Orðlaus - 01.02.2004, Síða 50
Daddi Diskó
Ég þoli ekki konur sem ekki kunna að keyra.
Upp á síðkastið hefur færðin þyngst til muna og þá sá ég svo augljóslega hversu lélegir bílstjórar flestar konur
eru. Vá! Maður þarf að hugsa sig um tvisvar áður en að fjölskyldubllnum er hætt út í umferðina. Það væri að
bakka í berjafullan lækinn að telja upp þær uppákomur sem ég hef máli mínu til stuðnings en ætla að grípa
nokkur nýleg dæmi úr eigin reynsluheimi.
Einn morguninn þegar ég var á hægri ferð norður Bergstaðastrætið mætti ég einni. Hummm, sko ég sá hana
koma og var hún ansi miðlæg á þröngri götunni. Lét svolftið eins og hún væri með afsal af öllum götum í
Þingholtunum, ætti þær skuldlaust. Þetta var svona týpisk tæplega þrítug Polo gæra, basik bíll, sjálfskiptur á
rekstrarleigu, sem hafði eytt meiri tíma í að túpera hárið en að opna augun þennan morguninn. Með því að
fara alveg út í kantinn mín megin skaust hún framhjá án þess að taka hliðina úr bílnum sínum.
j haust var ég á svipuðum stað. Ég hafði stöðvað bílinn til að ræða við félaga minn þegar miðaldra kona lagði
yfirþungan barminn á flautuna og linnti ekki látum fyrr en vinurinn rauk af stað. Þegar hún silaðist framhjá mér
eyddi hún meiri tíma í að raða djúpum andlitshrukkunum þannig að vanþóknun hennar á athæfi mínu væri
augljós heldur en að gæta að því hvar hún var að keyra. Hún nuddaði framstuðaranum, speglinum og afturbrettinu
við 37" Parnelli Jones afturhjólbarðann á Land Rovernum mínum og skyldi jafnframt eftir afturstuðarahornið.
Þetta þýddi aukaumferð af Son of a Gun á dekkin hjá mér og töluverðar skemmdir hjá henni. Ekki hef ég séð
né heyrt af henni síðan en hún hirti ekki einu sinni um að stoppa.
Ein elskan var föst á stíg einum ofarlega á Skólavörðuholtinu. Laus við alla tilfinningu fyrir sjálfskiptum bílnum
þrykkti hún bjúgmiklum hægri fætinum á eldsneytisgjöfina þannig að snúningur framhjólanna jafnaðist á við
80 km/klst þar sem hann stóð kyrr á svellinu. Blanda af bensínlykt og brælu af brenndu gúmmíi fyllti vitin þegar
hún náði fætinum af fetlinum og ákvað að fara út og skoða aðstæður. Við það fór bíllinn, sem enn var í "Drive",
rólega af stað og ók sjálfur úr stæðinu. Gott að annað þeirra kunni að keyra!
Svo var það núna rétt eftir áramótin á planinu fyrir aftan Bæjarins bestu. Ég hafði lagt þar og var á
heimleið um miðja nótt en komst hvergi þar sem Fiat Uno 45, 1988 módelinu, var lagt beint fyrir framan
bílinn minn. Félagi minn rölti og kallaði á þá sem voru í næturpylsuröðinni: „hver á Uno-inn?". Það
tók nokkurn tíma fyrir vinkonuna að átta sig, alveg þangað til að hún var búin að versla og kom
hlaupandi með tvær með öllu og litla kók í hendinni. Léttfætt sveiflaði hún sér upp í bílinn, kom
veigunum fyrir á mælaborðinu og rak græjuna í bakk. Eftir að hafa með erfiðismunum komið
afturhjólunum yfir háan steinkant þá var komið að framhjólunum!! Mann sveið í eyrun þegar að
saumavélinni var snúið í botn og tengslunum sleppt. Yfir fóru framhjólin en lillan hafi ekki hirt um
forláta umferðarskilti við hlið bílsins sem tók spegilinn af bílstjóramegin, beyglaði frambrettið og
skorðaði framhjólið af upp við kantinn. Þar var hún pikkföst með tvær með öllu og kók í klofinu
þegar ég fór. Þar sem konur krefjast þess að gera flesta hluti sjálfar taldi ég að hún myndi redda
þessu. Það stóð heima, hún var allaveganna ekki þarna í gær.
Er Kabbalah að verða nýtt stjörnuæði í Hollywood?
