Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 14

Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 14
CFTl-E Eftir miklar pælingar sendi ég honum sms: /fVar að greinast með berkla og verð send í einangrun til Kanada um óákveðinn tíma. f gær hélt ég að lífi mínu væri lokiðl! Hildur og ég vorum ekki enn farnar að tala saman út af þessu veseni með Rút (kærasti Hildar sem ég fór í sleik við, löng saga) og Adda var búin að þröngva mér á deit með einhverjum Ijótum vini sínum (sem ég fór reyndar i sleik við, enn lengri saga). Þar sem ég lá og endalaust vorkenndi sjálfri mér, skítaþunn á megabömmer með Tjernobil bólu á enninu að plana jarðaförina mína eftir mitt félagslega sjálfsmorð kvöldið áöur hringdi bjallan. Himnarnir opnuðust og það ringdi Nonnabátum. Hildurvar mætt með vandræða- legt bros og sveittann mat.Hún hafði verið að djamma kvöldið áður með hinum „yndislega" Rút sem varð svona „yndislegur" við helming allra stelpna á Sólon og Hildur endaði á því að finna hann úti í horni að hmmm ... njótast með einhverri ungri stúlku. Helvítis var sem sagt ekki bara lygari heldur líka með króníska brókarsótt þannig að Hildur var með smá samviskubit yfir því að hafa ekkert hlustað á mig. Eftir grát, gnístran tanna, endalausar fyrirgefningar og dagskammt af majónesi fórum við að snúa okkur að mínu vandamáli og krísufundurinn hófst fyrir alvöru. Hvernig á að losna við gæja samdægurs, ekki eftir 10 daga meira svona 10 mfnútur. Ég vissi að þessi Gauji væri alveg vel uppáþrengjandi gæji þannig að það mundi þurfa eitthvað meira en þetta klassfska, að bera við minnisleysi, til að losna við hann. Eftir miklar pælingar sendi ég horium sms: „Var að greinast með berkla og verð send í einangrun til Kanada um óákveðinn tíma." Þannig að ef ég held mig frá fólki í efnafræði, Grafarvoginum og Kaffi Amsterdam (sem ég geri nú allan ársins hring hvort sem er) get ég ekki séð betur en að ég sé laus við hann. Þar sem þetta var sorglega, en satt, ekki í fyrsta skipti sem önnur okkar lenti í því að fara í sleik við einhverja Gollrir týpu ákváðum við að strengja áramótaheit: "Bannað að fara I sleik við stráka á djamminu nema að við höfum séð þá edrú og þeir séu I alvöru sætir, ekki 5 Carlsberg sætir". Ég og Hildur vorum orðnar aðeins bjart- sýnari eftir að hafa analfserað allt í okkar strákamálum og vorum orðnar hand- vissar um að hinir einu réttu biðu handan við hornið. Við ákváðum því að skola af okkur skftinn og skella okkur á Sólon til að glápa á sæta barþjóninn. Við eiginlega runnum niður f bæ frekar en að labba; á mesta svelli ever og ég auðvitað flaug á hausinn og var hálf tussuleg þegar við loksins náðum inn á Sólon. Ég tók að sjálfsögðu stefnuna beint á barinn og var að einbeita mér að því að horfa daðurslega á sæta þegar einhver gaur (frekar sætur) vatt sér að mér og bókstaflega öskraði "Valal". Þar sem ég er afskaplega kúl og yfirveguð manneskja brá mér bara geðsjúkt og hoppaði upp og einhvern veginn náði að henda einhverju einmana latte glasi í gólfið. Gott Vala, þetta fer án efa á topp 10 listann yfir mín asnalegustu moment. En hann hélt samt áfram að tala við mig (hugaður strákur). Þá var þetta Bjössi, strákur sem hafði verið með mér í grunn- skóla ég gjörsamlega missti andlitið og hann greini- lega búin að missa 70 kíló og ég sver