Orðlaus

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Orðlaus - 01.02.2004, Qupperneq 18

Orðlaus - 01.02.2004, Qupperneq 18
Hættulegír Heimar. í þetta skipti hef ég ekkert að styðjast við. Engar tölur, engar tímaritsgreinar, engar kannanir. Ég hef ekkert til að skýla mér. Það er líka alveg hreint Ijómandi ágætt, því þessi grein á að fjalla um nákvæmlega þetta; viðkvæmnina þegar múrarnir falla. Þetta er varla grein. Nýárstiltekt í gömlum minningum. Sem Orðlaus-penni er það að sjálfsögðu draumur minn að líf mitt breytist allt í einu í Hollywood- kvikmynd, How To Lose a Guy In 10 Days. Þar er líka stelpa sem skrifar. Sú stelpa skrifar sönnustu grein ævi sinnar, afhjúpar sig algjörlega. Daginn sem biaðið kemur út eru orð hennar á vörum allra. Fólk út um allan bæ sem hættir daglegu amstri, lokar bókum, slekkur á tölvum og símum (eða stillir þá a.m.k. á silent), sest niður og leyfir orðunum að taka völdin. Það er draumur minn. Að sannasta greinin sem ég skrifa verði lesin af öllum og að allir geti tekið hana til sín á einhvern hátt, jafn persónuleg og hún kann að virðast við fyrstu sýn. Að orðin mín festist við einhvern eins og lítil gleymmérei, og fylgi þeim áfram þegar kveikt hefur verið á símanum aftur. Það er komið nýtt ár; ár apa, byrjana, nýrra ævintýra. Sum ævintýri sitja samt í manni í mörg ár, allar byrjanir eru eftirköst þessarar einu byrjunar. Þetta verður greinilega í anda kvik- myndanna. Ég á mér Sunnudagsuppá- haldsmynd. Þessir sunnudagar þar sem allt er grátt og þú ert þreytt og það er ný vika að byrja aftur og það hefur sýnt sig að allt sem þú hélst að væru byrjanir voru bara upphafið að endinum. Óvæntum endi. Sunnudagar til þess að fela sig í sófanum undir hlýrri sæng, og saltið á poppkorninu kemur í staðinn fyrir sölt tárin sem þú tímir ekki að gráta. Það er líka Hollywoodmynd, Playing by Heart. í henni talar Sean Connery um það að verða ástfanginn. Þú verður ekki bara ástfangin af persónu, þú verður líka ástfangin af sjálfri þér. Það að sjá þig speglast í augum þess sem þú elskar minnir þig á hversu frábær manneskja þú ert sjálf. Egóismi kannski, en ég held hann hafi þó nokkuð rétt fyrir sér. Ég held líka að þetta eigi við um flestöll mannleg samskipti. Að kynnast mann- eskju er líka aö kynnast sjálfri þér upp á nýtt, eins og þú ert ( augum hennar. Kannski er það það sem heillar okkur í sambandi við manneskjur. Ég elska manneskjur, að kynnast þeim í allri sinni fegurð og með alla sína skugga sem dansa yfir húðina. Kannski er ég svona rosalegur egóisti að ég elska að kynnast sjálfri mér upp á nýtt. Hvað um það; manneskjur eru eigin heimur og ég er haldin sömu þrá og Kólumbus, vil uppgötva nýja heima með nýjum möguleikum. Ég vona samt að ég sé ekki eins og þeir landkönnuðir sem sagan hefur að geyma. Ég vil ekki gera nýja heiminn að mínum, notfæra mér þá möguleika sem hann hefur upp á að bjóða þangað til hann er þurr- ausinn. Ég vil bara fá að skilja eftir mig fótspor á auðri strönd sem sjórinn getur þurrkað út ef hann vill. Kólumbus hélt að hann væri kominn til Indlands, skildi aldrei að hann hefði uppgötvað Ameríku. Ég lendi oft í þessum misskilningi. Sit í árabátnum mínum á skvalpandi öldum og virði nýja heiminn fyrir mér úr fjarlægð. Þegar innfæddir hleypa mér svo nær og ég er búin að draga bátinn í land er ég stödd í allt annarri veröld en ég hafði (myndað mér. Oftar en ekki leynast þar skuggar og hættur sem ég hafði ekki gert mér grein fyrir. Og stundum er það sem virðist fráhrindandi úr fjarlægð dáleiðandi f ógnarlegri fegurð sinni þegar nær er komiö, eins og íslensk náttúra. Nóg af líkingum. Orðin mega ekki stjórna mér núna, ég verð að stýra þeim. Þetta er tími byrjana, og mig langar að skrifa um mfna. Byrjunin mín, sem hafði svo mikil áhrif á mig að allar aðrar byrjanir eru eftirköst hennar. Fyrir fimm árum kynntist ég manneskju í gegnum vinkonu mína. Ég virti hana fyrir mér úr fjarlægð. Hún var allt sem ég var ekki; svo örugg og meðvituð um eigið virði og fegurð að allir í kringum hana dáðust að henni. Svo glansandi að ég fékk ofbirtu í augun. Svo sterk, svo frjáls, svo lifandi. Ég komst nær, sogaðist nær, algjörlega heilluð af þessum karakter. Nær og nær, þangað til að augu mín opnuðust og vöndust geislandi Ijósinu. Þessi mann- eskja, sú manneskja sem ég hafði litið mest upp til af öllum, bar þyngri byrði en ég hafði gert mér grein fyrir að væri til. Hver einasti dagur í lífi hennar er áskorun og hún fagnar alltaf heils hugar þegar deginum er lokið, sérstaklega ef henni tekst að komast í gegnum hann með heila húð.