Orðlaus - 01.02.2004, Side 40

Orðlaus - 01.02.2004, Side 40
4 Kristín Bergsdóttir 20 ára Hvaða flokkar eru í ríkistjórn? Sjálfstæðisflokkurin, Vinstri grænir, Framsókn, nýji hæqri flokkurinn sem ég man ekki hvað neitir. Hver er ríkistjóri í Kalíforniu? Ég fylgist bara alis ekki með bandarískum stjórnmálum. Hver verður næsti forsætiráðherra? Hvað heitir hann....ég veit það ekki. Hver setti fram afstæðiskenninguna? Albert Einstein. IVIeð hvaða liði spilar David Becham? Fótbolti hehe...biddu það var verið að selja hann til Spánar, hann spilar með einhverju spænsku líði. Hver kom á undan, hænan eða eggið? Það er nú spurning, það er ekkert rétt svar. ÓlafurThorarensen 27 ára 4 * * n Hvaða flokkar eru í ríkisstjórn? Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn. Hver er ríkistjórin í Kalíforníu? Arnold Schwarzenegger. Hver verður næsti forsætisráðherra íslands? Æi hvað heitir hann ... hérna ... þarna ... ég veit alveg hvað hann heitir. Gaurinn þarna í Framsóknarflokknum, já Halldór Ásgrímsson. Hver setti fram afstæðiskenninguna? Jesús maður, bara Freud eða eitthvað. Víða um heim eru börn, stelpur og strákar misnotuð í stríðsátökum þar sem mörg þeirra láta lífi fullorðinna hermanna, sem mörg hver eru of ung til þess að skilja. Nú eru börn allt niður í tíu ára að auki oft kynferðislega misnotaðar af eldri hermönnum. Þetta er hræðilegt ástand sem hefur of s að gerast í stríðum. „Einn daginn vorum við og vinir mínir þvingaðir til að drepa fjölskyldu. Ég ákvað að flýja og hljóp inn í skóg... en nokkrir hermenn fundu mig og tóku mig aftur í herbúðirnar. Þeir fangelsuðu >rðu mig daglega... (dag er ég hræddur. ikki að lesa, ég veit ekki hvar fjölskylda mín er. Ég á enga framtíð. Á næturnar get ég ekki sofnað, ég hugsa bara um allt það hræðilega sem ég hef séð og gert sem hermaður." Kalami, 15 ára frá Kongo sem barðist í hernum frá níu ára aldri. Mennskar jarðsprengjuleitarvélar Að vísu taka ekki öll börnin þátt í beinum átökum en líf þeirra snýst engu að síður um herinn. Þau þurfa að elda, þrífa, safna eldiviði og vera sendlar eða njósnarar. Önnur vinna sem mennskar jarðsprengjuleitarvélar og taka þátt í sjálfsmorðsárásum. Þau vinna langa vinnudaga, fá ekki að sækja skóla eða hitta fjölskyldu sína, þau sem einhverja eiga. Skæruliðar og skipulagðar hersveitir misnota sér örbirgð þessara barna sem ganga í herinn í von um mat og húsaskjól. Human Rights Watch tók viðtal við nokkra barnahermenn sem sögðu að þeim hefði nánast daglega verið skipað að horfa á fanga sem var misþyrmt og þeir teknir af lífi. Sum barnanna voru látin skjóta óvopnaða fanga sem hluta af æfingum eða jafnvel önnur börn sem þrátt fyrir hættuna reyndu að flýja þar sem þetta líf var þeim gjörsamlega óbaerilegt. Með hvaða liði spilar David Becham? Real Madrid maður. Hver kom á undan hænan eða eggið? Eggið. Linda Gunnarsdóttir 24 ára. Hvaða flokkar eru í ríkistjórn? Ég hef ekki hugmynd um það. Hver er ríkistjóri í Kalíforniu? Ég veit það ekki, ekki spurja mig svona spurninga. Hver verður næsti forsætiráðherra? Þögn....ég er ekki alveg með það á hreinu. Hver setti fram afstæðiskenninguna? Ég veit það ekki. Með hvaða liði spilar David Becham? Hlær...er hann ekki með Manchester. Hver kom á undan, hænan eða eggið? Hænan. Börn eru víða um heim notuð sem hermenn, bæði í nýlegum og langvinnum deilum. Samkvæmt tölum frá Human Rights Watch eru um 300 þúsund börn notuö sem hermenn í stjórnarherjum, andspyrnuhreyfingum og skæruliðasveitum um allan heim. Ekkert land í heiminum hefur þó jafn marga barnahermenn eins og Burma, eða um sjötíu þúsund börn undir átján ára aldri. í Kólumbíu