Orðlaus - 01.02.2004, Síða 6
Hverju leitar þú helst að í fari kvenna?
Bara þetta venjulega: hreinskilni, falleg, flott, hress, skemmtileg og að hún sé ánægð
og örugg með sjálfa sig.
Hvað er það sem fer mest í taugarnar á þér í sambandi við konur?
Nöldur, númer 1, 2 og 3.
Ef þú fengir að vera kona í einn dag hver myndir þú vera og af hverju?
Finnst engin kona það merkileg að ég myndi vilja vera hún.
Er eitthvað sem þú skilur ekki í sambandi við konur?
Alveg hellingur, til dæmis af hverju þær flækja einföldustu hluti að óþörfu, taka
allri gagnrýni svona persónulega o.s.frv.
Við hvað myndir þú helst vilja vinna?
Ég væri til í að vera forseti íslands, fæ helling borgað fyrir að gera ekki rassgat
nema ferðast um heiminn í einhver teboð.
Hvar myndir þú helst vilja búa og af hverju?
Á Miami, gott veður, flottir bílar og flottar stelpur.
Ef þú mættir breyta einhverju í heiminum, hverju myndir þú breyta?
Ég myndi vilja eyða allri forræðishyggju, ég vil að fólk ráði því alveg hvað það
gerir svo lengi sem það skaðar ekki aðra. Ég vil ekki láta einhvern Jón út í bæ
banna mér eitthvað og þess vegna banna ég fólki ekki að gera það sem því langar.
Gerum eins og Jón Gnarr segir, bönnum bannara.
Hvað er klám fyrir þér?
Ríðingar í myndbandi eða á Ijósmynd.
namsz
TÍMARIT
KVENKYNS