Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 29

Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 29
Hvað á að sjá í París? Þinir uppáhalds staðir?' Það eru mörg skemmtileg hverfi sem gaman er að skoða eins og Mont Marte og Smare. Þar er svona ekta Parísar stemning, littlar götur og markaðir. Þar sem ég bjó í 14. hverfi er ein göngugata þar sem hægt er að fá allt, alla osta, ferskan fisk, ótrúlega góð álegg og þar er líka bakarí á hverju horni og frakkarnir eru þarna labbandi um með baguette undir hendinni þannig að þú getur ímyndað þér stemninguna. Þetta var líka heimilislegt því þaö þekkja allir alla úr hverfinu þannig að þetta er svona eins og lítið hverfi inni i stórborginni. Það þarf líka að sjá alla þessa aðal staði eins og Eiffel turninn, Notredame og Louvre. ' Hvað meinarðu? Sko, skrifstofan segir manni að fara á sýningu í öðrum enda bæjarins, svo til baka á skrifstofuna, í mátun á einum stað og make up á öðrum o.s.frv.. Þegar þú síöan loksins kemur af einni sýningunni yfir á aðra með hár og make up þá þarf að rífa það allt af og gera nýtt!!! Þannig að það er ekki séns að maður nái að gera þetta allt. Þannig að það endar alltaf á því að þú þarft að beila á fullt af stöðum sem þér er sagt að fara á... mi! A Æ ' Versta verkefnið? Ég var að vinna á tvítugsafmælinu mínu alveg hrikalegt verkefni. Það var fyrir kóreskan bækling og venjulega er nú bara einn stlllist en þær voru fjórar og vildu allar sitthvoran hlutinn sem gerði það að verkum að við skiptum um hár og make up ég veit ekki hvað oft og þetta | tók endalaust langan tíma. Stærsta verkefni? ' Eitthvað editorial fyrir Elle og Cosmopolitan. Ég var llka að gera sýningu í London sem var mjög stór. En það er ekki eitthvað eitt sem stendur upp úr fyrir mér. Gerir þú Catwalk? Nei, ég geri eiginlega meira af myndum. Ég prófaði að taka að mér nokkrar sýningar í London og aðeins í París. Síðan þá hef ég einhvern veginn haldið mig við Ijósmyndir. 'Versta myndartakan? Hún var örugglega hérna heima. Þetta var auglýsing fyrir Muscle and Fittness og ég var átján ára og ógeðslega horuö. Á myndinni voru ég og fjórar "trukkalessur", ef ég má segja það, ógeöslega brúnar og massaðar eins og karlmenn. Síðan var ég við hliðin á þeim ógeðslega mjó og hvít í bikiníi gert úr pínulitlum speglum með g-streng úr keðju. Það endaði með því að ég hringdi í Eskimo og spurði hvað væri að gerast. Þeir könnuðust ekkert við þetta og héldu að þetta væri auglýsing fyrir föt i frá Svo. Þannig það endaði með því að ég fór! 'Stærsta verkefni? Ég gerði einhverja sjónvarpsauglýsingu í Milano sem varð víst rosalega stór úti. Fólk kannaðist við mig eftir það. Ég hef gert litlar sýningar fyrir Dolce and Gabbana. Ég gerði einu sinni sýningu fyrir þá í Þýskalandi og þar var BARA verið að sýna allt það dýrasta úr línunni þeirra þetta vor. Þannig að allir voru með sér lífvörð til þess að passa að við myndum ekki stela skartgripunum eða feldunum. Þetta var mjög spes! Við máttum varla snerta þetta, lífverðirnir tóku á móti okkur um leið og við komum af sviðinu og tóku af okkur fötin og skartið. Áttu aðdáendur? Já á Islandi en ekki úti. Það eru oftast einhverjir 12 ára strákar sem eru nýbúnir að sjá myndir | af manni að biðja um eiginhandaáritanir!!! Ég lenti reyndar í því úti að það kom maður upp j að mér og bað um að fá að sjá skóna mina þvi honum fannst þeir svo flottir. Ég