Orðlaus


Orðlaus - 01.02.2004, Síða 24

Orðlaus - 01.02.2004, Síða 24
ELDHUS BRJALÆÐI Eldhúsiö er mest spennandi svæðið á heimilinu af því að það er í stöðugri þróun... Ásjóna eldhússins er sífellt að breytast með nýrri tækni og nýju hugviti og er það til þess ætlað að gera alla okkar vinnu auðveldari og fljótlegri, svo ekki sé talað um öryggi og endingu. Þeir segja að augun séu spegill sálarinnar, og að minu mati er eldhúsið „spegill" heimilisins - segir okkur mikið um hvernig við erum og hvernig smekk við höfum. Það er líka alveg deginum Ijósara að þetta er það svæði sem krefst einnar mestrar skipulagningar innan veggja heimilisins og þegar verið er að hanna eldhús eru nokkrir faktorar sem við þurfum að hafa á kristal tæru til þess að fúnksjónin gangi upp. Það er þessi þrjú aðal-element: vaskurinn - eldavél- ísskápurinn ,sem þurfa að mynda svokallaðan vinnuþríhyrning svo að allt svæðið virki eins og skyldi. Ef þú ert að spara pening og hefur ágætis hugmynd um hvernig þú vilt hafa eldhúsið þitt (jafnvel búin að ráðfæra þig við hönnuð sem er ekki vitlaus hugmynd þar sem að þetta er dýr fjárfesting) þá mælir ekkert á móti því að þú skellir þér í IKEA og kaupir innvolsið í eldhúsið þar. Þú þarft ekkert endilega að nota hurðir þaðan, heldur geturðu látið búa til fyrir þig hurðar hvort sem þú lætur sprautulakka fyrir þig MDF eða spónleggja ef þú vilt hafa við á hurðunum. I litlum eldhúsum er sniðugt að hafa glerhurðar þar sem það léttir mikið á. Svo er bara að láta hugmyndaflugið ráða og ekki gera einsog allir hinir!!! allan peninginn í poka sá ræninginn flösku af viskí sem hann langaði í og heimtaði að fá hana líka. Afgreiðslu- maðurinn neitaði hins vegar að láta flöskuna ofan í þar sem hann trúði ekki að ræninginn væri kominn með aldur til að drekka. Ræninginn sagðist vera orðinn nógu gamall en afgreiðslumaðurinn sagðist ekki trúa honum. Hann lét afgreiðslumanninn þá hafa ökuskýrteinið sitt því til sönnunar og fékk í staðin flöskuna. Ræninginn hljóp i burtu og afgreiðslumaðurinn hringdi strax í lögregluna og gat að sjálfsögðu gefið upp nafnið hans og heimilisfang og hann var handtekinn stuttu seinna. Hversu heimskur getur einn maður verið? Kona nokkur lenti í því óláni að bílnum hennar var stolið. Þegar lögreglan kom á staðinn sagði hún lögreglumönnunum að það væri bílasími í bílnum. Lögreglan ákvað þá að hringja í símann og sagði að bílinn hefði verið auglýstur til sölu í blaði og að hann vildi hitta hann og kaupa bílinn. Þeir ákváðu því að hittast og þegar þjófurinn mætti var hann auðvitað handtekinn. Christopher Jansen frá Michigan var ákærður fyrir að vera með dóp á sér og ákvað að verja sjálfan sig í rétti. Hann hélt því fram við dómarann að það hefði verið leitað á honum án heimildar. Saksóknarinn sagði að hann hefði verið með bungu á jakkanum sinum sem gæti hafa verið byssa. Þá sagði Christopher að það væri algjört bull og að hann væri í sama jakkanum og gæti sko sýnt þeim að það hefði ekki verið nein bunga. Hann náði því í jakkann en í honum var poki af kókaíni. Dómarinn hló svo mikið af heimsku mannsins að hann varð að taka nokkurra mínútna hlé til að ná andanum. Maður í Charlotte keypti sér mjög dýra og sjaldgæfa vindla og ákvað að tryggja þá fyrir eldi og öðrum hlutum. Eftir rúmlega mánuð var maðurinn búinn að reykja alla vindlana án þess að hafa einu sinni greitt fyrstu greiðsluna á tryggingunni. Hann ákvað að leggja fram kröfu til tryggingarfyritækisins þar sem hann sagði að vindlanir hefðu eyðilagst í "mörgum litum brunum". Tryggingarfyritækið neitaði að borga á þeim