Orðlaus - 01.04.2003, Blaðsíða 39

Orðlaus - 01.04.2003, Blaðsíða 39
VATNSBERI Metnaður er mikill hjá þér og hann þarf að virkja enn betur. Stjarna vatnsbera ætti að leggja sig enn betur fram ef árangur sem tengist löngunum hennar skal nást. Þú laðar að þér fólk á þann hátt sem þú sjálf/ur kýst, slík er hugarorka þín. Þú birtist sem mikil tilfinningavera en átt það til að eyðileggja fyrir þér með ójafnvægi og óöryggi gagnvart getu þinni og ekki síður tilfinningum í garð annarra. I byrjun sumars munu vissir atburðir leiða þig að manneskju sem snertir þig á einhvern hátt. Þú þekkir heiminn og ókosti fólks vel en ættir ekki að vera hrædd/ur við að gera mistök. Ef þér mislíkar gjörðir vinar/félaga ættir þú ekki að hörfa burt eins og þú hefur jafnvel tileinkað þér þegar virkilega á reynir. Þú munt ekki öðlast neitt í þessum heimi nema þú verður óháð/ur. Allt sem þig vanhagar um að eigin mati getur þú veitt þér. Ef fólk fætt undir stjörnu vatnsberans trúir á sjálfa/n sig og sækist ekki eftir ytri táknum opnast nýjar dyr fyrir því samstundis. Fagnaðu komu hvers dags og njóttu hans. TVÍBURAR Nýttu þinn sterka og eðlislæga baráttuvilja sem býr án efa innra með þér og fyrir alla muni hættu að horfa stöðugt um öxl og ekki velta þér upp úr fortíðinni. Ef þú gerir það mun umhverfi þitt ekki aðeins staðna heldureinnig þú sjálf/ur. Nýttu þá hæfileika sem þú býrð yfir sem er á sviði stjórnunar varðandi starf þitt, félagsstarf eða jafnvel nám. Sýndu biðlund næstu misseri þegar kemur að verkefni sem er nú þegar hafið og tengist einhverju verklegu. Ef þú ert þolinmóðari en viðsemjandi þinn getur þú undir flestum kringumstæðum haft betur, hafðu það hugfast út aprll mánuð. Taktu þau skref sem þú þarfnast til að komast nær lausninni og ekki hika við að hugleiða með því að taka þér hlé,fara í göngutúreða, lesa góða bók. Það er mikill munur á þvl að búa við vandamál í tilverunni og að búa til vandamál úr tilverunni. Gefðu þér tíma til að vera reið/ur, hrædd/ur og glað/ur með þv( að opna þig. o VOG Fólk fætt undir stjörnu vogar nær árangri og finnur ávallt leið til að snúa aðstæðum sér í hag. Hér ert þú hinsvegar minnt/ur á að gleyma ekki smáatriðum Kðandi stundar því þau eiga það til að sýnast smá í þínum augum en eru stór og jafnvel mjög mikilvæg. Ekki hika við að setja óskir þlnar fram þó þærvirðist sérviskulegaráeinhvern hátt því þú nærð þínu fram hvort sem um starf þitt eða einkalíf ræðir. Einblíndu fyrst og fremst á það sem þú ætlar þér í lífinu en ekki þvf sem þú kýst ekki að upplifa. Þú ættir að undirbúa þig vel ef þú ert um það bil að Ijúka/hefja verkefni. Stjarna þ(n birtist öflug þegar áætlanir og markmið sem fela í sér lausnir eru annars vegar. Þú ert án efa þægileg/ur í umgengni þegar jafnvægi einkennir þig en gleymdu ekki að hreyfa þig endrum og eins. Stjarna vogar skfn skært um þessar mundir en hér veit á mikla velgengni þegar viðskipti eru annars vegar. Frétt sem tengist barnsfæðingu eða upphafi á einhverju mikilfenglegu gæti verið á ferðinni. X T FISKAR HRÚTUR fl NAUT Vertu í snertingu við raunveruleikann og vertu bjartsýn/n. Stjarna fiska ætti að taka virkan þátt í raunveruleikanum en aldrei gleyma að hún ber ábyrgð á eigin gjörðum en í rósemi og trausti býr styrkur hennar svo sannarlega. Þú ert ein/n af þeim sem gefur mikið þó þú eigir lítið en sjóður þinn tæmist seint ef þú heldur stöðugt áfram að hlúa að náunganum. Horfðu á hið góða í veröldinni og einbeittu þér sérstaklega að þvl sem er jákvætt. Þú verður fær um að taka skynsamlegar ákvarðanir ef þú aðeins opnar þig og gerist móttækilegri fyrir viðhorfum náungans. Ekki gerast kærulaus varðandi framhald sem tengist námi eða starfi og reyndu að vera sveigjanleg/ur þegar mannleg samskipti eru annars vegar. Ef þú hefur það á tilfinningunni að þú berir ábyrgð á öðru fólki ættir þú að staldra við og huga