Bændablaðið - 27.02.2007, Page 15
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. febrúar 200715
www.bustolpi.is
Sími: 460-3350
Fax: 460-3351
Sáðvörulistinn kominn
Grasfræ til túnræktar Sáðmagn kg.ha. Sekkur kg.
Grasfræblanda 1* 25 25
Grasfræblanda 2** 25 25
Vallarfoxgras Vega 25 25
Vallarfoxgras Jonatan 25 25
Vallarfoxgras Grindstad 25 25
Vallarfoxgras Engmo 25 25
Vallarsveifgras Sobra 18 25
Vallarsveifgras Balin 18 25
Fjölært rýgresi Tetramax 35 25
Túnvingull Gondolin 20 til 25 20
Hvítsmári Norstar 5 til 6 25
Rauðsmári Bjursele 5 til 6 10
Grænfóðurfræ
Sumarrýgresi Barspectra 35 25
Sumarrýgresi Clipper 35 25
Vetrarrýgresi Barmultra 35 25
Vetrarrýgresi EF 486 Dasas 35 25
Sumarrepja Pluto 15 10
Vetrarrepja Barcoli 10 25
Vetrarrepja Akela 10 25
Vetrarrepja Delta 10 25
Vetrarrepja Hobson 10 25
Fóðurnæpur Samson 1.5 25
Fóðurmergkál Grüner Angeliter 9 25
Bygg til þroska
2ja raða Filippa 180-200 50
2ja raða Saana 180-200 50
6 raða Tiril 180-200 40
6 raða Olsok 180-200 40
6 raða Lavrans 180-200 40
6 raða Ven 180-200 40
'* Grasfræblanda 1 - gefur góðan endurvöxt, tilvalin þar sem slegið er tvisvar.
'**Grasfræblanda 2 hentar vel til beitar og þar sem slegið er einu sinni. Vetrarþol meira en í grasfræblöndu 1.
www.fodur.is
Sími: 570-9800
Fax: 570-9801
ww .bustolpi.is
Sími: 460-3350
Fax: 460-3351
www.kb.is
Sími: 430-5500
Fax: 430-5501
www.ks.is
Sími: 455-4626
Fax: 455-4611
Nú er rétti tíminn til að huga að sáðvörum.
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval tegunda
af fræum sem hafa verið á markaðnum
undanfarin ár. Vinsamlegast hafið samband
tímanlega ef áhugi er fyrir öðrum tegundum.
Munið að panta tímanlega.
FB Búvörur, Egilstöðum
Kaupvangi 11
Sími: 570-9860
FB Búvörur, Hvolsvelli
Hlíðarvegur 2-4
Sími: 487-8413
FB Búvörur, Selfossi
Austurvegur 69
Sími: 482-3767
Lengi hefur verið deilt um það
hér á landi hvort eldisminkur
sleppi úr búrum eða ekki. Marg-
ir halda því fram að svo sé en
minkaeldismenn telja aftur á
móti svo ekki vera eða þá í svo litl-
um mæli að engu skipti. Auk þess
sem þeir fullyrða að eldisminkar
haldi sig ávallt nærri búrunum
eða í útihúsum og því sé auðvelt
að handsama þá.
Búnaðarsamband Austurlands
hefur sent inn mál á Búnaðarþing
2007 þar sem því er beint til Bænda-
samtakanna að gerð verði úttekt á
loðdýrabúum landsins sem miði að
því að koma í veg fyrir að eldisdýr
sleppi út í íslenska náttúru. Tillög-
ur verði gerðar til úrbóta sem fylgt
verði eftir og komið verði á virku
árlegu eftirliti með ástandi búranna.
Einnig verði kveðið skýrt á um það í
reglum um loðdýrabú hvernig örygg-
isbúnaður þeirra skuli vera, hvernig
reglum skuli framfylgt og hver séu
viðurlög við því ef alidýr sleppa.
Fullyrða að minkur sleppi
Í greinargerð er fullyrt að sannað
sé að enn sleppi minkur úr minka-
búum og um það geti bæði veiði-
menn og vísindamenn vitnað. Segir
í greinargerðinni að á árunum 2005
og 2006 hafi borið á alimink sem
sloppið hafi úr búrum í Vopnafirði.
Tvær veiddar læður hafi verið send-
ar til greiningar hjá Náttúrustofu
Vesturlands og hafi komið í ljós
að önnur var aliminkur en hin villi-
minkur.
Björn Halldórsson, formaður
Sambands íslenskra loðdýrabænda,
segir að þessi umræða hafi alltaf
komið upp öðru hvoru. Hann seg-
ir að þeir sem haldi því fram að
aliminkur sleppi úr búrunum slái
fram fullyrðingum um að svo sé.
Þeir hafi sent dýr til greiningar hjá
Náttúrustofu Vesturlands án þess
að hafa nokkurt samband við loð-
dýrabændur, samtök þeirra eða loð-
dýraráðunautinn.
Ekkert samband
,,Ég ætla ekki að fullyrða að það
hafi ekki einhvern tíma einhvers
staðar sloppið út aliminkur en mér
þykja það skrýtin vinnubrögð að
hafa ekkert samband við þá aðila í
landinu sem þekkja þessi dýr best.
Og á meðan þessir aðilar eru bara
með fullyrðingar, en sýna okkur
ekki fram á að þeir séu með búrdýr,
trúum við þeim einfaldlega ekki.
Nú eru að hefjast tilraunir til að
útrýma villimink á tveimur afmörk-
uðum svæðum á landinu; annars
vegar á Snæfellsnesi og hins veg-
ar í Eyjafirði. Engum af þeim sem
nærri þessum verkefnum koma hef-
ur dottið í hug að ræða við okkur
sem þekkjum þessi dýr og hegðun
þeirra best,“ sagði Björn Halldórs-
son. Sdór
Enn er deilt um hvort minkur
sleppi úr búrum eða ekki