Orðlaus - 01.02.2004, Blaðsíða 53
Eitt helsta áramótaheitið er án efa að fara nú að standa sig í líkamsræktinni á nýju ári, hreyfa sig meira, borða holiari mat og þar fram eftir götunum. K
En eftir kostnaðasöm jól og áramót standa margir sig að því að hafa einfaldlega ekki efni á líkamsræktarkorti og þá síst af öllum fátækir námsmenn
sem bíða i ofvæni eftir stóru greiðslunni frá LÍN. Hvað er þá til ráða fyrir þá metnaðarfullu sem vilja bæta heilsuna og koma sér í gott form á nýju
ári....? Eins og flestir vita er í raun ekki nauðsynlegt að eiga kort á líkamsræktarstöð til að koma sér í betra form en hvað annað er í rauninni í boði?
Til hliðsjónar
Armbeygjur; Fyrst í stað er fínt að gera þær af hnjánum
og færa sig svo yfir á tær þegar lengra er komið. 3x
10-15 endurtekningar til að byrja með en síðar 3x 20-25.
Þríhöfði; niðursig er t.d hægt að gera af meðalháum
stól en þá látum við bak snúa að stólnum, hendur á
stólbrúnina, fætur ca. í 90 gráðum og látum okkur síga
niður eins og styrkur leyfir og svo aftur upp. Gott að
gera 3 x10 endurtekningar til að byrja með en færa
sig svo yfir í 3x 15-20.
Bakfettur; þær gerum við á gólfinu, ágætt að nota
þunna dýnu sem undirlag. Lyftum höndum og fótum
upp, höldum í ca.3 sek og sígum svo aftur niður. Passa
að hafa fætur alveg saman og ekki að reigja höfuð
upp heldur horfa niður í gólf. Gott að taka 3x 15
endurtekningar.
Þolþjálfun
Útiskokk
Kraftganga
Sipp
Hjólreiðar
Línuskautar
Sund
Skautar
Skíðaiðkun
Styrktarþjálfun
Þrekæfingar
Axlir,brjóst,bak,tvíhöfði; armbeygjur
Príhöfði; niðursig
Mjóbak; bakfettur á gólfi
Kviður; kviðæfingar á gólfi
Hliðar; bolhliðalyftur
Kálfar; tályftur
Fætur; hnébeygjustaða, hnébeygjur,
froskahopp
Kviðæfingar; þær eru einnig teknar á gólfinu, liggjum
á bakinu með hné uppi og fætur í gólfi. Passa að fetta
ekki mjóbak heldur láta það snerta gólf. Lyftum efri
líkama aðeins upp með því að spenna kviðvöðvana og
sígum svo aftur niður. Gott að taka 3x 25 endurtekningar.
Bolhliðaæfingar; liggjum á hliðinni með olnboga í
gólfi og lyftum líkamanum upp með því að spenna
hliðarvöðvana og höldum í ca.3 sek. Ökklar liggja
saman og sá neðri á gólfinu. Taka 2x 10-20
endurtekningar.
Tályftur; stöndum upp við vegg til að halda jafnvægi
og lyftum hæl frá gólfi með því að nota kálfavöðvana.
Gott að gera af smá hæð ef sá möguleiki er fyrir hendi.
3x 10-20 endurtekningar er góð viðmiðun.
Fætur; Hnébeygjustaðan; hún er framkvæmd upp við
vegg, látum okkur síga niður með bak í vegg og fætur
í ca.90 gráðum(minna niður til að byrja með). Halda
þeirri stöðu 1 30-60 sek, 2-3 sinnum.
Hnébeygjur; standa með fætur í axlabreidd frá hvor
öðrum, síga niður í ca.90 gráður og svo upp aftur. Passa
að hné fari ekki of framarlega, miða við að sjá í tærnar
þegar æfingin er framkvæmd. 3x 10-20 endurtekningar.
Froskahopp; beygja hné eins mikið og hægt er og
láta fingurnar snerta gólfið og svo upp aftur og hoppa.
Endurtaka 10-20 sinnum tvisvar.
-Nóg er að velja tvær fótaæfingar til að byrja með eða
þá að taka þær allar og færri sett af hverri.-
*
Gangi ykkur vel!
Vilborg Ása Guðjónsdóttir
Einkaþjálfun F.I.A.
Hártískan:
Kk Stórt og mikið hár, ekkert
Rfc' hár, sítt hár, stutt hár, slétt
V* 'V hár, krullað hár, sterkar línur
og mjúkar línur. Það er allt
í gangi og helst að blanda
þessu öllu saman í þína eigin
hártisku hvort sem að þú vilt
halda þinni sídd eður ei. Götutískan I sambland við
tísku og list.
Klippingin 2004:
Hvað varðar klippingu þetta árið þá eru bæði mjúkar
og sterkar línur mikið inni. Fallega sítt hár getur enn
haldið sídd sinni en í staðinn koma sterkir "effectar"
inn (hárið, sem gefur þvi meira Iff. Lúkkiö verdur bæði
tignarlegt og rómantískt með sterkum og kröftugum
Knum og formi. Hjálmaform og sterkir toppar með
kvenlegu ívafi
Texti: Anna, hárstofunni Gel.
Myndir: Vidal Sassoon Collection
Hárlitur:
Fyrir 2004 er mikið verið að notast við náttúrulega
hárlitinn í sambland við "dusty pink" eða "vibrant"
rauðan. Einnig koma bláir og dökkfjólubláir litir sterkir
inn. Þessir litir verða þó aðeins notaðir sem "effectar"
Fallega blár getur orðið flottur „effect'
í bæði Ijósu og dökku hári.
Götutískan f blandi við tísku
og list
illecq^tt hár getur frfn haldid sídd sinni, en í staöírfW
sterkir „effectar-^fiðíí hárið sem að gefur því meira líf.
V