blaðið

Ulloq

blaðið - 13.09.2007, Qupperneq 20

blaðið - 13.09.2007, Qupperneq 20
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007 blaöió LÍFSSTÍLLKONAN konan@bladid.net v;; ■ Hér er metnaðurinn almennt mjög mikill, jF ekki bara hjá sjálfu starfsfólki leikskólanna heldur líka hjá foreldrunum og þeim sem að okkur standa hjá leikskólasviði borgarinnar. meiri tækni Samkvæmt könnun breska aug- lýsingafyrirtækisins Saatchi & Saatchi hafa konur á aldrinum 24 til 45 ára meiri áhuga á tæknilega vel útbúnum græjum en bleikum, dúllulegum og einföldum græjum. Einungis um 9 prósent kvennanna sem tóku þátt í könnuninni sögðust sækjast eftir græjum sem væru „kvenlegar“, " eins og til dæmis bleikar Playst- ation-tölvur og Hello Kitty-lykla- borð. Allar hinar sögðust frekar kjósa græjur sem væru nettar og létu lítið yfir sér en væru jafnframt vel tæknilega útbúnar. Þykir þetta til marks um að markaðsmenn misskilji margir óskir kvenna og geri jafnvel lítið úr þeim. Offita og keis- araskurðir Hlutfall kvenna sem látast af barnsburði í Bandaríkjunum hefur hækkað undanfarin ár og er nú með því hæsta sem þekkst hefur þar í landi í áratugi. Lík- urnar á andláti við barnsburð eru eftir sem áður mjög litlar « - enda urðu um 13 andlát mæðra á hverjar 100.000 fæðingar í landinu árið 2004, og 12 andlát á hverjar 100.000 fæðingar árið 2003. En það var þó fyrsta árið sem sú tala fór yfir 10 frá árinu 1977. Sérfræðingar telja að meðal skýringa séu aukning á offitu meðal mæðra sem og fjölgun á keisaraskurðum. Unnið gegn launamuninum Jóhanna Sigurðardóttir félags- málaráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra hafa ákveðið að skipa þrjá starfshópa til að fylgja eftir markmiðum sem koma fram í stefnuyfirlýsingu - ríkisstjórnarinnar á sviði jafn- réttismála. Þar er megináhersla lögð á að unnið verði markvisst gegn kynbundnum launamun og að endurmat fari fram á kjörum kvenna hjá hinu opinbera. Sæunn Elfa Karlsdóttir leikskólastjóri í Jörfa Kennir börnunum lífsleikni og tilfinningatjáningu Mikið og metnaðarfullt starf fer fram í leikskólum landsins að sögn leik- skólastjórans Sæunnar Elfu Karlsdóttur í Jörfa í Reykjavík. Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Stjórnendur og starfsmenn leik- skólanna gegna mikilvægu starfi við að passa upp á og mennta kyn- slóð framtíðarinnar. Hver og einn leikskóli hefur sínar áherslur og í leikskólanum Jörfa við Hæðargarð í Reykjavik er það Sæunn Elfa Karls- dóttir leikskólastjóri sem leggur línurnar. „Við leggjum höfuðáherslu á lífs- leikni og tilfinningatjáningu. Það felur meðal annars i sér að við kennum börnunum markvisst að tjá líðan sína og finna tilfinningum sinum farsælan farveg,“ segir Sæ- unn. „Við notumst við kennsluefni á borð við bókina Að temja drek- ann og Stig af stigi og styðjumst líka við kenningar um félagsfærni eftir norska uppeldisfræðinginn Katri Lamer svo eitthvað sé nefnt. Kjarninn í því er jákvæð styrking, þannig að börnum er hrósað fyrir það sem vel er gert og þau eru hvött til að gera enn betur, og svo er mikil áhersla lögð á að leysa hvern þann vanda sem upp getur komið í sam- starfi við börnin.“ Stór faghópur Sæunn segist nota svipaðar að- ferðir í samvinnu sinni við starfs- menn leikskólans. „Þar er líka jákvæð styrking lykilatriði og svo erum við dugleg að fara á alls kyns námskeið. Til dæmis höfum við farið á námskeið í aðferð sem heitir á íslensku Heildstæður stuðningur við jákvæða hegðun sem byggir á hrósi. Við erum líka dugleg að halda fundi og miðla þekkingu okkar hvert með öðru. Ég bý svo vel að ég er með stóran faghóp, enda eru 16 af starfsmönnum leikskólans faglærðir, og bæði þeir og þeir ófag- lærðu eru mjög metnaðargjarnir og áhugasamir," segir hún. Er mikil mannekla á leikskólanum? „Mig vantar tvo starfsmenn og einn kokk, en það er alls ekki mikið miðað við hvað þetta er stór leikskóli. Vissulega skapar það alltaf álag á starfsmenn þegar einhvern vantar en við höfum þó ekki þurft að grípa til þess ráðs að loka deildum eða annað slíkt,“ segir Sæunn. Skara fram úr Eins og góðum stjórnanda sæmir