Orðlaus - 01.02.2004, Side 20

Orðlaus - 01.02.2004, Side 20
m að birtast hér eru ekki á ábyrgð Orðlaus J Ú I Hvernig væri að spara á réttum stöðum? Þjóðin á að geta treyst þeim fyrir því að taka heilbrigðar og ábyrgar ákvarðanir um það hvernig þjóðararðinum er eytt, en ég get sagt fyrir mitt leyti að ég er ekki sannfærður um að fjárútlát þjóðarinnar séu í góðum höndum. Ég er frekar á þeirri skoðun að það búi frekar lítið að baki þeim ákvörðunum sem teknar eru á Alþingi því að mínu mati er mannskapurinn sem þar situr, ekki samsettur úr vönduðustu eintökum landsins. Hvaða afbragðsfólk nennir að hanga á Alþingi, með skítalaun og hörmuleg hlunnindi. Gáfaða fólkið í þjóðfélaginu er í flestum tilfellum statt þar sem tekjur eru góðar og hlunnindi mikil. Það fyrsta sem þarf að gera til að koma ákvarðanatöku um landsins mál í góðan farveg er að stórauka aðdráttarafl þingstarfa svo gáfað og atorkusamt fólk fáist til að sitja á Alþingi. Stórhækka þarf laun þingmanna svo þessi árangur náist því það er nokkuð Ijóst að aðeins fást hálfdrættingar til að vinna á hálfdrættingslaunum. Ég vil nú kannski ekki alhæfa þetta alla leið því vissulega er gæðafólk að finna á Alþingi sem og á öðrum vinnustöðum, en það þarf hver staða að vera mönnuð með toppeintaki til þess að hægt sé að treysta á að ákvarðanirnar þar á bæ séu i lagi. Eiturlyfjafaraldurinn. Önnur þörf umræða er hvernig bregðast skuli við stóraukinni fíkniefnaneyslu í landinu. Það er nokkuð Ijóst að ekki er hægt að stöðva hinn stóraukna straum fíkniefna sem streymir inn i landið. Fyrir hverja sendingu sem lagt er hald á, sleppa 10 aðrar í gegn og þróunin í þessum efnum er að verða ansi ógnvænleg. Ofbeldi og glæpir stóraukast í samhengi við þennan stríða straum efna inn á markaðinn og er meðalaldur reglubundinna eiturlyfjaneytenda sífellt að lækka. Ég er með nokkuð skýra skoðun á því hvernig hægt sé að bregðast við þessarri þróun. Ríkið á að flytja inn eiturlyf. Þau lyf skulu vera vel unnin og vönduð, seld á sérstökum stöðum, til dæmis í ÁTVR á raunhæfu verði, þar sem tollur er settur á söluverð efnanna sem samt sem áður verða ódýrari en það sem gengur og gerist á götunni f dag. Með þessu móti er verið að koma með enn einn skattaliðinn í ríkiskassann, sem og að koma ansi mörgum þrjótum illa sem hafa sína framfærslu af sölu og innflutningi eiturlyfja. Stóri krókurinn við þessa tilhögun er að setja upp ákvæði þess eðlis að þeir sem nýta sér þessa þjónustu ríkisins eru í leiðinni að undanþiggja sig allri þeirri heilbrigðisþjónustu sem i boði er. Ef þú kýst að vera eiturlyfjaneytandi þá bjóðast þér ekki sömu hlunnindi og hinum, þú þarft að greiða fyrir allar spítalaheimsóknir og þú ert ekki tryggður fyrir neinum þeim skaða sem upp getur komið [ tengslum við neyslu þína. Ef þú kýst að neyta eiturlyfja þá ert þú einnig að kjósa að vera undanþeginn heilbrigöisþjónustu. Ef blóðsýni við læknisskoðun leiðir það í Ijós að þú hafir neytt einhverra efna sem skilgreind eru sem fíkniefni þá átt þú ekki rétt á neinni heilbrigðisaðstoð nema þú greiðir hana að fullu úr eigin vasa. Svo einfalt er það. Kerfi sem þetta kýs ég að kalla: sparnaður á réttum stöðum. Ég er með margar fleiri hugmyndir um patentlausnir á hinu og þessu. En plássið er búið í bili og þar við situr. Snorri Barón Jónsson Ég er