blaðið

Ulloq

blaðið - 13.09.2007, Qupperneq 12

blaðið - 13.09.2007, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 blaóiö blaöi Útgáfufélag: Ritstjórí: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Árvakur hf. Ólafur Þ. Stephensen Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Þröstur Emilsson Elín Albertsdóttir Smáríki með sjálfstraust Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanrík- isráðherra undirstrikuðu í raun endurskilgreiningu á sjálfsmynd Islands í ut- anríkismálum er þau töluðu á málþingi um stöðu Islands í samfélagi þjóð- anna síðastliðinn föstudag. Forsætisráðherra orðaði það svo að ákvörðunin um að bjóða Island fram til setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna lýsti nýrri sýn á stöðu Islands á al- þjóðavettvangi og nýju sjálfstrausti og virkni í utanríkismálum. „I þessu felst skilgreining á Islandi sem öflugu smærra ríki en höfnun á þeirri sjálfsímynd að Island sé vanmáttugt örríki," sagði Geir. Ingibjörg Sólrún orðaði sömu hugsun þannig: „Það er fullkomlega ónauð- synlegt að nálgast viðfangsefni samtímans af vanmætti gagnvart öðrum þjóð- um. Heppileg blanda af sjálfstrausti, bjartsýni og raunsæi er það sem mestum árangri skilar,“ sagði hún. Þetta er allt rétt hjá leiðtogum stjórnarflokkanna. Island á að taka virkari þátt í alþjóðlegu samstarfi, bæði til að gæta hagsmuna sinna og vegna þess að við berum ábyrgð og höfum skyldur í samfélagi þjóðanna. Island á fjármuni til að láta gott af sér leiða. Islendingar búa sömuleiðis yfir margvíslegri þekk- ingu og reynslu, sem getur nýtzt fátækum eða stríðshrjáðum löndum. Það skiptir hins vegar máli að einblína ekki á framboðið til öryggisráðsins sem einu birtingarmynd þessarar endurskilgreiningar á sjálfsmynd Islands í utanríkismálum. Frumkvæðið og sjálfstraustið verður að koma fram á fleiri sviðum. Það á til dæmis við um þróunaraðstoð. Þótt ísland hafi lagt meira í hana undanfarin ár, stöndum við flestum vestrænum löndum enn langt að baki. Sama á við um ffiðargæzlu. Þar hafa Islendingar margt fram að færa. Þótt við eigum engan her, er ekki síður eftirspurn eftir borgaralegum sérfræð- ingum en hermönnum í slíkum störfum. Ef Island ætlar að standa undir hinni nýju sjálfsímynd, verður það líka að skapa mynd af sér sem áreiðanlegum bandamanni. I því ljósi má spyrja hvort það sé í samræmi við nýju skilgreininguna að kalla fulltrúa íslands í verkefni Atlantshafsbandalagsins í írak heim. Þar er um að ræða verkefni, sem NATO- ríkin, Island þar með talið, ákváðu í sameiningu að ráðast í þótt í hópi þeirra hafí verið skiptar skoðanir á innrásinni í Irak. Hins vegar blandast varla nokkrum hugur um að uppbyggingarstarfið í Irak, þar með talið verkefhi NATO, er mikilvægt hvaða skoðun sem fólk hefur á stríðinu þar. Islenzka ffiðargæzlan mat það svo að of lítið væri að hafa einn fulltrúa í Bagdad; annaðhvort ætti að fjölga fulltrúum eða hætta þátttöku í verkefninu. Hefði smáríki með sjálfstraust ekki fremur átt að leggja meira til uppbygg- ingarstarfsins en að fara heim? Ólafur Þ. Stephensen Sjj SÆKTU LEIÐARANNAWWW.IVIBUS/PODCAST_______ Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjóm & auglýsingan Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prenture Landsprent ehf. Veitingahúsið Lækjarbrekka