Orðlaus - 01.10.2003, Blaðsíða 18
Nú þegar næstum hálfur áratugur er liðinn af nýrri
þúsöldí er gaman að staldra við, líta tárblaut um
öxl og minnast "the nineties".
Tíska og tíðarandi
90's var mikill tiskuáratugur. Fyrirbærið súpermódef va'rð
il og voru fyrirsætur hylltar sem guðir, fengu plötusamninga
og léku í kvikmyndum. Fyrri hluta aratugarins var brúnn
ríkjandi, auk þess sem svartur og hvítur voru „inn".
Gallabuxur voru i furðuiegum litum eins og gulum,
sægrænum og auðvitað má ekki gleyma hvítum gallabuxum.
Hippatískan tröllreið öllu um tima. Hárið og Stonefree voru
ett á fjalirnar og allar hljómsveitir gerðust mussuklaeddir
hippar. SSSól voru fremstir i flokki, sungu "Sýra, nostalgía"
og öll myndbönd þeirra voru með blómum,
mótmælaspjöldum og frösum einsog "Minni mengun, meiri
ást". Hipparnir viku svo fyrir rave-menningunni. Litrik, víð
föt að hætti hjólabrettagæja, dreadlocks og svo seinna glo-
sticks og dómaraflautur.
Chocoinn varð til, í öllu sínu aflitaða, sólbruna, tribal-
tattúveraða veldi. Hann þróaðist yfir i Hnakkann þegar hann
hætti að vera í smekkbuxum, dúnúlpuvesti og Buffaló-skóm.
Skór urðu mikilvægasta flikin. Jordan, L.A. Gear, retro-
trigaskór, Converse og svo krúnudjásnið: loðnu moonbootsin
hennar Birgittu Haukdal. Pegar skopparatíminn leið undir
lok fóru síðustu ár 90's í að rifja upp gamla tíma. Retro og
second-hand var málið.
Tónlist
90’s hófst með mikilli hip-hop sprengingu. Kynþáttaóeirðir
g reiði blökkumanna hlutgerðust i formi Gangsta-rappsins.
Hvítir vildu vera með, Vanilla lce, Snow og seinnameir
Eminem reyndu fyrir sér í rappinu með misgóðum árangri.
u-tang clan uxu frá spennandi neðanjarðargrúppu yfir i
risabákn sem féll saman eftir þrjár plötur. Hippaæðið náði
lika til rappara (De la soul, arrested development). Rapp
arð síðan, eftir tilkomu Puff Daddy, gegnsýrt af efnishyggju
og varð alger skopstæling á sjálfu sér. Bling, Bling!
'insælasta tónlist fyrri hluta 90's (fyrir utan rapp) var Grunge-
rokkið. Köflottar skyrtur, rifnar gallabuxur og skítugt hár
var málið og unglinga-angist (teenage angst) varð til. En
þegar bönd sem segjast hata frægð og frama verða stærstu
hljómsveitir heimsins hrynur lífssýnin eins og spilaborg.
Pegar messias hinna þunglyndu, Kurt Cobain, drap sig '94
dó grunge-rokkið samstundis með honum. Allir vildu meika
það i útlöndum. Kolrassa Krókriðandi varð Bellatrix, Botnleðja
varð Silt og Land og synir breyttu sér i "Shootin' blanks"
(sem þýðir að vera getulaus). Engin meikaði það nema
Victory Rose og gellan þarna úr Sugarcubes.
En það sem breytti tónlistarsögunni til frambúðar,
mikilvægasta þróun síðan rokkið varð til, kom fram i 90's.
Rafræn danstónlist gerbylti tónlist að eilífu, til hins betra
■eða verra. Með tölvutækninni gátu menn gert metsöluplötur
úr svefnherberginu og óendanleg afbrigði danstónlistar
urðu til. House, Techno, Jungle/drum n' bass, ambient,
bigbeat, og hundruðir undirflokka. Plötusnúðurinn varð að
stjörnunni og E pillan var dóp heillar kynslóðar á Tunglinu
og Rósenberg. Danstónlist er einmitt það sem kemur upp
i bugann þegar hugsað er til 90's: Europopp. Dr. Alban, Ace
of Base, 2 unlimited, Dj Bobo, Corona, Right Said Fred,
Whigfield, Pis of Keik, Urban Cookie Collective, Scatman
John, Scooter... það er óhætt að segja að flóð
raftónlistarmanna var endalaust.