að því að það eitt gerir þig örmagna að óþörfu. Nýttu tíma þinn í það sem eflir þig. Drottnunargirni getur rænt þig sumum vinum þínum ef þú ekki tekur í taumana þegar þú leitar ómeðvitað eftir valdastöðu í vinahópnum eða á vinnustaðnum í byrjun maí 2003. Hér er einungis verið að minna fólk fætt undir stjörnu hrútsins að hafa tangarhald á styrknum sem það býr yfir. Þér er án efa best gefið að ávinna þér traust ókunnugura sem þú hefur samskipti við og ættir að notfæra þér þann hæfileika viturlega þegar Ifða tekur á sumarið framundan. Þú ert viljasterk/ur og sjálfsörugg/ur um þessar mundir og ættir J að grípa hvert tækifæri sem birtist og fylgja eftir hugboðum þínum án þess að hika. Nýr kafli sem hefst í lok apríl færir þér nýjar fréttir sem svala vissulega forvitni þinni og eflir þig á góðan máta. Þú fellur ekki undir hefðbundnar skilgreiningar miðað við árst(ma og stöðu sólar gagnvart stjörnu þinni en þú ert jafnvel um þessar mundir eigingjarn/eigingjörn á félaga þinn eða maka þegar stjarna þln er skoðuð. Athafnasemi þín er áberandi og þrá þín eftir óheftu lífi sömuleiðis. © stjörnu krabbans á Þú ert fær um að vona KRABBI Erfiðleikar efla óskiljanlegan hátt. ávallt það besta og veist í hjarta þínu að breytingar eru ávallt mögulegar og þar af leiðandi gefur þú aldrei upp vonina. Þú tekst hér á við aðstæður sem tengjast mannlegum samskiptum en hér er einhverskonar próf á ferðinni þar sem þú sýnir f verki hve jafnvægi þitt er gott. Þú stenst prófið með prýði ef þú tileinkar þér að staldra við og horfir á afleiðingar gjörða þinna ( sumarbyrjun 2003. Ef þú átt erfitt með einbeitingu í apríl og finnur jafnvel fyrir einhverskonar þreytu eða leti um þessar mundir ættir þú að hvíla þig vel eftir hvern vinnudag. Þú ættir að einbeita þér að þv( að efla þ(na innri vellfðan með þvf að nýta vitsmuni þína og skapgerð til góðverka.Gleymdu ekki að gleðja þá sem eru ( kringum þig því þannig eflir fólk eins og þú eigið karma á mjög jákvæðan máta. Stjarna krabbans býr yfir miklum krafti sem birtast sjaldan á þessum árstíma (vor 2003) en núna umlykur orkan þig áberandi mikið. m. SP0RÐDREKI Hugaðu vel að þvf raunverulega eru og fólkið að sama skapi sumari hér óvenju kraftmikil/l mikilli hreyfingu. Það birtist ný framvinda hjá burt úr huga þínum. Hugaðu vel að fjármálum stjornu sporðdreka sem gerir hana sýnilegri á einhvern hátt. Draumar þínir breytast ( veruleika innan tíðar (maílok) ef þú tileinkar þér að gefa það sem þú kýst að eiga, svo einfalt er það.Þú ert ekki knúin/n til að stjórna og alls ekki til að berjast um viðurkenningu frá öðru fólki. Hlúðu að þeim sem minna mega s(n og reyndu að sama skapi umfram allt að sttga skref fram á við, (stað þess að fara aftur til baka. Líkamleg áreynsla hefur góö áhrif á þig aðstoðar þig við að bregðast rétt við hverju sinni og reyndu að bregðast við á góðan máta, ávallt. Hér tekst þú á við mál sem kann að angra þig en allt fer vel ef þú hugar vel að hverri framkvæmd. Lærðu að þekkja sjálfan þig betur. Þú ert minnt/ur á að mesti styrkur þinn er að þú sjálf/ur ert fær um að beina hugsunum þínum í þá átt sem þú sjálf/ur kýst að líf þitt stefni. Skemmtilegur tími bíður þín þar sem þú brýtur vanann í sumarbyrjun 2003 og tekst á við nýja og fræðandi hluti sem gefa þér án efa mikið. Umburðarlyndi og fyrirgefning eru einkunnarorð nautsins núna. Þú virðist aðlagast skjótt að hvaða aðstæðum sem er. Þú ættir ekki að hika við að hugsa stórt þegar draumar þínir eru annars vegar. Þú gætir hafa fært persónulegar fórnir síðust misseri en gleymdu ekki að þegar þú gefur af þér munt þú fá laun þín margföld til baka. Mundu, þolinmæði er mikilvægasti hæfileiki þinn en þolinmæði felst einnig í því að aðhafast lítið sem ekkert og það virðist eiga vel við stjörnu nautsins sumarið 2003. Ekki láta kæruleysi eiga við þig ef þú stendur frammi fyrir ókláruðu