Orðlaus - 01.02.2004, Qupperneq 51
Hvað myndirðu gera ef þú fyndir ekki
hreinsikremiö þitt og kæmist að því að
kærastinn þinn hefði tekið það með í
sund?
Núna geta karlarnir lappað upp á útlitið
alveg eins og við konurnar og fengið
hraustlegt og náttúrulegt útlit á
auðveldan hátt. Línan byrjaði með La
Male herrailminum sem Jean Paul
Gaultier setti á markað fyrir tíu árum
síðan. Ilmurinn hefur verið gífurlega
vinsæll öll þessi ár og hægt er að fá
svitalyktareyði, sturtugel og rakspíra
með sömu lykt.
Núna geta karlarnir hins vegar einnig
fengið sápu, sólarpúður, blýant,
bólufelara, varasalva í þremur litum,
gloss, og naglapenna og kallast sú lína
Tout Beau eða Totally Gorgeous. Þetta
eru vörur sem eru sérstaklega hannaðar
til þess að gera karlmennina enn
myndarlegri. Þetta þarf alls ekki að gera
karlmanninn eitthvað kvenlegan, hann
verður bara frískari og lítur betur út.
Sólarpúður
Betri en brúnkan - Better Than Tan,
Matte Bronzer Powdre and Brush
Sólarpúðrið gefur honum heilbrigt og
hraust útlit. Það gerir húðina mattari
og karlinn lítur út fyrir að hafa verið úti
alla helgina.
Mjúkt andlitskrem
Alcohol Free Smooth Face Balm
Hægt að nota kvölds og morgna og
þurrkar burt öll merki þreytu. Kremið
gefur húðinni orku, mýkir hana og gefur
andlitinu lyftingu.
Augnblýantur og baugafelari
Skarpari augu - Sharp Eyes Kohl pen
and concealer
Þessi sniðugi blýantur er augnblýantur
öðrum megin og baugahyljara hinum
megin. Augnblýanturinn skerpir augun
og gerir þau stærri en baugahyljarinn
hylur dökka bauga eftir langa vinnuviku.
Varasalvar og gloss
Lúmskur koss - Sneaky kiss
í varasölvunum er næring sem kemur í
veg fyrir að varirnar verði þurrar eða
sprungnar.
Glossinn mýkir og ýkir varirnar og lituðu
varasalvarnir gefa fölum vörum meiri
lit.
Naglapenni
Sterkari neglur- Strong nails, smoothing
fortifying nail pen
Þetta er nærandi olía sem borin er á
neglurnar og glansar ekki eins og
naglalakk heldur gerir hendurnar
óaðfinnanlegar.
kr.1245 ikr.2490
fyrirtvo
TILBOÐ 1 HEILSUTILBOÐ
Djúpsteiktar rækjur með súrsætri sósu Gufusoðið brokkolí og pok-choi kál með hvítlauk í ostrusósu
Kjúklingur og grænmeti í drekasósu Wok ristað blandað grænmeti og kartöflur í karrýsósu
Svínakjöt og grænmeti í Hot&Sweet sósu Steiktar eggjanúðlur með kjúklingi, eggjum og grænmeti
Steiktar eggjanúðlur með grænmeti Ristaðar kjúklingabringur með tofu og grænmeti
Hrísgrjón og soyasósa Steikt brún grjón með eggjum og grænmeti, soya og Sweet Chilli
Ath! Tilboðin eru eingöngu afgreidd fyrir 2 eða íleiri
Ath! Tilboðin eru oingöngu afgroidd fyrir 2 oð
Ef þú hringir og sækir fylgja 2 Toppar meötilboðinu
Ef þú hringir og sækir fylgir 21. Coke meö tilboðinu