 blaóió Ll FSSTILLSPJ ALLIÐ bladid@bladid.net Þau veltu fyrir sér hvað þau höfðu gert rangt og skildu ekki hvernig ég gat vitað að ég væri samkynhneigð ef ég hefði ekki verið með strák. Hinsegin dagar standa sem hæst þessa dagana og hápunktur þeirra er í dag, þegar þúsundir manna ganga niður Laugaveginn til að gleðjast með samkyn- hneigðum. Þótt margt hafi áunnist í réttindabar- áttu samkynhneigðra undanfarin ár eiga sumir í innri baráttu sem fylgir því að ákveða að koma út úr skápnum. Þótt það ætti að vera sjálfsagt að viðurkenna samkyn- hneigð sína fyrir sjálfum sér og öðrum mæta sumir ennþá fordómum. Blaðið fékkfimm þjóðþekkta íslendinga til að segja frá því þegar þeir komu út úr skápnum. Jón Þór Þorleifsson, framleiðandi og smaii Að lifa sínu rétta lífi Ég kom út úr skápnum þegar ég yar rúmlega tvítugur, fyrir tíu árum. Ég hafði það sem útgangspunkt að ég væri hættur að blekkja mig og aðra og það reyndist mér mjög vel. Eg var búinn að ímynda mér allt það versta áður en ég sagði fólki frá þessu. Ég held það sé eðlilégt í svona ferli og það tók rosalega langan tima að ákveða að segja frá og fara að lifa sínu eigin lífi, rétta lífinu. Mínir nánustu tóku fréttunum mjög vel en ég er svo heppinn að eiga góða fjöl- skyldu. Ég byrjaði á að segja foreldrum mínum þetta og svo nánustu vinum. Ég lagði út frá því að vinir mínir spyrðu mig og þetta var rætt vel og ítarlega. Ég hef vitað að ég væri samkynhneigður frá því ég var unglingur, þegar maður fattaði að vinirnir voru voðalega hrifnir af einhverjum stelpum. Ég var líka dug- legur að tala um hvað hin og þessi stelpa væri flott, þó ég hefði engan áhuga á þeim og horfði yfirleitt á gaurinn við hliðina á þeim. Mér líður miklu betur eftir að ég kom út en lífið hefur svo sem ekkert breyst og þetta hefur engin áhrif á lífsmynstur mitt. Að koma út úr skápnum! Sýni eðlilegum . fordómum skilning Það er enginn einn dagur í mínu lífi sem ég kom út úr skápnum heldur gerðist þetta smátt og smátt. Eg vissi af þessu frá því ég var krakki þótt það væri ekkert verið að tala um það. Ég var líka smástund að átta mig á þessu sjálf. Ég er yfirleitt frekar róleg í tíðinni og rétt eins og maður var sjálfur smástund að átta sig á þessu þá finnst mér alveg sjálf- sagt að aðrir fái tíma til að átta sig. Þó það sé reyndar skrýtið að það sé ennþá frétt að einhver skuli vera samkynhneigður. En það er með þetta eins og annað, það eru tekin tvö skref áfram og eitt skref aftur á bak. Þjóðfé- lagið hefur alltaf tilhneigingu til að verða frjálslyndara, en svo koma einhverjir íhalds- gaurar og taka smá til baka aftur. Fólk í mínu umhverfi brást mjög vel við þegar það frétti , af minni samkynhneigð. Ég er í ákveðnu starfi og er fyrst og fremst þekkt fyrir það. Svo kemur hitt svona auka. Ég hef ekki hitt neinn sem hefur ekki fundist það í lagi. Á vissan hátt verður maður að sýna eðlilegum skammti af fordómum skilning en berjast gegn heiftarlegum fordómum. Ákveðin forréttindi að vera hommi Ég kom út úr skápnum fyrir ellefu árum. Það var erfitt, það er nær alltaf erfitt að koma út þar sem í því felst ákveðin breyting á sjálfsmynd. Við erum öll alin upp í gagnkyn- hneigðu umhverfi og maður þarf að setja á sig sína