Orðlaus - 01.02.2004, Page 43

Orðlaus - 01.02.2004, Page 43
hávaða, en í dag sérðu Rachel í Friends í MC5 bol sem fæst í Top Shop. John Phillips í Mama's and the Papa's hafði þá hugmynd, eftir að hafa séð mannfögnuðina á tónleikum almenningsgarða San Francisco, að halda ókeypis tónleika þar sem fólk gæti notið góðrar tónlistar í góðum félagsskap. Þetta varð að Monterey tónlistarhátíðinni, Fyrstu útihátíð sinnar tegundar. Hún tókst vonum framar og gerði tvo dauðadæmda tónlistarmenn að stórstjörnum. Janis Joplin og Jimi Hendrix. Einnig komu þar fram meðal annara The Who, Otis Redding, Grateful Dead og indverski sítarsnillingurinn Ravi Shankar. Aðrar álíka hátíðir voru haldnar í kjölfarið, og í ágúst 1969 var haldin sú stærsta. Fjórir félagar, Michael Lang, John Roberts, Joel Rosenman og Artie Kornfeld ákváðu að halda litla tónlistarhátíð í uppsveitum New York fylkis. Þeir enduðu á landi mjólkurbóndans Max Yasgur I Bethel, NY, og hófust handa við mesta tónlistarviðburð áratugarins. Fréttirnar um að tónleikahaldararnir væru hættir að rukka inn á svæðið bárust eins og eldur í sinu um nágrannafylkin og skyndilega var umferðarhnúturinn orðinn margra kílómetra langur. Ríkisþjóðvegur New York var lokaður og strandaðir ferðamenn voru ferjaðir burt [ þyrlum. Tónleikasvæðið var yfirlýst "Disaster area", heiti sem vanalega er notað um jarðskjálfta- eða flóðasvæði. En það þýddi að herinn gat byrjað að koma vistum inná svæðið til fólksins sem hýrðist fyrir framan sviðið og komst ekki fet. Skipuleggjendur Woodstock hátíðarinnar höfðu búist við rúmum 150.000 manns á hátíðina. Lokatölur gesta var tæp hálf milljón, og rúm milljón manna þurftu frá að hverfa. Þrátt fyrir vosbúðina sem fylgdi því að vera á kafi í drullu í hellidembu í þrjá daga þótti stemningin frábær og einhverjar allra bestu hljómsveitir allra tíma komu þar fram: Creedence Clearwater Revival, Canned Heat, Santana, Joe Cocker, Jefferson Airplane, Jimi Hendrix, Ten Years After og Joan Baez til að nefna aðeins örfáa. Þeir sem lögðu til peninga fyrir hátíðina fóru á hausinn, þrír létu Iffið (en eitt barn fæddist) og baksviðs var svo mikið af sýru að ekki var hægt að fá samloku án þess að í henni væri sýra. Engu að síður var þetta alger hápunktur hippaáranna og á meðan menn lentu á tunglinu var fólk á jörðu niðri að springa af manngæsku og voru að láta drauminn rætast, að lifa í fullkomnu bróðerni og kærleik. Svo breyttist draumurinn í martröð. Aðgerðir gegn mótmælendum Vfetnam stríðsins urðu sffellt ofbeldisfyllri þangaðtil Þjóðarvarðliðar hófu skothríð á nemendur Kent háskólans í Ohio sem voru með friðsöm mótmæli. Fjórir unglingar létu lífið. Allt virtist vera að fara úr böndunum. Kynþáttaóeyrðir, uppþot og ofbeldi á götum úti. Nixon forseti jók stríðsbrölt Bandaríkjamanna í Víetnam með því a ráðast inn f Kambódíu, friðsælt nágrannaríki Víetnam. Fólk horfði agndofa á Bandaríska hermenn skjóta börn og gamalmenni í beinni útsendingu frá Vfetnam. Martin Luther King og Bobby Kennedy voru myrtir. Hippinn Charlie Manson skipaði fylgjendum sínum til að slátra leikkonunni Sharon Tate og vinum hennar. Tate var komin átta mánuði á leið. Tónlistarfólk var farið að skipta út sýrunni fyrir herófn, svo tóku stjörnurnar að deyja. Brian Jones úr Rolling Stones, Jimi Hendrix, "Mama" Cass Elliott, Janis Joplin, Jim Morrison. Skyndilega var fólk að átta sig á því að þessi lífstíll var ekki að virka. Bróðernið var að dvfna á meðan ungt fólk var að deyja, ekki bara í SA-Asíu, heldur einnig heimavið. Þeir sem voru einna ötulastir f mótmælahreyfingunni, eins og Abbie Hoffman voru flúnir neðanjarðar og það sem voru áður friðsöm mótmæli voru núna ekkert nema ofbeldisfull uppþot. Fólk var að fá leið á þessu. Endalok blómaára hippana voru í Altamont, niðurnýddri kappakstursbraut. Ókeypis tónleikar The Rolling Stones enduðu með ósköpum þegar Vítisenglar sem áttu að sjá um öryggisgæslu byrjuðu að lúskra á skelkuðum blómabörnum. Áður en tónleikarnir voru úti lá ungur maður í valnum, stunginn og barinn til dauða af Vítisenglunum, sem fengu öryggisgæsluna borgaða í bjór. Þau blómabörn sem enn héldu í drauminn hófu að flytja upp til sveita og hófu samyrkjubúskap. Allur glundroðinn og ofbeldið vakti þrá hjá fólki að hverfa til auðveldari tíma. Tónlistin í lok áratugarins var mjúk og tilfinninganæm. Crosby, Stills & Nash spiluðu angurvært kassagítarpopp og country-rokk varð vinsælt. ( upphafi nýs áratugar var leiðin greið fyrir country/rólegheitalið eins og The Eagles og Joni Mitchell. Hvft pólíester jakkaföt diskótfmans voru aðeins nokkur ár í burtu en þangað til var nóg af góðri tónlist og sérstaklega saurugu rokk-líferni, sem virtist ná nýjum hæðum með hljómsveitum eins og Led Zeppelin, Black Sabbath og Kiss. Björn Þór Björnsson Athyglisverðar plötur tímabilsins: The Rolling Stones - "Their Satanic Majesties Request" The Doors - "Waiting for the sun" Jimi Hendrix - "Electric Ladyland" Big Brother and the Holding Company - "Cheap Thrills" Crosby, Stills & Nash - "Crosby, Stills & Nash" „Ég held ég hafi einhvern tímann sagst getsr stundað kynlíf í átta tíma samfleytt. Það sem ég þó gleymdi að minnast á var að innifalið í þessu voru fjórir tímar af suði og matur og bíóferð í lokin." „Að koma aftur og gera eitthvað kynæsandi (eins og myndataka fyrir FHM), það lét mér líða svo vel eftir að hafa sprengt á mér klofið." ■Jenny McCarthy (um óléttuna „Karlmenn munu gorta sig af stærðinni alveg þangað til að stelpa sér það í eigin mynd. Þá heldur hann kjafti. En Auðvitað, er ég undantekningin sem sannar regluna... „Ég er kynlífsmaskína í augnablikinu. Ég er á mörkum þess að fá það hverja einustu sekúndu af deginum. Jada elskar það!" Will Smith Coolio *

x

Orðlaus

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.