forsendum að hann hefði reykt alla vindlana sjálfur. Maðurinn kærði þá tryggingarfyrirtækið og vann. Þegar dómarinn var að kveða upp dóminn sagði hann að honum fyndist krafan frekar skrýtin en þar sem maðurinn hefði tryggt vindlana fyririr eldi, en ekki skilgreint hverskonar eldi yrði tryggingarfélagið að greiða honum. í staðinn fyrir að standa í löngum réttarhöldum ákvað tryggingarfyrirtækið þá að greiða honum 15 þúsund dollara. Eftir að maðurinn var búinn að leysa út ávísunina lét tryggingarfyrirtækið handtaka hann fyrir 24 íkveikjur. Með hans eigin tryggingarkröfu og réttarhöldunum var hann fundinn sekur um að kveikja í tryggðum hlutum til að græða pening frá tryggingarfyrirækinu. Hann fékk sekt upp á 24 þúsund dollara og árs fangelsi. Leggðu mesta kostnaðinn í borðplötuna því það mæðir mest á henni. Granít er alltaf flott, og gler. Þú gætir líka látið steypa fyrir þig plötuna, athugaðu með BM Vallá, þá er það corian efnið sem er ótrúlega flott en það er frekar hátt á verðskalanum. Gler: Gler er auðvitað vandmeðfarið efni og mikið púss fylgir því að halda því við. Það kemur vel út að blanda glerinu með viðnum og þá er til dæmis hægt að hafa efri skápana úr gleri og nota þá jafnvel reyklitað eða litað gler. Siepptu því að flísaleggja uppá vegginn ... settu frekar gler, eða við, kannski stóra speglaflís eða jafnvel bara plexigler, það er ódýr lausn og til í mörgum litum. Listinn og ráðin eru ótæmandi, en umfram allt, muna að vera búinn að skipuleggja allt vel áður en byrjað er á framkvæmdum. Það er erfitt og kostnaðarsamt að snúa til baka þegar það er búið að breyta raflögnum og pípulögnum ... Lýsing er mikilvæg í eldhúsi og þar er náttúrulega birtan sú ákjósanlegasta. Reyndu að gera sem mest úr birtunni sem þú færð í gegnum gluggann. Alls ekki mála í kringum gluggann með dökkum lit því hann dregur alla birtuna í sig. Vinnulýsingin er ekki síður mikilvæg og það er best að leita ráða þegar verið er að fjárfesta í Ijósabúnaði, starfsmenn Ijósabúðanna ættu að geta hjálpað þér. Skrautlýsingin er svo punkturinn yfir i-ið - flott loftljós eða jafnvel Ijósakróna getur skipt sköpum. Gangi ykkur vel!! Hanna, innanhússarkitekt. Reyndu að sameina eldhúsborðið, þ.e.a.s. þar sem matast er og innréttinguna sjálfa, sérstaklega ef þú ert með lítið pláss eða enga borðstofu. Efri skápar: Þú þarft ekkert endilega að setja efri skápa en auðvitað fer það eftir geymsluplássi sem þú hefur. Ef þú setur upp efri skápa þá þurfa þeir alls ekkert að vera úr sama efni og þeir neðri. Ef þú til dæmis ert með lítið eldhús þá er hentugara að opna efri skápana upp á við. Litir: Sprautulakkað háglans svart eða hvítt, eða þá að vera aðeins meira öðruvísi og prófa flottan lit eins rauðan, orange eða gráan til dæmis í háglans. Ef þú ákveður að hafa lit passaðu þig samt á að ofgera honum ekki. Það getur þú gert með því að nota hann með einhverjum öðrum. Ef þú ert ekki með efri skápa hvernig væri þá að veggfóðra með einhverju flottu veggfóðri, kíktu á www.designfordelight.comz, eða setja grafík á vegginn, einhvern flottan texta, myndir eða jafnvel að mála sitt eigið listaverk og setja það á blindramma. Viðartegund: Ef þú vilt hafa við þá er alltaf klassískt að nota eik, eins er hnota mjög fallegur viður og palesander og svo er zebrano mjög flottur viður. Höldur: Engar höldur... fallegast og stílhreinast er að hafa grip á hurðunum eða smellubúnað sem þú ýtir á og hurðin opnast, það fæst til dæmis í Ikea. Svo geturðu líka látið fræsa höldur úr hurðunum.

x

Orðlaus

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.