samkynhneigðu ímynd, því allir ætlast til að við séum gagnkynhneigð. Ég fékk gríðar- lega mikinn stuðning þegar ég kom út, bæði frá fjölskyldu minni, sambýliskonu minni og fjölskyldu hennar og öllum vinum mínum. Ég hafði hreinlega ekki áttað mig á að ég myndi fá svona mikinn og góðan stuðning úr öllum áttum. Það kom mér mjög skemmtilega á óvart og skipti verulega miklu máli. Maður var eig- inlega búinn að ímynda sér að maður fengi nei- kvæð viðbrögð og ég hafði málað þetta mjög dökkum litum. Þetta er svo mikið umbreyt- ingarferli að allir sem eru að koma út þurfa á þessum stuðningi og styrk að halda. Þegar þessi innri átök eru yfirstaðin þá tekur ekkert annað við en hrópandi hamingja, lífsgleði og skemmtilegheit. Eg held að manni sjálfum líði miklu betur sem og öllum sem umgangast mann. Það eru ákveðin forréttindi falin í því að vera samkynhneigður því maður fær að kynnast heiminum frá fleiri sjónarhornum. Baldur Þórhallsson, stjórnmálafræðingur Hamingja á okkar eigin forsendum Ég held ég hafi aldrei verið inni í einhverjum skáp en ætli ég hafi ekki verið um 16 ára þegar ég gerði umhverfinu grein fyrir því hver ég væri. Þetta lá allt mjög ljóst fvrir snemma og ég vissi í raun alla tíð af þessu. Eg tjáði foreldrum mínum þetta frekar fljótt og fékk þessi hefð- bundnu viðbrögð. Þau veltu fyrir sér hvað þau hefðu gert rangt og skildu ekki hvernig ég gat vitað að ég væri samkynhneigð ef ég hefði ekki verið með strák. Ég get ekki sagt að líf mitt hafi breyst mikið eftir þetta. Ég var rosalega ung þegar ég vissi hvert ég stefndi en mesta breytingin var að ég gerði mér grein fyrir því að ég gæti verið ég sjálf án þess að þurfa að skipta um kyn. Að koma út úr skápnum árið 1980 á íslandi var ekki kræsilegt og í raun og veru treysti ég mér ekki til að búa mér mann- sæmandi líf hér og hálfpartinn flúði til útlanda í nám. Samfélagið var allt svo fjandsamlegt og það sem var verst var þögnin. Það var ekkert um okkur talað. Hins vegar er mikilvægast að nú höfum við rétt á að finna hamingju á okkar eigin forsendum. Skammast mín ekki fyrir sjálfan mig Það var engin stórkostleg athöfn þegar ég kom út úr skápnum. Ég gerði þetta mjög hægt og rólega. Mér leið aldrei eins og ég væri í felum. Sjálfur fattaði ég þetta eiginlega á eftir öllum öðrum. Er maður ekki kominn út úr skápnum þegar maður segir mömmu sinni eða pabba frá samkynhneigðinni? Það skemmtilega við það hjá mér er að það liðu sjö ár á milli þess að ég sagði mömmu frá því og svo pabba. Ég var ekki tilbúinn að segja pabba frá þessu strax, mér fannst það líka skipta litlu máli því ég var í litlum sam- skiptum við hann á þessum tíma. Ég var 17 ára í fyrsta skipti sem ég sagði einhverjum frá þessu. Mér fannst það ekki erfitt og í minn- ingunni er það bara skemmtilegt. Þótt ég flíki ekki kynhneigð minni þá skammast ég mín alls ekki fyrir að vera það sem ég er. Hins vegar er hrópað hommi á eftir mér hverja ein- ustu helgi í miðbæ Reykjavíkur. Ég kippi mér ekki upp við það og kalla á móti: „Straight- ari“. Þeir sem taka því illa þegar maður segist vera hommi tala ekki við mann þannig að ég tek ekki eftir því. En það eru alltaf einhverjir.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.