blaðið - 13.09.2007, Síða 4
FRETTIR
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007
blaöió
Tillögur um lengt
fæðingarorlof væntanlegar
Hrannar Björn Arnarsson, aðstoðarmaður félagsmálaráðherra, segir
að lög um fæðingar- og foreldraorlof séu í endurskoðun og að til standi
að leggja fram frumvarp um breytingu á þeim á næsta þingi. Mælt var
fyrir um það í stjórnarsáttmálanum að lengja skyldi fæðingarorlofið í
áföngum.
Enn tómlegt
á jólaborðum
landsmanna
Aðeins má veiða rjúpu í 18 daga í
haust og verður heimilt að veiða
38.000 fugla. Áfram verður sölu-
bann á rjúpu og rjúpnaafurðum.
Er ákvörðun umhverfisráðherra
m.a. byggð á því mati Umhverf-
isstofnunar að rjúpum hafi nú
fækkað annað árið í röð. Áfram
verður u.þ.b. 2600 km2 svæði á
Suðvesturlandi friðað fyrir veiði.
Þjóðleikhúsráð
Þorgerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra
hefur skipað í Þjóðleikhúsráð
og gildir skipunin til fjögurra
ára. Ráðherra skipaði Ingimund
Sigfússon formann og Halldór
Guðmundsson varaformann.
Kolbrún Halldórsdóttir, Ran-
dver Þorláksson, tilnefndur af
Félagi íslenskra leikara, og Ásdís
Skúladóttir, tilnefnd af Félagi
leikstjóra á íslandi, skipa einnig
ráðið.
aí
Sektaðir á 45 km hraða
Brot 184 ökumanna voru mynduð
á Digranesvegi á þriðjudag-
inn. Lögregla fylgdist með öku-
tækjum sem var ekið í austurátt
á móts við Menntaskólann í
Kópavogi, en þar er þrjátíu kíló-
metra hámarkshraði. Á tveimur
klukkustundum, síðdegis, fóru
288 ökutæki þessa akstursleið og
því ók meirihluti ökumanna of
hratt eða yfir afskiptahraða.
Meðalhraði hinna brotlegu
var tæplega 45 kílómetra hraði
en sá sem hraðast ók var mældur
á sextíu. Eftirlit lögreglu kom í
kjölfar ábendinga frá íbúum sem
kvörtuðu undan hraðakstri á
þessum stað. aí
Karlamir aldrei
meira með bömin
■ Taki karlar jafnmikið orlof og konurnar verða þær oft fyrir að-
kasti ■ Frjósemi kvenna hefur aukist með lengra fæðingarorlofi
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@bladid.net
Ingólfur V. Gíslason, félagsfræð-
ingur og sviðsstjóri hjá Jafréttisstofu,
segir að karlmenn hafi áreiðanlega
aldrei fyrr í íslenskri sögu verið
jafnvirkir við umönnun ungbarna
og í dag. Ingólfur heldur í dag fyr-
irlestur á vegum Rannsóknastofu í
kvenna- og kynjafræðum í Hátíðar-
sal Háskóla Islands þar sem hann
mun fjalla um þróun fæðingar- og
foreldraorlofs eftir lagasetningu um
þau mál árið 2000.
Ingólfur ætlar að velta því fyrir
sér að hve miklu leyti markmiðum
laganna hafi verið náð.
„Það markmið laganna að ung-
börn njóti samvista við báða for-
eldra hefur klárlega náðst. Karl-
menn hafa alveg áreiðanlega aldrei
fyrr í íslenskri sögu verið jafnvirkir
við umönnun ungbarna og í dag. Að
sama skapi hafa lögin örugglega haft
áhrif á frjósemi kvenna. Hún hefur
aukist í kjölfar lagasetningarinnar.“
Ingólfur segir lögin líklega hafa
stuðlað að jöfnun stöðu karla og
kvenna á vinnumarkaði og að ekki
sé ólíklegt að framhald verði áþeirri
þróun standi ríkisstjórnin við það
loforð sitt að lengja orlofið og halda
jöfnum rétti karla og kvenna til þess.
„Megingalli laganna nú er þetta bil
frá því orlofi lýkur og þar til leikskól-
arnir taka við. Raunin er að mæður
brúa þetta bil í ríkari mæli en feður
með því að breyta vinnumarkaðs-
þátttöku sinni,“ segir Ingólfur.
Konurtaka megnið af orlofinu
Ingólfur segir það einnig athygli-
vert að þær breytingar á hlutverka-
skiptum karla og kvenna sem
lögin hafi í för með sér virðist að
sumu leyti erfiðari fyrir konur en
karla. „Það virðist ekki vera stór-
mál fyrir karla að taka að sér þetta
hefðbundna umönnunarhlutverk
kvenna, en að sumu leyti er þetta
erfiðara fyrir mæðurnar. Sérstak-
lega í þeim tilfellum þar sem parið
velur að skipta orlofinu jafnar en
tíðkast almennt. Algengast er að
konurnar taki sex mánaða orlof og
karlarnir þriggja. I þeim tilfellum
þar sem skiptingin er jafnari heyra
konurnar það jafnvel út undan sér
að svona lagað geri ekki góð móðir.“
FÆÐINGARORLOF
►
Foreldrar eiga rétt á þremur
mánuðum hvort um sig og
þremur mánuðum til viðbót-
ar mega þau skipta á milli
sín eftir eigin geðþótta.
► Fæðingarorlofið má taka
hvenær sem er á fyrstu 18
mánuðunum eftirfæðingu
eða ættleiðingu barns.
►
Að auki eiga foreldrar rétt á
foreldraorlofi sem er ólaun-
að leyfi frá störfum sem
hvort foreldri um sig getur
tekið í allt að 13 vikur til að
annast barn sitt og fylgir
rétturinn hverju barni fram
að 8 ára aldri þess.
► Um 90% karlmanna nýta
sér einhvern hluta þess fæð-
ingarorlofs sem þeir eiga
rétt á.
ÞEKKIRÞÚTIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Háskóli íslands Ræstingafólkinu
Háskólamenn hafa áhyggjur af uppsögnum
Skúringarnar
endurskipulagðar
Ræstingafólki ( nokkrum bygg-
ingum Háskóla Islands hefur öllu
verið sagt upp störfum. Háskóla-
kennarar og aðrir starfsmenn eru
margir hverjir æfir vegna þessa
og tölvupóstar, sendir á alla starfs-
menn skólans, hafa gengið manna
á milli þar sem meðal annars er
fullyrt að Pólverjar á lágum launum
hafi tekið við störfunum og hneyksl-
ast er á vinnubrögðum háskólans.
Að sögn Skúla Júlíussonar, rekstr-
arstjóra fasteigna HÍ, er þó of mikið
gert úr málinu. „Helmingi fólksins
hefur þegar verið boðið starf aftur
og hið sama stendur til með hinn
helminginn. Um er að ræða skipu-
lagsbreytingu, t.d. til að auka sér-
hæfingu starfsfólks, en ekki á að
lækka fólk í launum.“
hlynur@bladid.net