Ulir vildu
rókríðandi varð Bellatrix
jg synir breyttu
þýðir að vera
nema Victory
getulaus).
imarnikoc "
Minni spámenn og fyrirbæri 90's tónlistar: Strákabönd,
magavöðvafjallið Peter Andre, one-hit wonderin í Levi's
auglýsingunum, Spice Girls, MC Hammer, Pulp Fiction
soundtrackið, "Groove is in the heart" með Dee-Lite, lcerave,
sukkhátíðin UXI, Friends-lagið og auðvitað Milli Vanilli.
Kvikmyndir
Á fyrstu árum 90's var fólk agndofa yfir tæknibrellunum i
T2 og Jurassic Park. "The Summer Blockbuster" varðtil, og
heiminum var tortímt þangað til öllum var sama.
Independence day, Armageddon, Waterworld.
Sprengingarnar og brellurnar urðu svo fyrirferðamiklar i
rusli eíns og Bruchheimer-myndunum Bad Boys, The Rock
og Con Air að hasarmyndir urðu allar eins. Fljúgandi dúfur,
flaksandi frakkar og alltaf skotið með tveimur byssum í
einu. Fólk fékk nóg og dreif sig frekar á litlar og gáfaðar
myndir eins og Silence of the Lambs, Shawshank Redemption
og American Beauty.
Fólk fékk ekki nóg af költ-glæponamyndum. Scorsese gerði
Goodfellas og Casino og allir gerðust gangsterar. Breska
bylgjan gaf af sér Lock, Stock and Two Smoking Barrels og
Trainspotting. Og videoleigunörd að nafni Quentin Tarantino
gerði byltingu með Reservoir Dogs og Pulp Fiction. Allar
spennumyndir eftir þær voru fullar af grófu ofbeldi og
"gáfulegum" samræðum. Enn í dag, tíu árum seinna stendur
aftan á hulstrum að myndir séu "I anda Pulp Fiction".
Teiknimyndir fengu uppreisn æru I 90's og var það Disney
sem gerðu eina mynd á ári sem átti að toppa hina fyrri, frá
góðum (Lion King) til algers skrans (Hunchback of Notre
Dame). Pixar kom með tölvuteiknaða snilld eins og Toy Story
og Bug's Life. Annars voru það Manga myndir sem þóttu
svalastar.
Poppkúltúr/dægradvöl
Internetið ruddi sér til rúms og faxtækið varð úrelt.
Vafasamar myndir af Heiðari snyrti voru fyrsta internet-
hneykslið á íslandi. Netið var ekki það eina sem var nýtt þá,
en tekið sem sjálfsögöu í dag, gemsar komu um miðjan
áratuginn. Áður mátti oft sjá fólk með friðþjófa, sem þótti
einmitt flott hjá skoppurum. Krakkar söfnuðu limmiðum,
skrifuðu í vinabækur og keyptu sér gler-snuddur og settu
þær um hálsinn í kílóavís. Jó-jó æði gekk yfir og þegar það
stóð sem hæst átti hvert mannsbarn að minnsta kosti eitt.
Haldnar voru keppnir fyrir utan sjoppur og útlenskur
atvinnumaður kom í heimsókn. Að lokum var Jójómeistari
íslands krýndur. Hvar ætli hann sé í dag? Krakkar horfðu
líka á Simpsons og vitleysinginn Bob Saget í America's
Funniest Home Videos, drukku kók úr Kókbilnum og söfnuðu
körfuboltamyndum, þarsem körfuknattleikur var vinsælasta
íþrótt íslands í nákvæmlega tvö ár.