er Sæunn dugleg að fylgjast með starfi annarra leikskóla og grunn- skólanna líka. „Ég verð til dæmis alltaf mjög glöð þegar einhver af mínum börnum fara í grunnskóla þar sem Stig af stigi er kennt. Svo hef ég skoðað leikskóla í Danmörku og fleiri löndum og verð að segja að íslenskir leikskólar skara fram úr í samanburði við þá. Hér er metnað- urinn almennt mjög mikill, ekki bara hjá sjálfu starfsfólki leikskól- anna heldur líka hjá foreldrunum Er leikskólakennari að mennt Hefur jafnframt lokið fram- haldsnámi í stjórnun. Hefur verið leikskólastjóri Jörfa frá opnun árið 1997. og þeim sem að okkur standa hjá leikskólasviði borgarinnar. Allir leggja sig fram um að gera starfið sem best úr garði.“ Hver og einn hefur sína stefnu Allir leikskólar starfa eftir ákveð- inni aðalnámskrá sem gefin er út af menntamálaráðuneytinu en leikskólastjórar hafa engu að síður töluvert frelsi til þess að móta stefnu eigin skóla. „Allt sem við gerum í lífs- leikni- og félagsfærniþjálfun okkar tengist aðalnámskránni beint, en við vinnum eftir henni og svo okkar eigin námskrá," segir Sæunn. Hvenœr kviknaði hugmyndin að námskrá Jörfa? „Ég held það hafi verið árið 1994. Þá var mjög lítið til af lesefni, en ég fékk hugmyndina að þessu út frá börnum og foreldrum sem ég hafði kynnst og vandamálum þeirra. Oft var um að ræða félagsleg vandamál sem fólk átti erfitt með að tjá sig um. Ot frá þessu fór ég að leita að námsefni sem gæti verið fyrirbyggj- andi gegn vímuefnaneyslu, einelti og alls kyns ofbeldi. Á þessum árum var þetta alls ekki í tísku, og árið 1996 var ég mjög glöð að upp- götva bókina Að temja drekann eftir kanadíska leikskólakennara, og það var fyrsta kennsluefnið sem ég kynntist og svo vorum við fyrsti leikskólinn í Reykjavík sem fór að nota Stig af stigi. Ég var óskaplega glöð að kynnast þessu efni og hef notað það allar götur síðan,“ segir Sæunn Elfa að lokum. Mikið er um dýrðir á Bókmenntahátíð í Reykjavík sem hófst um síðustu helgi og lýkur á laugardaginn. Framkvæmdastjóri hátíðarinnar, Kristín Ingvarsdóttir, er kona vikunnar hjá Blað- inu að þessu sinni. Hvað œtlaðirþú að verða þegarþú varst lítil? Ég sagðist oft ætla að verða lögfræðingur eins og pabbi, meinaði það samt aldrei og sá mig fyrir mér i mörgum öðrum spennandi störfum. Efekki hér, þá hvar? Ef ég er ekki á landinu er ég annað hvort á flakki út af vinnunni eða að heimsækja kærastann minn sem vinnur og býr erlendis. Á sumrin vil ég samt helst vera ein- hvers staðar á fjöllum á Islandi. Hvað er kvenlegt? Hmmm, getur verið mjög margt finnst mér... Er munurá körlum og konum og efsvo er, hver er hann? Ég er meira á því að það sé munur á einstaklingum en á kynjunum. Held að áhuga- mál og bakgrunnur móti einstaklinga meira en kynið. Erfullu jafnrétti náð? Nei, því miður, en mér finnst Island gott fordæmi á mörgum sviðum jafnréttismála. Hvað skiptirþig mestu máli í lífinu? Fjölskyldan, vinir, heilsan, hreyfing, útivist og svo verð ég að bæta við góðum mat (!). En það fer samt alltaf mestur tími i vinnu sem er skemmtilegt líka. Helstu fyrirmyndir? Ég hef ekki neinar fyrir- myndir en reyni að læra af fólki sem mér finnst framúrskarandi á sínu sviði og/eða er beinlínis gott fólk. Mamma min er ein af þeim. Ráð eða speki sem hefur reynstþér vel? Nei, ég á ekkert eitt sérstakt „universal" ráð sem mér finnst ganga við öll tækifæri. Finnst samt að maður verði alltaf að hugsa vel um heilsuna því annars á maður erfitt með að njóta þess sem lífið hefur upp á að bjóða bæði í leik og starfi. Uppáhaldsbók? Afmælisdagabókin mín þar sem ég hef safnað undirskriftum vina og ættingja síðan á fermingaraldri. Mér finnst svo vænt um þessa bók að ég hafði hana alltaf með mér í handfarangri þau 13 ár sem ég bjó erlendis og var á endalausu flakki. Gamla barnfóstran mín, sem nú er látin, gaf mér bókina og orti ljóð til mín sem hún skrifaði á fyrstu síðuna. Draumurinn þinn? Að Islendingar muni ekki eyðileggja landið eða leyfa öðrum að gera það. Og svo langar mig til að eiga hamingjusamt líf það sem eftir er.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.