berjast meira en ellefu þúsund börn í vopnuðum hernaðarátökum og i Sierra Leone var þúsundum barna rænt af andspyrnuhreyfingum í landinu. Má hér einnig nefna Uganda, Angóla, Burundi, Kongó , Sri Lanka og mörg fleiri ríki. Sum barnanna eiga enga að og hafa verið yfirgefin af foreldrum sínum sökum fátæktar eða veikinda, önnur hafa yfirgefið heimili sín af fúsum og frjálsum vilja og ganga í herinn til þess að fá mat og húsaskjól á meðan enn önnur eru þarna til þess að framfleyta fjölskyldu sinni. Mörg þeirra eru látin berjast í stríðsátökum þvert gegn vilja sínum eftir að hafa hreinlega verið rænt af öðrum hermönnum sem beita hótunum og kúgun til að þröngva þeim í herinn. Börnin eru send í æfingabúðir þar sem þau læra að meðhöndla vopn og er misþyrmt eða þau jafnvel drepin ef þau reyna að flýja. Börnin eru eftirsóttir hermenn þar sem þau eru ódýr í rekstri, borða lítið, auðvelt er að hafa áhrif á þau og hentugt að nota þau til að kanna óvinasvæðin áður en fullorðnu hermennirnir láta til skarar skríða, vegna þess að óvinirnir taka ekki eins mikið eftir þeim. Ef þau verða hrædd fyrir átökin eru þeim oft gefin eiturlyf til þess að efla hugrekkið og þau svo látin drepa, brenna bæi og fremja annars konar mannréttindabrot gegn almennum borgurum. „Börn eiga rétt til þess að fá að lifa lífinu, vera frjáls undan mismunun og misþyrmingu, vera frjáls undan herkvaðningu og að vera vernduð í stríðsátökum og hafa rétt til menntunar, heilsugæslu og fullnægjandi lífsskilyrða. Það eru þeirra mannréttindi að fá að lifa við öryggi og að vera ekki hneppt í þrældóm, sæta pyntingum eða annarri ómanneskjulegri meðferð." „Börnin eru eftirsóttir hermenn þar sem þau eru ódýr í rekstri, borða lítið, auðvelt er að hafa áhrif á þau og hentugt að nota þau til að kanna óvinasvæðin áður en fullorðnu hermennirnir láta til skarar skríða ... " Skelkaðir fangar með drauma og vonir Lífernið hefur gífurleg áhrif á heilsu barnanna, þroska og tilfinningar og brýtur þau niður andlega. Þau verða fljótlega háð eldri hermönnunum þar sem þeir eru eina fullorðna fyrirmyndin sem þau hafa. Sumar stúlknanna eru einnig þvingaðar til að verða „eiginkonur" hermannanna sem nota þær síðan sem kynlífsþræla milli þess sem þær þurfa að berjast í hörðum átökum. Þau börn sem berjast á vígvellinum bera þess gífurleg ör þar sem ofbeldið, morðin og annað eru þættir sem börn eiga ekki að vera vitni að. Þó svo að áverkarnir séu ekki alltaf líkamlegir eru þeir andlegir og bera börnin merki þess um alla ævi og að lokum verða þau uppfull af svo gífurlegu hatri og hefnd að erfitt er að ímynda sér að þau hafi nokkurn tímann verið venjuleg börn. Þau eru ekki börn lengur, það er komið fram við þau eins og fullorðið fólk, þau eru niðurlægð, pyntuð, kúguð og barin og því fara þau að haga sér í samræmi við það. Mörg þeirra leiðast síöan út í eiturlyfjaneyslu og andfélagslega hegðun þvl að þeim reynist erfitt að falla inn í samfélagið að nýju. Það nær ekkert barn að jafna sig eftir slíka lífsreynslu á mótunarárum sfnum þar sem sjálfsálit þeirra og virðing fyrir sjálfum sér og öðrum er svo harkalega niðurbrotin. „Ég hef séð hendur skornar af fólki, tíu ára stúlku nauðgað og marga menn og konur brennd lifandi ... Ég grét svo oft í hjarta mínu því ég þorði ekki að gráta upphátt." 14 ára stúlka frá Sierra Leone Er þetta einhver barnaleikur? Nú eru vopnin orðin léttari og þróaðri þannig að það er auðveldara fyrir börnin að meðhöndla þau. (Börn allt niður í tíu ára gömul eru þjálfuð til að nota vopn og sprengjur.) Þessi börn geta lítið annað

x

Orðlaus

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.