Orðlaus - 01.02.2004, Side 49
Tískan
Þetta er það sem við viljum leggja aðaláherslu á, en þegar tekur að vora verður litadýrðin
svo svakaleg að svo lengi sem maður klæðist einhverjum áberandi lit, líður okkur vel í
hjartanu.
Hvað varðar flíkurnar sjálfar, ef við byrjum á yfirhöfnum, þá er málið að eiga einn "cool"
gallajakka, og svo eru rykfrakkarnir (Kristján heiti ég Ólafsson) illa svalir. Allt með kvartermum
er líka að virka vel, hvort sem það er stuttur jakki eða kápa. Minipilsin eru enn á góðu róli,
en hnésíð þröng pils eru að banka fast hjá okkur. Gallabuxur virðast upp úr þessu aldrei
ætla að fara úr tísku, en hvað varðar skálmarnar á þeim er heppilegra að þær séu allaveganna
beinar niður en best er ef þær eru alveg níðþröngar niður. Gallabuxur sem eru "baggy" eru
mjög svalar að okkar mati og mjög flott er að sameina þær við háa hæla og þröngan bol.
Ráðlagt er að fjárfesta í bolum [ tveim til þrem nýjum litum ( sjá að ofan).
Það sem toppar gott dress eru oft fylgihlutir og það sem okkur finnst vera móðins núna eru
klútar, nælur, munstraðar sokkabuxur, hattar og svo virðist Mikki Mús vera ágætis fylgihlutur,
allaveganna á bolum.
Þetta er það sem okkur fannst standa upp úr þegar við settumst yfir blöðin og vorum að
spá í komandi sumri. Það sem þarf að taka til greina er: Hvað er í tískublöðunum, hvað
langar OKKUR að klæðast í sumar og síðast en alls ekki síst, hverju klæðast stjörnurnar.
Maya & Ása
STÆRÐ
Það er mjög mikilvægt að þú vitir stærðina hennar. Ef af
einhverjum ástæðum þú ert ekki viss um hana kauptu þá
frekar "one size fits all" nærbuxur heldur en eitthvað annað.
Hlustið á mig því þið viljið EKKI lenda í því að koma heim
með nærbuxur númer 16 og hún er í stærð 10. Hún á eftir
að verða virkilega fúl þó hún láti það kannski ekki í Ijós.
Það er því miður ekki til "one size fits all" í brjóstarhöldurum
þannig að veriði með hana á hreinu.
LITUR
Þó að rauður geri þig graðan þá líður stelpum eins og fávitum
í þeim. Nema hún eigi nattúrulega þannig fyrir og þá þarftu
ekki að gefa henni þau. Ef þú ert alveg ákveðinn I því að
gefa henni rauð nærföt hafðu þau þá frekar bleik eða
vlnrauð. Veldu liti sem fara húðlit hennar vel. Veldu pastel
liti ef hún er föl en skæra liti ef hún er brún. Með sokkabönd,
reyndu þá að velja þau I stíl við nærfötin því annars mun
hún ekki nota þau.
AFHENDINGIN
Þú ert búinn að velja eins og sérfræðingur þannig að ekki klúðra
því með því að gefa henni nærfötin á röngum tíma. Stelpur eru
algjörir sökkerar fyrir smá rómantík þannig að kauptu kampavín
og vertu viss um að þið veröið bara tvö - ekki fyrir framan pabba,
mömmu eða einhvern annan. Þú skalt líka geyma kvittunina ef
hún skyldi vilja skipta þeim.
V______________________________________________
- m s*