blaðið - 13.09.2007, Síða 18
18
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007
blaöiö
LÍFSSTÍLL48K
48k@bladid.net
•&§>£$ í stað hjólsins er snertiskjár, sem getur
numið snertingu fleiri en eins fingurs.
iPod Touch er í raun iPhone án símans.
Hann er þó minni, aðeins 8mm þykkur.
I
I
Galopin tölva
Aðdáendur PSP þurftu ekki
að bíða lengi eftir því að hin
nýja PSP-tölva yrði brotin upp
af framtakssömum tæknisnill-
ingum. Hópi að nafni Team
M33 hefur nú þegar tekist að
opna hugbúnað tölvunnar upp
á gátt þannig að hægt er að
keyra alls konar heimagerð
forrit og ólöglega leiki á vélinni
góðu.
Enn ein töfin
Samkvæmt hinum málglaða
Mark Rein hjá Epic-tölvuleikja-
fyrirtækinu er ekki lengur víst
að Unreal Tournament 3 muni
verði tilbúinn á fyrirhuguðum
útgáfudegi í nóvember. Rein lét
þessi orð falla á spjallborði sem
helgað er leiknum en þessi töf
mun líklega eiga við bæði PC-
og PS3-útgáfur leiksins. Xbox
360 útgáfunni mun einnig
seinka.
Bannaður til
ársins 10.000
Einn aðdáandi Halo-leiksins
varð sér á einhvern hátt úti
um prufuútgáfu af Halo 3,
þrátt fyrir að enn sé langt í að
leikurinn komi út. Microsoft-
mönnum varð lítið skemmt
og gripu þeir til þess ráðs að
banna Xbox Live!-reikning not-
andans næstu 7.992 árin. Það
á því eftir að reynast honum
erfitt að keppa í uppáhalds-
leiknum sínum á næstunni.
Framhald af
Bioshock
Það er óhætt að segja að
Bioshock-leikurinn hafi ræki-
lega slegið í gegn, enda allir
sammála um að hann sé með
betri leikjum sem gerðir hafa
verið. Framleiðendur leiksins
hyggjast nú gera framhald af
leiknum og verður um fleiri en
eitt að ræða. Að þeirra sögn má
fólk búast við nýjum Bioshock
á tveggja ára fresti enda nóg
af ósvöruðum spurningum i
leiknum.
Endalaus partíleikur
Singstar-leikjaserían hefur notið
mikilla vinsælda undanfarin ár og
hafa mörg teiti í heimahúsum notið
góðs af Singstar. Með tilkomu Playst-
ation 3 þykir því við hæfi að upp-
færa þessa seríu aðeins og því hefur
Singstar fyrir Playstation 3 litið
dagsins ljós. Til að fullnýta mögu-
leikana sem búa í PS3 hefur Netið
orðið mun mikilvægari þáttur í
spilun leiksins. Nú getur fólk vistað
upptökur, myndbrot og myndir af
flutningi sínum og sett á sérstakt
Singstar-samfélag á Netinu þar sem
allir sýna sig og sjá aðra.
Hvað endingu varðar ætti Singstar
að geta orðið býsna langlífur, svo
lengi sem fólk heldur röddinni og
nennir að syngja. Með tilkomu Sing-
store-búðarinnar munu eigendur
leiksins geta keypt sér ný lög fyrir
leikinn og því sérsniðið hann að
sínum eigin smekk. Smápíurnar
gætu þvi náð í heilu plöturnar með
Britney/Christinu/Timberlake á
meðan tilfinninganæmu gaurarnir
gætu sankað að sér Coldplay og öðru
álíka efni. Þetta þýðir að leikurinn
verður aldrei eins og mun fólk geta
troðið inn fleiri og fleiri lögum, svo
lengi sem plássið á harða disknum
og buddan leyfir. Singstore-þjón-
ustan mun hins vegar ekki verða
virk hér á íslandi fyrst um sinn en
þangað til verður fólk að láta sér
nægja hin rúmlega 30 lög sem koma
með leiknum.
Singstar getur í senn verið einn
heimsins besti fjölsþilunarleikur og
heimsins versta tímasóun. í góðra
vina hópi skín snilld leiksins í gegn
en fyrir þá sem sitja einir heima er
leikurinn tilgangslaus. Það er nefni-
lega fátt sorglegra en karlmaður á
SINGSTAR
PS3
Leyfðuröllum
SPILUN: 74%
ENDING: 89%
GRAFÍK: -
HLJÓÐ:
Viggó Ingimar Jónasson viggo@bladid.net
= 82%
þrítugsaldri sem situr einn heima
á laugardagskvöldi og syngur há-
stöfum Toxic með Britney Spears.
Ný kynslóð iPod-spilara
Kominn á sjöttu
kynslóðina
Sjötta kynslóð iPod-tón-
listarspilarans frá Apple
kom út í seinustu viku.
Apple uppfærði alla iPod-
spilarana ásamt því að
kynna nýja útgáfu iPod
sem kölluð er iPod Touch.
Eftir Elías R. Ragnarsson
elli@bladid.net
iPod-spilararnir hafa ekki séð
stóra uppfærslu síðan árið 2005
þegar fimmta kynslóðin var kynnt
sem gat spilað vídeó. Spilararnir
hafa séð minni uppfærslur og nýjar
útgáfur af Nano- og Shuffle-spilurn-
unum hafa verið kynntar, en þrátt
fyrir það hefur hugbúnaður spilar-
anna lítið breyst í næstum tvö ár.
Með nýju iPod-kynslóðinni hefur
Apple ekki aðeins uppfært alla iPod-
spilarana heldur einnig skipt niður
vörulínunni. Hinn hefðbundni
iPod-spilari sem allir þekkja kallast
nú iPod Classic og verður tiltækur
í tveimur útgáfum, 8ogb og tóogb.