tók af mér skóinn og maðurinn byrjaði að þefa af honum og kyssa hann. Svo rauk hann burt og ég stóð eftir á einum skó. Það var reyndar fyndið því þegar ég sagði þeim frá þessu á skrifstofunni þá voru þær alveg "Ohhh, er hann kominn aftur!" Þá var hann víst búinn að taka skó af . helling af stelpum þarna. wmfwar' «0 Er gaman að vera á pallinum? Það er alveg gaman, en ekki til lengdar því þetta er svo rosalega mikil vinna. Það eru margar sýningar á dag því þetta þjappast allt saman f þessa einu sýningarviku. Þú þarft að hlaupa á milli og kemst ekki á nærrum því alla staðina sem þú ert beðin um að fara á. Hvernig gengur þér úti í París? Bara flnt. Ég hef ekki yfir neinu að kvarta því ég er búin að vera að fá ágætis verkefni. Það hefur ekki veriö það mikið af verkefnum þannig að ég næ að gera það sem mig langar til að gera. En samt verið nóg til að ég geti lifað þarna úti. r Skemmtilegt starf? Já, en þaö getur llka verið ansi þreytandi aðl vinna langt fram á nætur eins og þegar maður fer f ferðir. Þær geta tekið fimm daga og þá er unnið frá klukkan fjögur á morgnanna til miðnættis á hverjum degi. fFyrir þá sem eru að fara til Milano hverju myndir' þú mæla með? Ég myndi mæla með Duamo dómkirkjunni hún er rosalega falleg. Miðbærinn er líka mjög skemmtilegur og það er gaman að labba þar um. Það er Ifka ótrúlega auðvelt að taka lestina út úr Milano og fara til dæmis að Lake Como, sem er vatn rétt fyrir utan borgina og eyða deginum þar. Ef þú ætlar að fara út að borða myndi ég mæla með Luisiana þó hann sé ekki beint ítalskur þvf þetta er æðislegur staður þrátt fyrir það. Ef ég væri að fara út að djamma myndi ég fara á Casablanca til að byrja með og skella mér sföan á Hollywood sem er beint á móti Ltil að dansa. f Hjá hvaða skrifstofu ertu? ( Milano er ég hjá Paulot May en f London er ég hjá Models One. Það eru alveg stór nöfn hjá þeim en ég er voða lítið inni í þessu. Ég reyni að halda mig fyrir utan allt þetta glys Iff. Það getur verið svo mikið feik í kringum þetta. 'Því meira sem þú sýnir því meiri peningar?’ Já, það er það ... eða það á allaveganna að vera þannig. En það er svo oft sem að Ijósmyndarar eru alveg; "geturðu nokkuð sýnt aðeins meira ..." Þeir vita að maður fær ekki meira borgað heldur eru bara að stelast. Sumir eru mjög kurteisir en aðrir geta verið kræfir á þetta og reyna og reyna. Þú verður bara að standa föst á þínu og segja nei, sem getur oft verið mjög erfitt. Ég get ímyndað mér greyið stelpurnar sem eru kannski þrettán ára að byrja í þessu og þora ekki að segja nei því þær halda að þær verði að gera þetta því annars verði skrifstofan reið. En það er bara ekki þannig! Ef þú vilt ekki gera eitthvað þá gerirðu þaö ekki, það er ekkert flóknara en það. Ljósmyndarar hafa oft sagt við mig "Er ekki f lagi aö þú sért alsber en það sést bara ógeðslega lítið?" Nei, því hver veit? Þeir segja líka alltaf að það sé allt í lagi því þú fáir að yfirfara allar myndir áður en þær birtast. iGlætan! Þú færð aldrei að sjá neitt af þessu., Hversu langt myndir þú ganga varðandi nekt? Ég hef einu sinni verið nakin á mynd en þá sást ekki neitt því ég var í sturtu og það var svo mikil gufa. Það var kona sem tók myndirnar og það fékk enginn annar að vera viðstaddur. Er brjálað að gera hjá þér úti? Já, það var það allaveganna en ég er náttúrulega komin heim núna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.