að ég hefði ekki þekkt hann þótt ég hefði verið á spes launum hjá Mannþekkingar stofnun rfkisins. Hann var búinn að klára við- skiptafræðina en fékk ekkert að gera þar sem hálf þjóðin er með sömu gráðu ... og hann að vinna á Sólon. Hann spurði náttúrulega hvað ég væri að gera og ég meikaði ekki að segja honum að ég ynni í sveittri subbu- sjoppu hjá alka frænda mfnum þannig að ég laug að ég væri "freelance ... eitt- hvað" og ég er ennþá ekki búin að jafna mig á aulahrollinum sem ég er með á sjálfri mér. Hann spurði reyndar ekkert frekar út f það, þannig að ég er að vona að þetta hafi sloppið í gegn. Hann kom sfðan og settist hjá mér og Hildi og við enduðum á því að kjafta og sötra saman allt kvöldið og ... Bjössi bauð mér vinnu á Sólon og ég er að fara I prufu f kvöld! Þannig að kannski Maggi frændi verði að eyðileggja líf einhvers annars víííífl. Það rættist þvl meira en vel úr þessum degi og ég er að pæla f þvf að fá hann viðurkenndan sem alþjóðlegan lukkudag. Er samt nett stressuð yfir þessari prufu, var ekki búin að vera inni I 5 minútur í gær þegar ég var búin að brjóta glas. En ég meina hey allavega búin losna við Gauja... Vala MÆLUM MEÐ ísland kynsjúkdómalaust árið 2005 Fyrst að Framsóknarflokkurinn ætlaði að gera ísland eiturlyfjalaust árið 2000 ætti þetta ekki að vera neitt mál. Það eina sem þarf er að allir taki sig saman og fari i skoðun. Þessvegna mælum við með því að allir drífi sig niður á Húð og kyn fyrir l.apríl og þannig gerum við ísland að fyrsta kynsjúkdómalausa landi i heiminum. Hversu töff er það! Steikarsamloku á Vegamótum Þetta er án efa besta samloka á landinu, allavega fyrir þá sem finnst bernaissesósa góð. Til marks um það má segja fré því að Hrefna markaðsstjóri okkar lýsir henni sem fullnægingu. Þessa samloku færðu é Vegamótum en þeir eru með einn stærsta matseðil á landinu þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Lausu sambandi Við skorum á ríkisstjórnina að koma þráðlausu netsambandi á alla Reykjavík áður en þeir selja Sfmann. Við erum alltaf að monta okkur á því að island sé svo framarlega í allri tækni. Nu þegar er búið að setja upp þráðlaustnet yfir 400.000. manna borg og við erum miklu færri. Þetta væri sterkur leikur. ísland best i heimil Reðursafnið Þetta safn er alveg stórsniðugt safn og skylda fyrir alla íslendinga að fara á. Það skýrir sig nokkurnveginn sjálft hvað er sýnt á þessu safni og má meðal annars finna kynfæri hvals og fleiri dýra. Safnið er á Lauvegi 24 og er opið frá fimmtudegi til laugardags frá kl 14-17 og er aðgangseyrir 400kr. Víking á 250 kr Jé og þetta er ekki á Nelly's. Prikið býður nú víking i flösku á aðeins 250 kr sem er mjög sanngjarnt verð. Það ættu allir staðir að taka þá sér þetta til fyrirmyndar. Þannig gætum við kannski skapað vinmenningu á islandi. Þannig að allir niður á Prik einn, tveir og þrír... Snjóbrettanámskeið Brettafélag íslands í samvinnu við Ölgerðina Egil Skallagrimsson ætla að bjóða uppá snjóbrettanámskeið í vetur þar sem allir geta lært að bruna niður brekkurnar, það er ef það fer að snjóa almennilega. (Biðjum fyrir því.) Skráning fer fram í verslunum Brim á Laugavegi og í Kringlunni en allar nánari upplýsingar um námskeiðin má finna á heimasíðu Brettafélags íslands www.bigjump.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.