Orðlaus


Orðlaus - 01.02.2004, Síða 4

Orðlaus - 01.02.2004, Síða 4
 Grœðgi — ein af syndunum Mikið hefur verið rætt um kaupaukasamninga, starfslokasamninga, sameiningu banka og hlutafjár upp á síðkastið í fjölmiðlum og hefur orðið græðgi borið á góma. Græðgi er ein af höfuðsyndunum sjö og er eitt víst að hún, ásamt fávisku og kæruleysi eru uppspretta ýmissa vandamála í heiminum. Græðgi er það að sætta sig ekki við það sem maður hefur, en vilja sífellt meira og betra og sækjast eftir meira en maður í rauninni þarf. Að ganga lengra en góðu hófi gegnir, vilja betri tölvu, fleiri hlutabréf, hærri kaupauka, stærri fyrirtæki, víðara landsvæði og ódýrara vinnuafli. Græðgin er hvatinn á bakvið mörg af þeim stríðum sem háð hafa verið í gegnum aldirnar, tökum bara írak sem dæmi. Þetta eru ekkert annað en skammarlegar aðgerðir til þess að sigra heiminn. Græðgin er einnig hvatinn á bakvið þrælahald og mansal þar sem ódýrt vinnuafl getur margfaldað summuna í fyrirtækjakassanum og ung börn verða fórnarlömb illsku í heimi sem genginn er af göflunum. Græðgin er hvatinn á bak við sameinignu banka og samsteypu fyrirtækja. Það þarf ekki endilega að vera græðgin í hreina og beina peninga heldur græðgin í völd. Græðgin í að eignast allt. Kappsfullt fólk er að sjálfsögðu gottfyrir samfélagið og skilar auknum vexti í hagkerfið en þegar græðgin ein og sér er farin að stjórna stjórnmálamönnum, viðskiptajöfrum sem og öðrum erum við í vanda stödd. Reyna menn þá að hafa áhrif á stjórnvöldin því auðvelt er að spilla gráðugum mönnum til að misnota vald sitt. Við endum uppi með elítu sem hugsar ekki um annað en að taka það allt! Græðgi er þó ekki einungis siðfræði hinna ríku og valdamiklu. Ég rakst á grein í Mogganum um daginn sem sagði að skammturinn á McDonalds í Bandaríkjunum hefði þrefaldast í kaloríum. Ekki það að maturinn væri orðinn meira fitandi heldur væru skammtarnir einfaldlega orðnir þrefalt stærri til þess að mæta óskum viðskiptavinanna. Þetta er auðvitað ekkert annað en matargræðgi. Nú þarf þar að breyta fatastærðum og skipta um sæti í flugvélum og veitingastöðum á meðan fólk víða um heim sveltur til dauða. Á meðan Bandaríkin springa, hverfur Afríka. Græðgin birtist því i mörgum myndum eins og fégræðgi, matargræðgi, valdagræðgi og allmennri ágirnd. Við getum með sanni sagt að græðgin hefur fylgt manninum gegnum tíðina í lífi og starfi og öll höfum við orðið uppvís að henni. En við þurfum að læra að hafa stjórn á græðginni í okkur og takmarka völd einstakra einstaklinga til þess að koma í veg fyrir hörmungar sem gætu verið mun stærri en nokkur gerir sér grein fyrir. Það er skiljanlegt að menn sækist eftir meiri auði, það er frekar ágirnd. Það eru fáir sem myndu segja nei við launahækkun, ekki satt? En munur er á hófi og óhófi. Ég trúi þó ekki að það sé græðgi, sjáIfselska, virðingarleysi og mikilmennskubrjálæði sem drífi mennina áfram. Ég vil trúa því að í hverjum einstaklingi sé rík samúð, umburðarlyndi og hollusta við náungann, sumir eiga aðeins eftir að koma auga á það í sjálfum sér. Ég vil trúa því að endalaust ströggl eftir auði og völdum verði minna mikilvægt á meðan grundvallarþörfum er fullnægt og fólk lærir að verða ánægðara og sáttara við sitt. Þegar meiri hiutinn fer að stjórnast af samúð og þekkingu fremur en græðgi og fávisku þá vil ég trúa því að elítan muni hægt og hægt sjá að sér og láta stjórnast af jákvæðum hvötum ... en þetta er auðvitað bara minn draumur. Steinunn Jakobsdóttir BioComplex sokkabuxur - heilsulind sem þú klæðíst Þær auka veHiðan, næra og viðhalda göðu rakastigi húóarinnar, styrkja hana og gefa fótunum fallegra og grennra yfirbragð.

x

Orðlaus

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.