Tveir með öllu voru vinsælastir á öldum Ijósvakans og gáfu
út Svörtu bókina. Eiríkur yfirheyrði fólk í beinni og Fiskur
án Reiðhjóls var einn af mörgum lífstílsþáttum 90's. Fólk
byrjaði að geta pantað sér pizzur og sjálfur
forsætisráðherrann keypti fyrsta McDonald's hamborgarann
við hátíðlega athöfn. Ástþór Magnússon sigraði
forsetakosningarnar og leiddi island inn i nýja gullöld
þekkingar og fegurðar (næstum því). Talandi um forseta,
fyrri Persaflóastyrjöldin var háð undir stjórn George Bush.
islendingar fengu þá nasaþefinn af alþjóðlegu sjónvarpi
þegar Sky og CNN sýndu beint frá stríðinu eftir dagskrárlok
RÚV og Stöðvar 2. Fjölvarpið fylgdi í kjölfarið. Bush var
rekinn fyrir stríðsreksturinn (sagan endurtekur sig vonandi)
og saxafónspilandi sveitalubbinn Bubba Clinton tók við.
Þökk sé Monicu Lewinsky varð orðið Intern þekkt um heim
allan. 90’s var áratugur "live" umfjöllunar á ofangreindum
fréttastöðvum, þar sem fólk horfði I marga klukkutíma á
þyrluskot af Columbine, dauða Díónu prinsessu, OJ flýja
réttvísina, og óeirðirnar i Los Angeles.
Það má endalaust rifja upp atburði, fólk og fyrirbæri 90's
og hér var aðeins rétt gárað yfirborðið. Maður ætti aldrei
að halda áfram án þess að líta um öxl af og til. Maður ætti
aldrei að skammast sín fyrir fortíðina. Nema ef maður er
með eitthvað drasl í skápnum merkt Millenium 2000!
Texti: Björn Þór
líka til deyfikrem fyrir þessa karlmenn sem eru búnir áður
en allt byrjar, noti þeir deyfikremið er blívandi standari
hele natten og en gang til.
Út frá öllu þessu fór ég að spá hvort það væri hægt að
vera sona hvorki-né-kynhneigður, og vera þar með
tækjahneigður frekar en samkynhneigður, tvíkynhneigður
eða gagnkynhneigður. Það væri ekkert undarlegt að vera
taekjahneigður þar sem að tæknin tekur sifelldum
framförum meðan mannfólkið stendur í stað. Með einum
góðum víbrador og smá skammti af örvandi kremi er hægt
að fá jafn margar fullnægingar á tíu mínútum og maður
myndi annars ná úr einum stólpuðum karlmanni á einu
ári. Að vera hvorki-né-kynhneigður er líka mjög hentugt
í nútímasamfélagi þar sem tími er eitthvað sem enginn
virðist eiga nóg af. Bæði kynin gera ákveðnar kröfur til
maka slns um að núna eigi að sinna kynferöislegum þörfum
þeirra en það er ekki á hvers manns færi aö verða við þeim
óskum hvenær sem kallið kemur. (stað þess að svekkja sig
á því að geta annaðhvort ekki fullnægt þörfum maka slns
eða fengiö slnum þörfum fullnægt er kannski mun betra
að vera bara hvorki-né-kynhneigður. Rafmagnstækin gera
þá einu kröfu að Duracell rafhlaðan sé á sínum stað svo
hristingur geti farið fram og maður einfaldlega grípur I
tækin sín þegar löngun, tími og tækifæri gefst til. Jú
vissulega getur þaö komið fyrir að batteriin klárist bara
sona einn tveir og þrír án nokkurs fyrirvara I miðju klæmaxi,
en bæði kynin þekkja þaö vel að jafnt konur sem karlar
geta brugðist á ögurstundu, orðið úrvinda einsog ofnotað
batterl. Framtlðin mun vera sú að I stað þess að veifa
gullkortum og porsche lyklum framan I okkur dömurnar
á barnum munu drengirnir veifa batterískössum og
kremtúpum og láta falla pikköpp llnur sem hljóma svo -
viltu koma heim og víbra með mér - grrr.
Guð gaf mannkyninu tæknivit og það er mln afstaöa að
við eigum að nýta þaö tæknivit og njóta, hvort sem það
er til að komast til tunglsins eða til að pukrast undir sæng
slðla kvölds þegar enginn sér.
Óska ykkur víbrandi velfagnaðar.