bara týpískur meðaljón, veit lítið um margt og margt um lítið. Ég fylgist þó með fréttunum og er búinn að mynda mér skoðanir um flest það sem gengur á í þjóðfélaginu. Það sem hæst hefur borið að undanförnu hefur verið niðurskurðurinn í heilbrigðiskerfinu, þar sem verið er að segja upp endalausu magni af spítalastarfsmönnum og takmarka þá þjónustu sem þar er veitt, samt lækka skattarnir ekkert. Einnig leynir það sér ekki að þjóðin er að ná sögulegum sjokkstaðli hvað eiturlyfjaneyslu varðar. Fíkniefni flæða hér um hvern einasta hól og hverja einustu holu. Afleiðingarnar verða sífellt alvarlegri og neytendum fjölgar ört. Svo virðist sem enginn hafi lausnina á þessum málum, því þróast þetta alltaf lengra og lengra þar til glundroðinn einn situr eftir. í þessum pistli mínum kem ég með uppástungur að því hvernig ég sé þessi mál leysast. Fjárveitingar úr ríkiskassanum. Ef ég tæki upp á því að fá hjartaáfall þá þyrfti ég að tímasetja það sérstaklega svo ég gæti fengið aðhlynningu i tæka tíð. Bráðamóttakan hefur nefnilega verið lögð af að mestu leyti og ef ég fæ hjartaáfal! utan hefðbundins opnunartíma þá þarf ég að fara upp á slysódeildina í Fossvoginum. Þar fær maður saum og plástur ef einhver brýtur flösku á hausnum á manni á djamminu, en ég er ekki viss um að lausnirnar til að henda mér aftur af stað ef hjartað stoppar séu þar til staðar. Við búum í velmegunarþjóðfélagi en samt er verið að skera niður á þessum stað. Afhverju er ekki frekar slegið af kostnaði á öðrum sviðum? Til dæmis í fríkkunaraðgerðum á miðbænum, sem virðast engan enda ætla að taka. Ættu störf sem þessi ekki að vera í höndum vistmanna fangelsa, sem margir hverjir kvarta yfir skorti á afþreyingu og atvinnu. Ætti ekki að leyfa þeim að fést við þessar þrautir frekar en að vera með óhæfan bæjarverkamannaflokk á fullum launum í því að slugsa upp fjórum - fimm steyputyppum á dag. Er þingmennska eftirsóknarvert starf? Þjóöin kýs til starfa mennina sem ákveða hvernig skattfénu er varið. Ráðist er í gríðarlegar herferðir á kosningatímanum þar sem jakkafataklædd slísmenni reyna að vera trúverðug og traustvekjandi. Ég hef fylgst með bæjarstarfsmönnum við sína iðju að undanförnu og fihnst vinnubrögðin sem ég hef orðið uppvís að hlægileg. Einhver kynbrenglaður arkítekt var sennilegast á sínum tima fenginn til að koma með lausnina á því hvernig hægt væri að fríkka miðbæinn og til féll hugmynd um að grýta steyputyppum sitthvoru megin é Laugavegin og öðrum nærliggjandi götum, með nokkurra metra millibili. Þessi steyputyppi hafa reynst mörgum bölvun því þau eru þeim eiginleikum gædd að erfitt er að sjá þau þegar bakkað er bifreiðum. Fyrir vikið er sífellt verið að aka þessa leiðindaskúlptúra niður og fellur til fullt starf hjá heilum vinnuflokki við það eitt að láta typpin ná fullri reisn eftir að ólánsamir ökumenn hafa bakkað þau niður. Verkskipulagið á þeim vinnuflokk sem sér um að lækna typpin, er mjög sérstakt. Flokkurinn tekur sér góðan tlma í að reisa þau viö og eru gjarnan sjö til átta manns í því verki. Einn vinnur vinnuna og restin fylgist með. Þetta greiðum við með skattpeningunum okkar og fyrir vikið er minni aur til í kassanum til að aðstoða þá sem hjartveikir eru. Það er engin hæfa í þessu!

x

Orðlaus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.