Óskar efirir að ráða matreiðslumann til starfa. Við leitum eftir fagmenntuðum og metnaðarfullum einstaklingi og æskilegt er að viðkomandi getið hafið störf sem fyrst. Mjög góð laun eru í boði. Vinsamlega hafið samband við Hilmar Þór í síma: 892-0434 eða í tölvupósti: info@laekjarbrekka.is Veitingahúsið Lækjarbrekka Óskar eftir aðstoðafólki í veitingasal bæði á fullar vaktir og aukavaktir um kvöld og helgar. Reynsla er kostur en ekki skilyrði. Kennsla í framkomu og vinnubrögðum fyrir óvana. Allar upplýsingar eru veittar á staðnum á milli klukkan 14:00 — 17:00 eða í síma 551-4430. UéR Át)UH TVrr VAR /4Lp£EÍ 5T>AÍ?.W í LIQGJflNDI Mflwiií —ALtmEin /VíetNM 5l6GU5T AuíJ/íTAf}1 Í BöLLVM o(j 1>V/ UM líkt ÉV ALDRZl VAR 5PARKAfi í i-í6(iJ4NPÍ MfíNN. 5fl ER ■munumnn ...£>vo er íílca 3lR d$ Lgrd úl HEIVÍTIS Ww AF- N0STA LC í U NEI KVÆf)N I Opið hagkerfi reynist best 1 vikunni var frá því greint að Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra hygðist skipa nefnd til að fara yfir lagaumhverfi erlendra fjár- festinga hér á landi. Markmið þessa starfs á að vera að einfalda reglu- verkið og auðvelda þannig fjárfest- ingar erlendra aðila í íslensku at- vinnulífi. Það er full ástæða til að fagna þessu ffamtaki ráðherrans. Lög og reglur sem snerta viðskipti og at- vinnulíf þurfa að vera í stöðugri endurskoðun enda er nauðsynlegt að aðlaga þær síbreytilegum að- stæðum. Á undanförnum fimmtán áram hafa raunar verið gerðar ýms- ar grundvallarbreytingar varðandi fjárfestingar erlendra aðila hér á landi og má með nokkurri einföld- un segja, að nú sé meginreglan frelsi á þessu sviði en áður hafi meginregl- an verið bann. Aðild okkar að EES átti að sjálfsögðu mikinn þátt í þeim breytingum sem hér um ræðir, en um leið var það skýr stefna þeirra ríkisstjórna og þess þingmeirihluta sem var við völd að greiða fýrir er- lendum fjárfestingum, um Íeið og markvisst var unnið að því að opna íslenska hagkerfið í báðar áttir. Þannig var t.d. ákveðið að takmarka ekki heimildir erlendra aðila til fjár- festinga við einstaklinga og fyrirtæki frá aðildarlöndum EES heldur láta þær líka ná til aðila utan svæðisins. Á sama hátt hafa verið gerðar ýmsar lagatæknilegar breytingar sem hafa það að markmiði að auðvelda er- lendum aðilum fjárfestingar hér. Staðan í dag er því sú, að erlendar fjárfestingar í flestum greinum at- vinnulífsins eru nú heimilar og til- tölulega einfaldar. Eftir standa hins vegar fyrst og ffernst takmarkanir varðandi sjávarútveg og orkuiðnað. Ætla má að endurskoðun reglna á þeim sviðum verði meginviðfangs- efhi nefndar viðskiptaráðherra. Ekki liggur fyrir hvort nefndin fer af stað með það upplegg að afnema þessar takmarkanir alfarið eða einungis að rýmka og lagfæra regluverkið, en á þessum tímapunkti finnst mér full ástæða til að hvetja nefndina og ráð- herra til djarfrar stefnumótunar. Reynsla okkar Islendinga af því að opna hagkerfi okkar og afnema hindranir á viðskiptasviðinu er afar góð. Þau stóru skref sem stigin hafa verið á undanförnum árum í þeim Birgir Ármannsson efhum hafa hleypt miklum krafti í efiiahagslífið með þeim afleiðingum að lífskjör hafa batnað hér meira en dæmi eru um frá fyrri tíð. Hrakspár um afleiðingar þess að auka frelsi og greiða fyrir viðskiptum - þar á með- al fjárfestingum - í