Þetta var i fyrsta, en alls ekki síðasta, skiptið sem ég kynntist þessari skrýtnu hvöt að skaða sjálfan sig. Bókstaflega; með hnífum, rak- blöðum eða öðru tilfallandi. Fyrir þessa manneskju var það eina leiðin að hafa stjórn á kaósinu inni í henni; líkamlegur sársauki var örlítið skárri en hinn. Ég get ekki lýst því hvað það er sárt að sjá fersk sár á hverjum degi, að reyna að hjálpa en geta ekkert gert. Örmjó, hárfín sár. I lófa hennar líflínan helguð dauða. I hennar tilfelli var það ekki einu sinni þetta hróp á hjálp sem t.d. sjálfsmorð eru svo oft sögð vera. Hún var ánægðust þegar enginn sá og enginn tók eftir litlum stálbitum sem hún hafði komið fyrir í þunnri húðinni á milli fingranna. Þurfti ekki annað en að kreppa hnefann til að skerandi líkamlegur sársaukinn yfirgnæfði hinn. Þetta er byrjunin mín. Eftir hana hef ég tileinkað mér mottóið að aðgát skal höfð í nærveru sálar. Og aö ganga aldrei út frá því að hlutirnir séu eins og þeir virðast vera úr fjarlægö. Þær finna alls konar leiðir til að vernda sig, sálirnar. Langflestir hafa einhvers- konar múra og grímur til verndar. Það er svo erfitt að vera algjörlega einlæg. Það er kannski það sem þessi svokallaða grein fjallar um, það sem ég vil segja. Við erum það dýrmætasta sem við eigum, og við verðum að fara vel með Ég lendi oft í þessum misskilningi. Sit f árabátnum mínum á skvalpandi öldum og virði nýja heiminn fyrir mér ur fjarlægð. Þegar innfæddir hleypa mér svo nær og ég er búin að draga bátinn í land er ég stödd í allt annarri veröld en ég hafði ímyndað mér. verðmætin. Öll dýrin í skóginum ættu að geta verið vinir. Kunningjar að minnsta kosti. Þú stjórnar því ekki hvernig fólk bregst við því sem þú gerir og segir, en þú getur stjórnað því sem þú gerir og segir. Að sjálfsögðu eru öfgar í þessum málum eins og öllu öðru. Það er ekki hægt að ætlast til þess af fólki að það ritskoði allt sem það lætur frá sér af ótta við að særa einhvern annan. Ég held hins vegar að það sé mikilvægt að feta varlega um nýja heima, skilja eftir sig fótspor en lítið annað. Það þarf svo lítið til að setja viðkvæm lífríki úr skorðum. Og maður villist auðveldlega í ókunnum regn- skógum. Týnir sjálfum sér jafnvel. Ég feta mig með ítrustu varúð um heiminn sem er hún, sem er orðinn kunnuglegur en kemur mér ennþá á óvart. Villtist næstum því, en komst á endanum niður að sjónum aftur. Þrátt fyrir allt saman lít ég ennþá upp til hennar. I mínum augum er hún ennþá geislandi, sterk og ótrúleg. Ég las texta eftir Ralph Waldo Emerson um daginn. Hann segir meira en ég get sagt, og ég neyðist til að svíkja lit sem íslenskunemi og vitna í hann á ensku; "Men imagine that they communicate their virtue or vice only by overt actions and do not see that virtue or vice emit a breath every moment." Hún skilur mig ekki, að finnast hún ennþá best eftir að gríman féll. En alveg éins og gríman er ekki hún, er vanlíðanin ekki heldur hún. Ekki ein- göngu. Hún er einhvers staðar undir ör- óttri, blæðandi húðinni. Hún er þarna innst inni, og ég skynja hana ekki bara í gegnum orð eða geröir. Hún er geisl- arnir allra innst inni. Heimurinn sem heillar mig. Ralph Waldo Emerson segir líka aö sannleikur einnar manneskju sé heims- sannleikur. I hennar heimi. This is my truth, tell me yours. að þjóðardrykk íslendingar leita Já þetta er ekki grín. Nú ætlum við að ráðast á kokteilmarkaðinn og ekki þar sem hann er lægstur. Við ætlum að komast á stall með kokteilum eins og Cosmopolitan. Mojito, Sex on the beach og White Russian. Það eina sem okkur vantar er kokteillinn sem á að bera nafnið Midnight Sun. Því hefur Absolute vodka efnt til kokteílkeppni á Sjávarkjallaranum þann 20. febrúar og vegleg verðlaun eru í boði. Það getur hver sem er tekið þátt og einu reglurnar eru þær að eina áfengið sem þarf að nota er Absolut Mandarine og það mega vera hámark þrjár áfengistegundir í kokteilnum. í tilefni af þessu verða settar upp æfingabúðir hjá K. K Karlssyni þar sem fólk getur reynt að búa til besta kokteil í heirni. Síðan verður farið með drykkinn ut um allart heim og hann kynntur þar. Við hvetjum alla til að taka þátt í þessari stórskemmtilegu keppní. Hugsið ykkur að þegar ferðamenn koma hingað eiga þeir eftir að panta sér Micinight Sun ocj þá getur þú sagt "I made itl". fyrir þá ;em vilja frckari upplýsingar fari á . Þessi kokteilkeppni er liður í lceland Fashion Week sem haldin verður daginn efir, þ21 februar. Þar munu fjölmargir íslenskir hönnuðir kynna hönnun sína á glecsilegri sýningu í Ráðhúsi Reykjavíkur um kvöldið. Spennandi verður að sjá hverníg til tekst og munum við að sjálfsögðu leyfa ykkur lesendum okkar að fylgjast með.

x

Orðlaus

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.