Bændablaðið - 27.02.2007, Blaðsíða 31
Bændablaðið | Þriðjudagur 27. febrúar 200731
Auglýsing um styrki
til varna gegn
landbroti árið 2007
Samkvæmt 3. mgr. 8. gr. laga nr. 91/2002 um varnir gegn land-
broti auglýsir Landgræðsla ríkisins eftir umsóknum um styrki til
stöðvunar landbrots.
Styrkir verða veittir til framkvæmda sem ætlaðar eru til að
vernda mannvirki eða land. Við forgangsröðun verkefna verður
m.a. höfð hliðsjón af verðmæti þess lands eða mannvirkja sem
landbrotið ógnar.
Hámarksfjárhæð styrks á ári er 3.000.000 kr.
Um nánari skilyrði fyrir styrkveitingu vísast til ákvæða laga nr.
91/2002, auk úthlutunarreglna sem finna má á heimasíðu Land-
græðslunnar, http//www.land.is/ Upplýsingar má einnig fá á hér-
aðssetrum Landgræðslunnar og á skrifstofu Landgræðslu ríkis-
ins í Gunnarsholti.
Umsóknarfrestur er til 15. mars 2007, skila skal umsóknum til
Landgræðslu ríkisins, Gunnarsholti, 851 Hellu, fyrir þann tíma.
Þeir sem áður hafa sótt um en ekki fengið styrk eru hvattir til að
endurnýja sínar umsóknir.
Landgræðsla ríkisins
Gunnarsholti, 851 Hella - Sími 488-3000 - Netfang: land@land.is
Í desember sl. samþykkti Alþingi
breytingar á lögum um búnaðar-
fræðslu, nr. 57/1999, sem fela
það meðal annars í sér að Hóla-
skóli í Hjaltadal er formlega
gerður að háskóla frá og með 1.
júlí næstkomandi og heitir eftir
það Hólaskóli – Háskólinn á Hól-
um. Í lögum er kveðið á um að
skipa skuli rektor og háskólaráð
frá og með 1. janúar 2007 og skal
háskólarektor og háskólaráð frá
þeim tíma undirbúa framkvæmd
laganna.
Landbúnaðarráðherra hefur nú
skipað dr. Skúla Skúlason, sem
gegnt hefur starfi skólameistara
á Hólum frá árinu 1999, í stöðu
rektors Hólaskóla – Háskólans á
Hólum. Dr. Skúli Skúlason lauk
doktorsprófi frá dýrafræðideild
Háskólans í Guelph, Ontario í
Kanada árið 1990. Hann hóf störf
hjá Hólaskóla sama ár og stýrði
umfangsmiklu starfi á sviði fisk-
eldisrannsókna þar til hann gerð-
ist skólameistari Hólaskóla árið
1999.
Breytir miklu fyrir skólann
Dr. Skúli sagði í samtali við Bænda-
blaðið að það breytti miklu fyrir
Hólaskóla að vera nú orðinn einn
af viðurkenndum ríkisháskólum
landsins. Tækifæri skólans til að
þróa nám og rannsóknir er stórauk-
ið með þessu, eins og til að mynda
með því að koma á meistaranámi
í þeim greinum sem kenndar eru
við skólann. Þetta gerir skólann
líka mun sterkari í öllu samstarfi
í alþjóðlegum tengslum. Íslensku
háskólarnir eru í mikilli þróun um
þessar mundir og segir dr. Skúli að
nú sé Hólaskóli – Háskólinn á Hól-
um fullkominn þátttakandi í þeirri
þróun.
,,Við höfðum reglugerð sem var
samþykkt árið 2003 þar sem okkur
var gert kleift að brautskrá nemend-
ur með háskólagráður og að sjálf-
sögðu höfum við þróað nám í þeim
efnum. Reglugerðin afmarkaði hins
vegar aðra möguleika okkar en nú
er þetta allt breytt og við orðin laga-
lega séð jafnhá öðrum ríkisháskól-
um,“ sagði dr. Skúli Skúlason.
Hólaskóli í Hjaltadal
formlega gerður að háskóla
Skúli Skúlason nýskipaður rektor Hólaskóla – Háskólans á Hólum í Hjalta-
dal.
www.bondi.is