Orðlaus - 01.02.2004, Síða 52
Frægt fólk fær varla að deyja lengur án þess að
samsæriskenningar spretti upp í kringum það,
því það er alltaf skemmtilegra að heyra krassandi
sögur og fáránlegar spekúleringar en að sætta
sig við að um venjulegt dauðsfall hafi verið að
ræða. Elvis og 2Pac eiga að vera enn á lífi,
Kennedybræður áttu að vera valdir að dauða
Marilyn Monroe og því hefur jafnvel verið haldið
fram að heilaþvegið vélmenni hafi drepið John
Lennon.
Það getur engin fræg manneskja heldur fengið
að fremja sjálfsmorð án þess að efasemdaraddir
heyrist hingað og þangað frá sorgmæddum
aðdáendum og var Kurt Cobain þar engin
undantekning. Nú fer að líða að því að 10 ár séu
liðin frá dauða rokkarans og er því um að gera
að rifja upp nokkrar af þeim samsæriskenningum
sem spruttu upp stuttu eftir dauðsfallið og birtust
í blöðum, spjallþáttum í sjónvarpi og
útvarpsþáttum um allan heim.
(Þær skoðanir sem birtast hér á eftir endurspegla
á engan hátt skoðanir undirritaðrar eða blaðsins
og eru eingöngu ætlaðar til að sýna hvað öll
umræðan snerist um.)
Samsæri?
Þann 8. apríl 1994 fann lögreglan lík Kurt Cobain og
leit allt út fyrir að hann hefði drepið sig með því að
skjóta sig í hausinn. Ekki voru þó allir tilbúnir að gleypa
við þessu. Það hlaut að vera önnur skýring. Kurt Cobain
vardrepinn! Samsæriskenningamennirnir töldu þá að
einhver utanaðkomandi hefði komist inn í húsið, skotið
Kurt og komist út aftur óséður, en hver og hversvegna?
Löggan, mafían, dópdílerinn, plötuiðnaðurinn,
rokkarinn El Duce, barnfóstran, allir hafa verið grunaðir,
en líklegust hefur samsærismönnunum þótt eiginkonan
Courtney Love. Þeir segja að ef hún gerði þetta ekki
sjálf þá viti hún allaveganna hver gerði það.
Hvað gerðist?
Kurt Cobain yfirgaf meðferðarstofnun í Kaliforníu 1.
apríl 1994 og stuttu seinna tilkynnti Courtney hann
týndan. Hann fannst svo látinn sjö dögum síðar. Cortney
Love réð rannsóknarmanninn Tom Granttil að rannsaka
hvarf eiginmannsins og komst hann að því að Cobain
hefði keypt sér byssu nokkrum dögum áður en hann
fór á meðferðarheimilið þar sem hann var farinn að
óttast um öryggi sitt. Þegar byssan fannst var hún
hlaðin þremur skotum og því enn meiri líkur á að
Cobain hafi ætlað að nota hana til verndar, ekki
sjálfsmorðs. Margir af nánustu vinum Kurt studdu þessa
kenningu þar sem þeir töldu hann ekki hafa verið í
sjálfsmorðshugleiðingum á þessum tíma. Eftir margra
mánaða rannsókn hélt Grant því svo fram að Courtney
hafi ráðið ieigumorðingja til að drepa eiginmanninn.
Hann sagði að Courtney og Michael Dewitt sem var
barnfóstrinn á heimilinu hefðu planað þetta saman.
Hank Harrison, blóðfaðir Courtney Love, hefur meira
að segja stutt þá tilgátu að dóttir sín tengist á einhvern
hátt morðinu á tengdasyninum.
Ekki hefur þó tekist að sanna þessa kenningu, en hér
eru nokkrar af þeim „sönnunum" sem ollu öllum þessum
vangaveltum:
Kreditkortið
Við rannsóknina kom í Ijós að eitt af kreditkortum
Cobain var týnt en einhver hafði þó notað það milli
þess að hann dó og líkið af honum fannst. Hver það
var veit þó enginn með vissu.
Fingraförin
Það fundust engin nothæf fingraför á byssunni.
Mönnum þykir frekar ólíklegt að Kurt hafi náð að
þurrka fingraförin af eftir að hann skaut sig.
8. APRI11994
Sjálfsmorðsbréfið
Sjálfsmorðsbréfið sem fannst á heimili Kurt var mjög
skrýtið sjálfsmorðsbréf, ef það átti þá að vera það. í
því stóð hvergi neitt um að hann hafi ætlað að drepa
sig heldur leit bréfið mun fremur út fyrir að vera
afsökunarbréf til aðdáenda sinna fyrir að hætta í
tónlistinni.
Bréfið var einnig skrifað í nútíð en ekki þátíð sem
mönnum þótti frekar furðulegt. Það var einungis minnst
á Courtney og dótturina Frances neðst í bréfinu og
hafa margir rithandarsérfræðingar talið að um tvær
persónur sé að ræða.