báðar áttir, hafa reynst ástæðulausar. Ég fæ ekki séð að önnur sjónarmið eigi við um sjávarútveginn og orkuiðnaðinn eða að fremur sé ástæða til að óttast fjár- festingar erlendra aðila í þeim grein- um. Það er raunar athyglisvert að fram til þessa hefur aukið ffelsi í fjárfestingum miklu frekar orðið til þess að Islendingar hafa fjárfest er- lendis í stórum stíl en að útlend- ingar hafi orðið fyrirferðarmiklir í íslensku atvinnulífi. Ört stækkandi íslensk fýrirtæki hafa séð fjölmörg tækifæri til vaxtar erlendis en áhugi erlendra aðila á fjárfestingum hér hefur enn sem komið er fýrst og fr emst takmarkast við fremur fá svið atvinnulífsins. Á því eru vafalaust margar skýringar, sem ekki gefst kostur á að rekja hér. Það er hins vegar full ástæða fýrir nefhd við- skiptaráðherra að fara vandlega yfir þau mál í störfum sínum samhliða endurskoðun á reglum um sjávar- útveg og orkuiðnað og gera tillögur til úrbóta þar sem við á. Samhliða þessu er líka full þörf á að fara yfir skattamál atvinnulífsins með það að markmiði að gera fjár- festingar í fýrirtækjum hér á landi enn hagstæðari. Það fellur vissulega utan verksviðs nefndarinnar en engu að síður er ástæða til að skoða þessi mál í samhengi. Enginn deilir um að stór skref hafa verið stigin í þá átt að gera íslenskt skattaum- hverfi afar hagstætt fýrir atvinnu- starfsemi en það er bæði mikilvægt og gerlegt að ná enn betri árangri á því sviði. Það þarf bæði að lækka skattprósentuna enn frekar og gera tæknilegar breytingar til að auð- velda og bæta samkeppnisstöðu ís- lenskra fýrirtækja sem starfa í al- þjóðlegu umhverfi. Slíkar breytingar munu skila sér í öflugra hagkerfi og enn betri lífskjörum í ffamtíðinni. Höfundur er þingm. Sjálfstæðisflokksins KLIPPT OG SKORIÐ Framsókn- armenn eru ekki par ánægðir með að- stoðarmann sam- gönguráðherra, Ró- bert Marshall. Þeir spyrja á heimasíðu sinni, í stíl við Róbert: „Til hvers er Róbert Marshall?“ rétt eins og hann spurði: „Til hvers er Framsóknarflokkurinn?“ í grein í Morgunblaðinu 9. sept- ember. „Róbert þessi, helsta mál- pípa Kristjáns Möllers sam- gönguráðherra, kvartar sáran undan meintum dónaskap og gífuryrðum alþingismanns Framsóknarflokksins Bjarna Harðarsonar varðandi Gríms- eyjarferjuhneykslið í sömu andrá og hann lýsir þingmanninum sem tudda á velli, nauti í flagi, fíl í postulíni og grjótkastara í gler- húsi. I vandlætingarrússi.“ Framsóknarmenn halda því svo fram að Róbert hafi bitið höfuðið af skömminni þegar hann segi ekkert athugavert við að ráðherrann hafi reynt að svipta ráðgjafann, skipaverkffæð- inginn, ærunni. Róbert andmæl- ir: „Höldum því til haga að sam- gönguráðherra hefur hvergi sagt að Einar Hermannsson, skipa- verkfræðingur, beri ábyrgð á Grímseyjarferjuklúðrinu. Hvergi." En hvernig reitti Róbert fram- sóknarmenn til reiði? „Á öllum mínum ferli sem blaða- og ff étta- maður kynntist ég aldrei öðru eins samansafni fólks sem var jafn reiðubúið, hvenær sem var, að níða skóinn af félögum sínum,“ ritaði Róbert. Fram- sóknarmenn spyrja: „Hljóp aðstoðarmaður samgöngu- ráðherra út undan sér eins og stundum áður? Eða var hon- um att á foraðið til að segja það sem samgönguráðherra meinar en þorir ekki að segja sjálfur?" gag@bladld.net

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.