Mikið rosalega ert þú sælleg Bibba mín" sagði ég við
vinkonu mína þegar ég sá hvernig lífsgleðin úsaði frá
henni. " Já, ég er svo vel fullnægð!" svaraði hún og brosti
sensúal brosi núúúúú... það er aldilis að hann Dúddi kæri
þinn trídar þig vel" sagði ég I sakleysi mínu " Hann Dúddi"
æpti vinkonan og hló fullnægðum hlátri hann gerir nú
ekki mikið nema að sofna I miðju klæmaxi hjá mérl! Nei
Jóhanna mín ég var að kaupa mér nýtt egg og vibrafem
krem... besta kynlíf sem ég hef lengi fengið og fékk ég
það fínt... tékkaðu á þessu á pen.is þetta kostar ekkert,
keypti mitt I Erotica Shop."
Egg! Vibrafem! Pen.is! Erótlskar búðir! Hvað er að gerast?
Hvernig hefur þessi heimur farið fram hjá mér
nútímakonunni sjálfri? Ég er kannski ekki jafn I takt við
nútímann og ég taldi mig vera enda hefur aldrei heyrst
vrrrr undan minni sæng, þaðan koma hinu fæstu hljóð,
fyrir utan einstaka hrotu. Daginn eftir gat ég ekki hugsaö
mér aö standa fyrir utan þennan heim mínútu lengur. Ég
fleygði mér I skó og úlpu og gargaði til móður minnar
"mamma! Ég er farin út að kaupa mér kynferðislega
ánægju!" "Já elskan" svaraði mamma og ég hvarf út fyrir
dyrnar á vit framandi erótíkur.
Þegar ég nálgaðist Erotica Shop stuttu seinna fann ég
hvernig hausinn drógst lengra og lengra niður I hálsmálið
á úlpunni með hverju skrefinu og ósjálfrátt stakk ég
höndum I vasann og varð hálf niðurlút. Ég veit ekki alveg
af hverju... mérfannst bara að maður ætti að ganga soliðis
I átt að og inn I erótískar búðir. Þegar ég steig inn heyrðist
blin blong I dyragáttinni til að tilkynna komu mína I búð
ástartækja og erótískra drauma. Á móti mér tók maður
sem spurði mig með brosi hvort hann gæti aðstoðað. -
Nei ég er bara að skoða - hvíslaði ég og kreppti hnefana
I vösunum, dró upp axlirnar og pukraðist eitthvert á bakvið
I klámmyndadeildina.
Ég pukraðist milli margra hillna I Erotica shop og get ekki
annað sagt, en að það er margt skrítiö I erótíska hausnum.
Allt er til. Hvort sem þú ert einhleypingur, marghleypingur,
samkynhneigður, gagnkynhneigður, tvíkynhneigöur, átt
vandamál við stinningu, bleytingu, of fljóta fullnægingu
eða skort á fullnægingu, vilt uppfylla saklausa draumóra,
svæsna draumóra eða bara kikka svalur meö popp og góða
klámræmu I latex galla... allt er til. Hillurnar í Erotica Shop
voru drekkhlaðnar af hlutum sem komu mér framandi
fyrir augum. Það var til dæmis hægt að kaupa það sem
ég vil kalla "essence of a woman in the eyes of men" en
það er eftirlíking af kynfærum kvenna ætluð til erótískra
nota pökkuð inní kassa. Mig minnir að krem fylgi með.
Einnig er líka hægt að fá handægari gervi... emm þið
vitið, en það er bara sona gúmmí hólkur voða sleipur og
fínn fyrir herramennina að njóta, ég fékk nú að snerta á
þessu... get ekki sagt að áferðin hafi verið kunnuleg. Svo
var hægt að kaupa allskonar tegundir af masterbeisjón
kits, þá færðu í einum pakka allt sem þarf til að gera
viðvaningslegtfitl að fullkomnri sjálfsfróun. Skemmtilegast
fannst mér þó aö sjá að hægt er að kaupa þráðlausa
vibradora. Það kallast fiðrildi og getur konan klætt sig I
þaö og afhent fjarstýringuna hverjum þeim sem verður
hennar er. Þá getur mar bara verið að fá þaö sona út um
allan bæ hist og her. Bæði stytt sér stundir meðan beðið
er í röðinni í bankanum og borgað svo reikningana með
bros á vör og roða I kinnum eöa tekið einn raðara i bíó
og þess háttar. Mar verður bara ein gangandi
raðfullnæging. Svo eru öll þessi örvandi krem sem
margfalda allar nautnir svo rosalega að maður telst heppinn
að hausinn poppi ekki af manni I miöri orgasmfu. Svo eru