verkefni.Varastu óhóf. Sí LJÓNIÐ Leggðu þig fram við að viðhalda sterku sjálfstæði þ(nu framvegis en draumar þínir l(ta dagsljósið fyrr en síðar miðað við stjörnu Ijónsins. Þú ert einnig sérstaklega minnt/ur á að skilgreina yfirburði þína mjög vel og ákveða sjálf/ur að þróa og koma á framfæri yfirburðum þínum á því sviði sem þú telur að efli þig sem einstakling. Hættu að eyða dýrmætum tíma þínum ( fólk sem dregur þig niður frá og með deginum ( dag. Þú ættir aldrei að efast um viðskiptavitið sem þú fékkst ( vöggugjöf og hæfileika þinn til að telja náungann á þitt mál sem er óþrjótandi ef og þegar þú leggur þig fram við málefnið. En ef þig dreymir um að gerast leiðtogi þarftu að bera hreinskilni og koma ávallt hreint fram við alla sem verða á vegi þínum, undir öllum kringumstæðum. Hafðu þetta hugfast þegar draumar þínir og þrár eru annars vegar í lok apríl.Árangur Ijónsins felst (breytingum í júní mánuði 2003. MEYJA Njóttu betur stundarinnar en þú hefur tileinkað þér undanfarið ár. Efldu hugrekki þitt með því að opna huga þinn og leyfðu þér upplifa gleðina ( öllu sem verður á vegi þlnum.Þú nýtur þín vel í skjóli fjölskyldulífs en átt það til að ofgera þegar varkárni þln er annars vegar og á það sérstaklega við stjörnu meyju í lok apríl 2003. Vertu heiðarleg/ur gagnvart sjálfri/um þér og minntu þig að sama skapi oftar á gildi tilveru þinnar. Ekki óttast framtíðina húnverður þér greiöfær.Tilfinningalegar kröfur þínar eiga það þó stundum til að vera óraunverulegar af einhverjum ástæðum. Losaðu þig við neikvæðar tilfinningar því mikil gleði mun ríkja hjá þér sumarið framundan. Þú býrð yfir afburðahæfileikum, gleymdu þv( aldrei. Ef þú stendur I fjárfestingum þessa dagana er þér ráðlagt að fara varlega í þeim efnum. B0GMAÐUR Hér eru boðaðar ánægjulega stundir í fallegu þinni í rétta umhverfi þegar stjarna bogmanns er skoðuð. )3. Þú birtist Þú ættir ekki að taka mark á Gróu á Leiti næstu igur þinn er á daga og ieiða allar sögusagnir um náungann þínum sumarið framundan og reyndu að einbeita þér að einu verki í einu. Berðu fram óskir þtnar með hækkandi sól, þær rætast fyrr en þig grunar. Þú verður eingöngu að gæta þess að ásetningur þinn leiði sannarlega til góðs fyrir náungann. Stjarna bogmanns ætti að hafa það hugfast að framtlðina er ávallt hægt að skapa með réttum viljaásetningi en þér tekst vissulega að snúa aðstæðum þér í hag næstu misseri. Lánsemi einkennir fólk fætt undir stjörnu bogmanns. Þú átt eftir að standa fyrr en slðar frammi fyrir því að taka mikilvægar ákvarðanir ( ma( byrjun sem tengjast líðan þinni. Hlustaðu vel á manneskjur sem leiðbeina þér en að sama skapi er þér ráðlagt að hugsa þig vel um áður en ákvörðun er tekin. Þú verður að gæta þess að ásetningur þinn leiði til góðs og ert minntur á þaö oftar en ella. STEINGEIT Miklar annir birtast hjá stjörnu steingeitar. Þú átt að fylgja hjarta þínu, hafðu það hugfast um þessar mundir.Steingeitin hefur svo sannarlega gott innsæi og skynjar það sem er rétt. Hér birtist fortíð þín þar sem þú virðist vera fastur/föst í liðnum atburðum Hættu því frá og með deginum í dag. Þessi Kðan er val af þinni hálfu og stundum þarf maður að taka á honum stóra sínum til að halda ótrauður áfram og geta lært af reynslunni og notað hana til góðs. Um leið og þú gerir þér grein fyrir að valið er alfarið í þ(num höndum þegar tilvera þ(n er annars vegar byrjar þú að framkvæma verk sem aðstoða náungann og þig líka. Líðandi stund eflir þig þegar þú sleppir fram að þér beislinu og þú leyfir þér að njóta hennar. Þú ert frjálsari og allar skyldur þínar virðast vera blandnar ánægju en á sama tíma kemur fram að þú ættir að einbeita þér að því að Ijúka við verkefni sem þú hefur látið sitja á hakanum. Mikilvægasta auðlind þín er tími þinn, hafðu það hugfast sumarið 2003.

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.