Skilnaðurinn
Þetta var þó ekki eina bréfið sem Kurt skildi eftir,
Courtney átti annað, annars eðlis. Hún sagði engum
frá bréfinu fyrr en mánuðum síðar þegar hún missti
það út úr sér í viðtali við Rolling Stone að Kurt hafi
ætlað að fara frá konu sinni, Courtney Love, yfirgefa
Seattle og hætta í tónlistarbransanum. Því hefur verið
haldið fram að Courtney hafi verið hrædd um að tapa
milljónum á skilnaðinum og því ákveðið að enda
sambandið á sinn eigin hátt.
Heróínið
Samkvæmt lögregiuskýrslum hafði Kurt sprautað sig
meö heróini áður en hann á að hafa skotið sig og var
magnið svo gífurlega mikið (þrefaldur óverdós) að það
eitt hefði átt að steindrepa hann. Hann hefði því ekki
getað skotið sjálfan sig þar sem hann hefði verið
dauður. Af hverju ætti hann llka að skjóta sig eftir að
hafa sprautað sig með of stórum skammti heróíns?
Barnfóstrinn
Michael Dewitt, barnfóstrinn, sagði Courtney að hann
hefði séð Kurt í húsinu 2. apríl, en Courtney sagði ekki
frá því og lét rannsóknarmanninn Tom Grant halda
áfram leitinni hjá dópdílerum vítt og breitt um bæinn.
El Duce
Rokkarinn El Duce úr The Mentors sagði í fjölmiðlum
að Courtney hefði boðið honum 50.000 dollara fyrir
að drepa eiginmanninn. Nokkrum dögum síðar datt
hann fyrir lest og dó. Það eru þó engar sannanir fyrir
þessu, eingöngu orð El Duce sem var ekki hræddur við
að eignast óvini.
Mafían
Kurt reitti marga til reiði þegar hann hætti við að spila
á Lolapalooza tónlistarhátíðinni, meðai annars mafíuna
sem stjórnar jú tónlistariðnaðinum. Þessi ákvörðun
hans kostaði milljónir dollara. Kurt, sem ætlaði að
hætta í tónlistarbransanum, var því meira virði dauður
en lifandi því hægt var að reikna með gífurlegri
söluaukningu á Nírvanaplötum.
Sem betur fer gleypa ekki allir við samsæriskenningum,
en það er þó alltaf hægt að hafa gaman af þeim. Eins
og áður sagði hefur ekki tekist að sanna að um morð
hafi verið að ræða, ef til vill er meira á bak við
ótímabæran dauða rokkarans en ólíklegt er að við
munum nokkurn tímann fá að vita það með vissu. Á
meðan halda samsæriskenningarnar lifi á netinu.
'
uleg heimsmet...
Heimsmet i spítalafjölda
Árið 1995 voru 67.807 spítalar í Kína sem er mesti fjöldi
í heimi. Kína er líka eina landið í heiminum þar sem
nútíma lækningar eru stundaðar samhliða
náttúrulegum lækningum á öllum stigum
heilbrigðiskerfisins. Hefðbundar lækningar eru til
dæmis jurtalækningar, nálastunguaðferðir, nudd og
fleira.
Lengsta óreglulega stríðið
Hið svokallaða hundrað ára stríð á milli Englands og
Frakklands frá 1337-1453 (116 ár) var í raun og veru
mörg óregluleg og illa skipulögð stríð frekar en eitt
stórt stríð en fær því titilinn lengsta óreglulega stríð
í heimi.
Stærta bjórflöskusafn í heimi
Ron Werner hefur safnað saman 11.644 eintökum af
bjórflöskum síðan árið 1982. Af öllum þessum flöskum
eru 7.128 óopnaðar.
Mest selda fatamerkið
Levi's Strauss Co. er stærsti merkjaframleiðandinn í
heimi og selur til dæmis undir nöfnunum Levi's og
Docker's. Heildarsalan hjá fyrirtækinu árið 1999 voru
6 milljarðar dollara, ekki lélegt það...
j - <■
Stærsta Holiywood heimilið
Stærsta húsnæðið í Hollywood er á Mapleton Drive.
Stærðin er hvorki meira né minna en 3.390 fermetrar!!!
Húsið var byggt fyrir Aaron Spelling og í þvi er
æfingarsalur, keilusalur, sundlaug og skautahringur.
Það er metið á litlar 37 milljónir dollara.
Ríkasta kona i heimi
Ríkasta kona í heimi heitir Alice Walton og hún er
dóttir Sam Walton sem stofnaði Wal-Mart keðjuna sem
er stærsta heildverslunarkeðja í heiminum. Eignir Alice
eru metnar á 16,5 milljarða dollara. Hún er rúmlega
fimmtug og býr á búgarði í Texas. Ríkasti maðurinn er
auðvitað enginn annar en Bill Gates stofnandi Microsoft
en það er metið á 52,8 milljarða dollara. Hvað á fólk
að gera við allan þennan pening???
Mesti hraðinn á hjólabretti
Gary Hardwick sem er frá Kaliforníu setti hraðamet á
hjólabretti (hann stóð allan tímann). Hann náði 100,66
km. hraða niður Fountain Hills í Arizona 26. september
1998. Gary er búinn að vera að "hrað"-skeita í mörg
ár og sagðist geta talið sig heppinn að hafa ekki
stórslasast á meðan þessu stóð.
/