Bændablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 27
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. febrúar 200727
Case CS 94
Árgerð 1999,
4700t, Trima 340,
Verð 1.900.000
McCormick 105 C-Max
Árgerð 2005,
400t.
Verð 2.390.000
Case CS 75
Árgerð 1998,
Stoll Robust 8, 3500t.
Verð 1.800.000
Krone 1500 Vario Pack
Árgerð 2000
Verð 1.000.000
Krone 1250 samstæða
Árgerð 1999
Verð 1.900.000
Krone 1500 samstæða
Árgerð 2002
Verð 2.800.000
Nýjar og notaðar
Vélar
Case IH 4230
Árgerð 1996
Verð 900.000
ÞÓR HF | Reykjavík: Ármúla 11 | Sími 568-1500 | Akureyri: Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor. is
Vorvinnutæki frá AMAZONE
Afar fullkomnar sáningsvélar - bæði loft-
sáningsvélar og kassasáningsvélar.
Sterkir og afkastamiklir pinnatætarar. Auðveld
ísetning pinna. Vinnslubreiddir 3,0 -6,0 m.
Fasttengd eða dragtengd diskaherfi með
fjöðrun á hverjum diski. Hver diskur með
viðhaldsfríar legur í olíubaði.
AMAZONE áburðardreifararnir eru lands-
þekktir fyrir mikla nákvæmni og langa
endingu. Ryðfrír dreifibúnaður.
Dr. David Beever, aðalhugmynda-
fræðingur geldstöðufóðrunar
Keenan kerfisins er staddur hér
á landi á vegum Agro ehf.
Á undanförnum mánuðum hefur
verið vaxandi eftirspurn eftir Keen-
an heilfóðurvögnum sem Agro ehf
er umboðsaðili fyrir. Meginsérstaða
Keenan kerfisins er hvernig vagn-
arnir meðhöndla gróffóðrið ásamt
fóðurráðgjöfinni sem fylgir þessum
vögnum. Hjá Keenan fyrirtækinu
starfa yfir 40 fóðurfræðingar sem
eingöngu vinna við leiðeiningar und-
ir stjórn Dr. David Beever. Þessa
dagana er Dr. Beever staddur hér á
landi sem aðalfyrirlesari á fjórum
fóðurfundum á vegum Agro. Tveir
almennir bændafundi eru haldnir á
Akureyri og Selfossi og í beinu fram-
haldi tveir fundir með dýralæknum.
Prófessor David Beever kemur
frá Jórvík á Englandi þar sem hann
ólst upp á kúabúi. Að loknu námi í
háskólanum í Newcastle réði hann
sig til „Grassland Research Ins-
titute“ og varð forstöðumaður fóð-
urfræði- og efnaskiptadeildarinnar
fyrir jórturdýr í sjö ár. Þá sat hann
í vísindaráði (Animal Science) við
háskólann í Reading þar sem hann
var forstjóri CEDAR (The Centre
for Dairy Research) rannsóknamið-
stöð nautgriparæktar en hún er arf-
taki NIRD (National Institute of
Research in Dairying).
Prófessor David Beever hefur
veitt alþjóða fóðurfræðideild Keenan
forstöðu frá því í apríl 2004. Hann
hefur séð um uppbyggingu þeirrar
deildar sem sér um fóðurfræðiaðstoð
Keenan undir nafni Rumans en sú
deild leitar fóðurfræðilegra lausna til
að auka afköst gripanna.
David hefur birt yfir 500 vís-
indagreinar fyrst og fremst innan
fóðurfræði jórturdýra en einnig um
lífeðlisfræði. Á seinni árum hefur
hann einnig beint sjónum að því
hvernig draga megi úr gróðurhúsa-
lofttegundum metan og niturs sem
streymir út frá búfé.
Með þessa áralöngu og yfirgrips-
miklu þekkingu skuldbindur David
sig til að bæta heilsufar og afkasta-
getu mjólkurkúnna, að minnka um-
hverfisáhrif búpenings og til að
stuðla að bættri arðsemi búanna.
Nánari upplýsingar eru á heima-
síðu Agro, www.agro.is Fréttatilk.
Fræðslufundir um geldstöðufóðrun Árshátíð Landssambands
kúabænda 2007
Árshátíð LK verður haldin í Sjallanum
laugardagskvöldið 14. apríl n.k.
Húsið opnar kl. 19 með fordrykk.
Matseðill:
Safranlöguð sjávarréttasúpa með smábrauði
Heilsteiktar nautalundir með fylltum tómat, rjómapiparsósu,
kartöfluturni og rótargrænmeti
Súkkulaðifrauðkaka „Truffon“ með ástaraldinsósu,
lime og gin-ís
Kaffi & konfekt
Veislustjóri er Bjarni G. Einarsson.
Miðaverð er 4.900 kr. Miðapantanir á lk@naut.is
Gisting á Hótel KEA, pantanir í síma 460 2000,
þar er einnig hægt að leggja inn miðapantanir.
www.bondi.is