Ég rakst nýlega á gretn í einu slúðurblaðinu sem
bar yfirskriftina „Parisi's new savior: Kabbalah"
Hin villta Paris Hilton hafði þá sést með rautt
armband um úlnliðinn og er það merki þess að
hún sé farin að feta í fótspor ekki verri kvenna
en Madonnu í að iðka Kabbalah og reyna að ná
hinu illa út úr lífi sínu eftir skandala síðustu
mánaða. Ég kveikti ekki strax á perunni og ákvað
því að kanna málið betur. Ég komst þá að því
að Kabbalah er afsprengi
dulhyggjuhef ðar
gyðingdómi sem
mönnum hefur
þótt erfitt að
t í m a s e t j a
upphafið á. Sumir
telja Kabbalah
jafngamalt mann-
inum á meðan aðrir
telja hana uppkomið
í kringum 12du öld og
oft er Kabbalah
hreyfingin tengd við
ýmis leynifélög eins og
til dæmis Frímúra-
regluna. Eitthvað fannst
skrýtið að fröken Hilton væri farin að stunda
andlega íhugun, en nóg með það. Með Kabbala-
hiðkuninni er sóst eftir samruna við guð. Sköpun
heimsins, upphaf og endaiok sálarinnar og
hlutverk mannsins eru meðal umhugsunarefna
en ástundunin krefst einnig trúarlegra og
dulrænna iðkana og hugleiðslu, sem áður fyrr
var aðeins kennd fáum útvöldum. Samkvæmt
kenningum Kabbalahista stjórnast heimurinn af
yfirmáta kröftugum lögmálum og með því að
læra að skilja þessi lögmál og lifa í samræmi við
þau verður það til þess að bæta líf okkar og að
lokum öðlumst við og mannkynið sanna
uppfyllingu í líf okkar.
Mikið æði hefur gripið um sig meðal fræga fólksins
og hefur þessi aldagamla dulhyggjuhefð orðið
nokkurskonar tískudella. Sést hefur til ýmissa stjarna
koma út úr Kabbalah miðstöðinni í L.A. eins og
Roseanne Barr, Demi Moore, Aston Kutcher og síðast
en ekki síst poppdrottningin Madonna. Fleiri stjörnur
má nefna sem þurfa á uppfyllingu í líf sitt að halda því
Elizabeth Taylor, Mick Jagger, Barbara Streisand, Naomi
Campell, Brittany Murphy og Britney Spears hafa verið
tengd við þetta. Stjörnurnar virðast vera mikið é
andlegu nótunum núna.
Mikið hefur verið fjallað um það
^ í erlendum slúðurblöðum þegar
Britney birtist á forsíðu
Entertainment Weekly með rautt1
band utan um úlnliðinn á sér eins og Paris
Hilton. Þetta band á vlst að vernda mann frá
neikvæðum áhrifum umhverfisins og beina frá illum
öndum. Britney talar hástemmt um Kabbalah og segir
frá því hvað iðkunin hafi veitt henni mikinn innblástur
í tónlistinni. Henni veitir víst ekki af smávegis innri ró
eftir allt umstangið síðustu vikurnar. Það var engin
önnur en Madonna sem kynnti hana fyrir þessu og
virðist sem Britney vilji ekki aðeins ná eins langt og
hún í tónlistinni heldur vill hún einnig feta ( fótspor
hennar á andlega sviðinu.
Ástæða þess að Kabbalah hefur orðið svona vinsælt
hjá Hollywoodstjörnunum gæti verið sú að í annasömu
starfi þeirra séu þær að leita sér að andlegri uppfyllingu.
Madonna segir að Kabbalah hafi veitt henni mikinn
innblástur í lögunum hennar eins og við
barnabókaskrifin og hefur hún ekki haldið hrifningu
sinni leyndri. Madonna talar opinskátt um Kabbalah
í viðtölum og segist ala börn sín upp í trúnni og hvetja
þau til að hjálpa náunganum og segist fullviss um að
Kabbalah muni hjálpa þeim í að verða umhyggjusamir
unglingar.
Það Kabbalah sem flestar stjörnurnar hér að ofan
stunda er í gegnum umdeild samtök rekin af Philip
Berg og fjölskyldu hans sem kallast The
Kaballah Center og er
staðsett í Los
Angeles.
Það eru
ekki allir
sem hafa
jafn mikla trú
á Berg og
miðstöðinni
hans og hefur
hann fengið
m i s g ó ð a
u m f j ö I I u n í
f j ö I m i ð I u m .
Fjölskylda hans hefur
verið kölluð
sértrúarsöfnuður og
Berg hefur verið
kallaður svikahrappur.
Hvað sem því líður hafa
Berg og fjölskylda náð að
byggja upp eina stærstu
a n d I e g u stofnunina sem laðar að sér
þúsundirfylgjenda sem ganga um með
Kabbalahbönd og drekka sérstakt Kabbalahvatn.
Það er spurning hvort þessi mikla stjörnusena sé til
þess að styrkja iðkun Kabbalah um heiminn, ekki veit
ég það en presturinn Shmuley Boteach segir að sú
staðreynd að Kabbalah sé orðiö háð poppíkönum til
að höfða til fjöldans sé merki um örvæntingu.
Kabbalah er mun meira en að ganga með armbönd,
hugleiða með Hollywoodstjörnum og drekka sérstakt
vatn. Þetta er flókin hugmynd sem ég ætla ekki
einusinni að reyna að útskýra hér, en í heildina á
Kabbalah að gefa þeim sem það stundar það sem þarf
til að öðlast sanna hamingju, uppfyllingu í innantómt
líf sitt og gefa honum þann frið og ró sem hann þráir
og á skilið.