Orðlaus - 01.10.2003, Blaðsíða 12
Kjartan Már
Magnússon
Ljósmyndari
** ** Texti: Hrefna Björk
Hvar iærðir þú Ijósmyndun ?
Ég nam Ijósmyndun i Gautaborg, Svfþjóð. Námið tók tæp tvö ár.
Nú ert þú búsettur i París telur þú það vera auðveldara að koma sér áfram þar
heldur en hérna heima?
Ég held að það sé óhætt að segja að þetta séu tveir ólíkir heimar. Heima eru
leiðirnar nokkuð blátt áfram, maður arkar (með möppu fulla af myndum) á milli
auglýsingastofa og fær áheyrn. Eftir það er það undir þér komið aö selja þig og
þitt verk. Hér úti er ekki eins einfalt að komast frá A til B. Það eru um það bil
500.000.000 Ijósmyndarar á fermetra í París og þar af leiðandi er samkeppnin ansi
hörð. Þú þarft að fara í gegnum vissar leiöir til komast áfram. Ef þú vilt fá
auglýsingaverkefni þarft þú að vera meö umboðsmann og til að fá umboðsmann
þarft þú að hafa fengið birtar myndir í virtum blöðum, til að fá birtingar í virtum
blöðum þarft þú þekkja rétta fólkiö... o.s.frv...o:s.frv...
Hvað hefur þú verið að gera úti?
Upp á síðkastið hef ég verið assitant hjá Ijósmyndara. Það er dæmi um eina leið
til aö koma sér áfram, því að í gegnum vinnuna er ég búinn að kynnast fullt af
fólki í bransanum.
Ef þú mættir eigna þér verk eftir einhvern Ijósmyndara, hvaða verk myndir þú
eigna þér?
Eftir MIKLA umhugsun hef ég komist niður á það að ég yrði stoltastur af því að
hafa mynd eftir Helmut Newton upp á vegg. Helst eina úr seríunni Big Nudes:
Þriggja metra há prent af nöktum konum, æðislegur Ijósmyndari.
Hefur þú ekki einhverja skemmtilega sögu úr starfi þinu sem Ijósmyndari?
Nei, þetta er allt nokkuð tilbreytingalaust!!!
Hverjir eru helstu kostir og gallar við það að vera Ijósmyndari?
Að gera viðtöl líkt og þetta, það lýsir upp tilveruna mína.
Hverjir eru þínir áhrifavaldar ?
Sá maður sem ég lít sem helst upp til og hefur kennt mér ótal brögð í bransanum
er enginn annar en konungurinn sjálfur Rocco Siffredi
Ertu til f að benda okkur á fimm Ijósmyndasíður sem vert er að kfkja á ?
Hér eru nokkrir sem ég kíki á reglulega:
artandcommerce.com
teensluts.com
cocksuckingsluts.com
showstudio.com
i-dmagazine.com
supermodels.nl