Hvíta plastinu sem einkennt hefur
framhlið iPod-spilara frá byrjun
hefur nú verið skipt út og er fram-
hliðin nú úr áli svipað og Nano-og
Shuffle-spilararnir.
Notendaviðmót spilarans hefur
verið uppfært þó nokkuð og er nú
mun myndrænna en áður. Myndir
af geisladiskunum birtast þegar lög
eru skoðuð ásamt því að boðið er
upp á Coverflow-möguleikann úr
iTunes og iPhone, þar sem flett er í
gegnum plötuumslög í stað þess að
skoða hefðbundinn texta.
Litli feiti
iPod nano breyttist líklegast hvað
mest, en í stað þess að vera ílangur
eins og áður, er hann nú stuttur
og breiður, nánast kassalaga. Var
þessi breyting gerð til að koma fyrir
stærri skjá en Nano styður nú við
vídeó-spilun ásamt því að hafa sama
notendaviðmót og stóri bróðirinn,
iPod Classic. Breyting þessi hefur þó
lagst misvel í fólk, því mörgum þykir
hann líta út fyrir að vera stærri en
hann er og hefur hann fengið viður-
efnið „iPod Fatty“. Spilarinn er þó ör-
þunnur, jafnvel þynnri en fyrri Nano-
spilarar en hann er þó eilítið þyngri.
Spilarinn kemur í 4gb og 8gb útgáfu.
Snertu mig
Nýjasta nýtt frá Apple er iPod
Touch-spilarinn sem er gjörólíkur
fyrri spilurum, en hann hefur ekki
skrunhjólið sem hefur einkennt iPod-
spilarana frá örófi alda. I stað hjólsins
er snertiskjár, sem getur numið snert-
ingu fleiri en eins fingurs. iPod Touch
er í raun iPhone án símans. Hann er
þó minni, aðeins 8mm þykkur.
Spilarinn er með Wi Fi-tengingu
og því er hægt að vafra um á Netinu
á iPod-spilaranum. Helsta nýjungin
mun verða möguleikinn á að kaupa
Pod
Fyrsti iPod-spilarinn kom á
markað í október 2001 og
var 5gb.
Windows-stuðningur kom
ekki fyrr en með annarri
kynslóð spilaranna og var
þá mjög takmarkður.
iPod Photo kom á markað
árið 2004 og var fyrsti iPod-
spilarinn með litaskjá.
Fimmta kynslóðin, iPod Vid-
eo, var sú fyrsta sem ekki
studdist við Firewire-teng-
ingu, aðeins USB.
tónlist úr iTunes-búðinni beint í iPod-
spilarann. Tónlistin samstillist svo
tölvunni þegar spilarinn er tengdur
við hana. Spilarinn mun koma í
tveimur útgáfum, 8gb og i6gb.
Spilararnir eru allir væntanlegir í
sölu hér á íslandi um mánaðamótin
að iPod Touch undanskildum, en
von er á honum um miðjan næsta
mánuð.
ísland bezt í heimi!
Torfæruaðdáendur ættu að fá
góðan glaðning þegar leikurinn
Sega Rally kemur út í lok mánað-
arins en í leiknum mun leynast
eitt stykki íslenskur torfærubíll.
Þessu var ljóstrað upp á bloggsíðu
helgaðri leiknum sem haldið er úti
af Evrópudeild Sega. Trukkurinn
mun skarta forláta skófludekkjum
sem gjörbreyta aksturseiginleikum
bílsins og daðra framleiðendur
leiksins jafnvel við að láta bílinn
aka á vatni. Ekki er ljóst hversu furðulegt að enn sem komið er hafi
áberandi hinn aflmikli trukkur enginn tölvuleikur birst þar sem
verður en það er hreint út sagt íslensk torfæra er í aðalhlutverki.
Bölvun
á Lair
Veikindi og dauðsföll settu
svip á framleiðsluna, skuld-
inni skellt á æðri máttarvöld.
Það er óhætt að segja að drekaleik-
urinn Lair hafi fengið býsna óblíðar
móttökur hjá tölvuleikjagagnrýn-
endum. Leikurinn þykir hafa ein-
hver óþægilegustu stjórntæki sem
völ er á, þó svo að það sé býsna mis-
jafnt eftir mönnum hversu óhentug
stjórntækin eru. Miðað við hvernig
vinnsla hefur gengið og viðtökur
leiksins verið mætti draga þær álykt-
anir að bölvun hvíldi á leiknum. Það
virðist að minnsta kosti vera álit
Julians Eggebrecht, forstjóra Factor
5, sem gerði Lair-leikinn. „Ég trúi
alla jafna ekki á drauga en ég held
að það hafi einhverjir reimleikar
komið við sögu hérna,“ sagði Egge-
brecht við MTV á dögunum.
Veikindi og dauðsföll
Eggebrecht og Brian Kreuger,
einn af starfsmönnum Factor 5,
voru alveg sammála um það að
eitthvað hefði andrúmsloftið verið
skrýtið við framleiðslu leiksins og
að allt sem mögulega gat farið úr-
skeiðis hefði undantekningarlaust
gert það. „I hvert skipti sem von var
á mikilvægri sendingu þá fór eitt-
hvað úrskeiðis." Eggebrecht segir
ennfremur að veikindi og dauðsföll
hjá fjölskyldum Factor 5-manna
hafi einnig sett strik í reikninginn.
Það er ljóst að eitthvað hefur farið
úrskeiðis við framleiðslu Lair hvort
sem það var æðri máttarvöldum að
kenna eða ekki.